Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
24 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-242/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. des. 2021 – 10. jan. 2022· 0 umsagnir
Skimunarskrá
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (skimunarskrá) sem hér er til kynningar og samráðs er samið í heilbrigðisráðuneytinu í nánu samráði við embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
- Ekki komið til AlþingisS-233/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. des. 2021 – 9. jan. 2022· 2 umsagnir
Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um póstþjónustu ef þörf verður á
Til umsagnar eru áform um breytingar á lögum um póstþjónustu nr. 98/2019, með síðari breytingum, ef þörf verður á með hliðsjón af vinnu starfshóps um póstþjónustu. Hægt er að senda inn umsögn til og með 9. janúar nk.
- Ekki komið til AlþingisS-230/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. des. 2021 – 20. des. 2021· 2 umsagnir
Áform um lagasetningu um lagastoð fyrir mannvirkjaskrá
Til umsagnar eru drög að áformum um lagasetningu um nýja mannvirkjaskrá. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 20. desember nk.
- Ekki komið til AlþingisS-229/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. des. 2021 – 10. jan. 2022· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og fleiri lögum (innleiðing EES-gerða o.fl.)
Lagðar eru til breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og fleiri lögum til að innleiða Evrópugerðir um starfsemi fjármálafyrirtækja og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði.
- Ekki komið til AlþingisS-93/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2021 – 14. apr. 2021· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingarstarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. með það að leiðarljósi að styrkja og betrumbæta þau ákvæði laganna er varða almenningssamgöngur, frjálsa og sérstaka skráningu fasteigna, uppgjörstímabil landbúnaðaraðila o.fl.
- Ekki komið til AlþingisS-92/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2021 – 28. apr. 2021· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Því er ætlað að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi. Samhliða frumvarpi þessu er fyrirhugað að frumvarp til laga um skattlagningu kaupskipa verði lagt fram.
- Ekki komið til AlþingisS-82/2021· Drög að stefnu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2021 – 2. apr. 2021· 12 umsagnir
Menningarstefna
Mennta- og menningarmálaráðherra undirbýr þingsályktun um menningarstefnu fram til 2030 þar sem fjallað er um fjölbreyttar hliðar lista og menningararfs. Stefnunni er ætlað að nýtast stjórnvöldum og Alþingi við frekari umræðu, stefnumótun á afmörkuðum sviðum og ákvarðanatöku auk þess að vera leiðarljós þeirra aðila sem standa að lista- og menningarstarfi um allt land.
- Ekki komið til AlþingisS-63/2021· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á varnarmálalögum nr. 34/2008 (öryggissvæði o.fl.).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á varnarmálalögum sem lúta að endurskilgreiningu marka núverandi öryggissvæðis á Gunnólfsvíkurfjalli.
- Ekki komið til AlþingisS-62/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 14 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnunar (viðurlög, tengdir aðilar o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar sem miða að því að styrkja eftirlit Fiskstofu.
- Ekki komið til AlþingisS-42/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. feb. 2021 – 25. feb. 2021· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016 (skýrari valdmörk o.fl.).
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Með óformunum er birt mat á áhrifum og drög að frumvarpi.
- Ekki komið til AlþingisS-38/2021· Áform um lagasetningu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2021 – 24. feb. 2021· 5 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990
Mennta- og menningarmálaráðherra telur tímabært að endurskoða lög um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990. Stefnt er að því að lagt verði fram nýtt frumvarp til nýrra heildarlaga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
- Ekki komið til AlþingisS-34/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. feb. 2021 – 18. feb. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017.
- Ekki komið til AlþingisS-32/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. feb. 2021 – 22. feb. 2021· 18 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 og lögum nr. 75/2004 um stofnun Landsnets hf. Drög að reglugerð, aðgerðaráætlun og skýrsla.
Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum, drög að breytingu á reglugerð um veginn fjármagnskostnað, yfirlit yfir aðgerðir til umbóta á regluverki á sviði raforkumála og skýrsla Deloitte um greiningu á regluverki.
- Ekki komið til AlþingisS-13/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2021 – 15. feb. 2021· 8 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
- Ekki komið til AlþingisS-28/2021· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 11. feb. 2021· 4 umsagnir
Endurskoðun laga um landamerki o.fl. (lagasamræming)
Áformað er að skapa heildstæðan og skýran farveg fyrir nútímalega skráningu landamerkja að einkarétti. Gildandi löggjöf veitir ekki fullnægjandi leiðbeiningar og framkvæmd er ekki samræmd. Líta þarf til reglna um Landeignaskrá Þjóðskrár Íslands sem gildi tóku sl. sumar.
- Ekki komið til AlþingisS-27/2021· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 29. jan. 2021 – 11. feb. 2021· 4 umsagnir
Óskipt sameign að jörðum, reglur um ákvörðunartöku o.fl.
Áformað er að lögfesta reglur varðandi sameign að jörðum, einkum í því skyni að auðvelda ákvörðunartöku sameigenda en einnig til þess að skapa úrræði til að koma í veg fyrir að sameigendum fjölgi. Slíkar ráðstafanir eru til þess fallnar að tryggja betri nýtingu lands og leysa úr ágreiningi.
- Ekki komið til AlþingisS-26/2021· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 11. feb. 2021· 1 umsögn
Forkaupsréttur að landi, vernd náttúru og menningararfs
Áformað er að breyta lögum sem fjalla um vernd náttúru og menningararfs þjóðarinnar. Kveðið verði á um heimildir fyrir opinbera aðila til að beita forkaupsrétti að landi þegar sjónarmið um verndun náttúru eða menningararfs kalla á slíkt inngrip, svo unnt sé að stýra þar aðgengi, nýtingu og uppbyggingu innviða.
- Ekki komið til AlþingisS-23/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 5. feb. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga nr. 15/2016.
Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að stytta biðtíma hjá Fangelsismálastofnun.
- Ekki komið til AlþingisS-22/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. jan. 2021 – 8. feb. 2021· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.)
Frumvarp til laga um breytingar á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.).
- Ekki komið til AlþingisS-21/2021· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. jan. 2021 – 9. feb. 2021· 8 umsagnir
Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu
Með þingsályktunartillögunni leggur heilbrigðisráðherra til að sett verði á stofn þverfaglegt landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Landsráðinu er ætlað að vera ráðgefandi starfseining sem vinnur að undirbúningi ákvarðana fyrir heilbrigðisráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu.
- Ekki komið til AlþingisS-12/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2021 – 29. jan. 2021· 2 umsagnir
Áform um breytingu á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990 (fyrirkomulag tryggingagjalds).
Í fyrirhuguðu frumvarpi verður að finna breytingar sem varða endurskoðun á fyrirkomulagi tryggingagjaldsins og hlutdeild vinnumarkaðssjóðanna og almannatrygginga í gjaldinu.
- Ekki komið til AlþingisS-11/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 15. jan. 2021 – 4. feb. 2021· 20 umsagnir
Drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis
Með frumvarpinu eru innleiddar Evróputilskipanir sem ætlað er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis í því skyni að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs og draga úr myndun hans.
- Ekki komið til AlþingisS-7/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2021 – 22. jan. 2021· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (starfshættir kærustjórnvalda)
Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, og lögum um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 21/1994.
- Ekki komið til AlþingisS-1/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. jan. 2021 – 20. jan. 2021· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (byggingastarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.).
Áformað er að leggja til breytingar á lögum um virðisaukaskatt er varða byggingastarfsemi og almenningssamöngur. Auk þess er lagt til að endurskoðun fari fram á uppgjörstímabilum virðisaukaskatts o.fl.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)