Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-214/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um mannvirki.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Markmið frumvarpsins er að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að mannvirkjagerð, gera byggingareftirlit markvisst og áhættumiðað. Þá er frumvarpinu ætlað að straumlínulaga og samþætta ferla og bæta upplýsingagjöf með starfrænum umsóknum og umsýslu í mannvirkjaskrá HMS. Markmið breytinganna er því að fækka byggingargöllum og styrkja neytendavernd. Lagt er til að mannvirkjum verði skipt í þrjá áhættuflokka og að leyfisskylda og umfang eftirlits taki mið af þeirri flokkun. Mannvirki í áhættuflokki A verði undanþegin byggingarleyfi en skráningarskyld. Mannvirki í áhættuflokki B verði byggingarleyfisskyld og háð innra eftirliti hönnuða og iðnmeistara. Mannvirki í áhættuflokki C verði byggingarleyfisskyld og háð bæði innra og ytra eftirliti. Flokkunin verði nánar útfærð í reglugerð. Byggingarstjórakerfið verði lagt niður og ábyrgð verkeigenda, hönnuða og iðnmeistara skýrð. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) beri ábyrgð á áhættumiðuðu ytra eftirliti með mannvirkjum í áhættuflokki C fram að öryggisúttekt og geti falið skoðunarstofum sem fengið hafa starfsleyfi stofnunarinnar framkvæmd þess. Gerðar verði sérstakar kröfur um óhæði skoðunarstofa, hæfni starfsmanna og gæðastjórnunarkerfi þeirra. Byggingarfulltrúar annist áfram útgáfu byggingarleyfa, lokaúttektir, eftirlit frá öryggisúttekt að lokaúttekt og beitingu þvingunarúrræða þegar við á. Þá sinni byggingarfulltrúar einnig eftirliti með þegar byggðum mannvirkjum. Til að styrkja neytendavernd er lagt til að lögfest verði notkunareftirlit með íbúðarhúsnæði í áhættuflokki C sem fari fram annars vegar einu ári og hins vegar fimm árum eftir öryggisúttekt. Tilgangur eftirlitsins er að greina tímanlega frávik í mikilvægum byggingarhlutum og kerfum og fyrirbyggja tjón. Þá verði umsóknir, leyfisveitingar og gögn um eftirlit varðveitt í rafrænni mannvirkjaskrá HMS. Samhliða eru lagðar til breytingar á lögum um brunavarnir, meðal annars um áhættumiðað eldvarnaeftirlit, starfsleyfi ábyrgðarmanna vegna heitrar vinnu á byggingarstað og kröfur til þjónustuaðila brunavarna. Óskað er eftir umsögnum um frumvarpsdrögin.

S-214/2026· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Til umsagnar· frestur 20. okt. 2026 – 3. nóv. 2026· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um mannvirki.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-214/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. nóvember 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Rafn Einarsson
    Það sem mér finnst athugunarvert er að HMS sé orðið það stórt að stærðin sé orðin fyrir í vinnu þeirri sem á að vinnast og að ekkert opinbert fyrirtæki eigi að vera eins stórt og starfsmenn þess óska sér, þar sem maður vísar á annann sem svo aldrei er við tilað gefa staðfestar yfirlýsingar um einstaka mál. Dæmi : Ég kærði byggingarstjóra til HMS og eftir að hafa ítrekað kæruna tvisvar var hringt í mig tvisvar og sagt að ég væri einfaldlega bara leiðinlegur og erfiður verkkaupi samkvæmt byggingarstjóranum sem er verið að kæra og þal. yrði ekki tekið mark á því sem ég fer fram á þeas. að by… Lesa alla

    Það sem mér finnst athugunarvert er að HMS sé orðið það stórt að stærðin sé orðin fyrir í vinnu þeirri sem á að vinnast og að ekkert opinbert fyrirtæki eigi að vera eins stórt og starfsmenn þess óska sér, þar sem maður vísar á annann sem svo aldrei er við tilað gefa staðfestar yfirlýsingar um einstaka mál. Dæmi : Ég kærði byggingarstjóra til HMS og eftir að hafa ítrekað kæruna tvisvar var hringt í mig tvisvar og sagt að ég væri einfaldlega bara leiðinlegur og erfiður verkkaupi samkvæmt byggingarstjóranum sem er verið að kæra og þal. yrði ekki tekið mark á því sem ég fer fram á þeas. að byggingarstjórinn missti sín réttindi, ég krafðist þess að fá þetta skriflegt en var hafnað, spurningin er þá hvert á að kæra starfsmenn HMS !

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.