Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-213/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013

Drög að breytingum á náttúruverndarlögum um uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum, vernd náttúruminja í hafi og bættum úrræðum vegna ólögmæts utanvegaaksturs.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Markmiðið er að bæta stjórnsýslu og nýtingu fjármuna til náttúruverndar, bregðast við álagi vegna ferðamennsku og styrkja vernd náttúru og menningarminja. Frumvarpið tekur til fjögurra meginþátta. Uppbygging og viðhald innviða á ferðamannastöðum Í frumvarpinu er lagt til að einfalda og bæta fyrirkomulag landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Ákvæði um áætlunina verði færð úr þeim sérlögum sem um hana gilda í náttúruverndarlög. Með breytingunum verði regluverk einfaldað og stuðlað að markvissari uppbyggingu og viðhaldi innviða á ferðamannastöðum í umsjón ríkisaðila, skýrari forgangsröðun og hagkvæmari nýtingu fjármuna. Jafnframt verði ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd áætlunarinnar skýrð og eftirlit með kostnaði og framvindu verkefna styrkt. Landtaka á friðlýstum svæðum Lagt er til að settar verði skýrar og samræmdar reglur um landtöku farþega af skemmtiferða- og leiðangursskipum á friðlýstum svæðum. Slík landtaka verði háð leyfi Náttúruverndarstofnunar og unnt verði að laga umfang hennar og framkvæmd að aðstæðum á hverju svæði. Markmiðið er að vernda viðkvæma náttúru, stuðla að öryggi farþega og taka tillit til upplifunar annarra gesta. Jafnframt er stefnt að því að tryggja rekstraraðilum skýrara og fyrirsjáanlegra ferli. Friðlýsing og friðun í hafi Lagt er til að skýra heimildir til friðlýsingar og friðunar í hafi og laga orðalag einstakra ákvæða laganna betur að vernd náttúruminja á hafsvæðum. Faglegur undirbúningur verði styrktur með því að samráð við Hafrannsóknastofnun verði einnig lögbundið við undirbúning friðunar í hafi. Jafnframt verði málsmeðferð skýrð þannig að í stað samráðs við ráðherra sjávarútvegsmála verði leitað álits hans. Markmiðið er að stuðla að markvissari vernd og skilvirkari afgreiðslu mála með skýrri verkaskiptingu stjórnvalda. Úrræði vegna utanvegaaksturs Lagt er til að styrkja enn frekar úrræði stjórnvalda til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri og draga úr náttúruspjöllum af hans völdum. Náttúruverndarstofnun verði heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum náttúruspjöllum vegna slíks aksturs og krefja þann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar. Jafnframt fái lögregla afmarkaða heimild til tímabundinnar haldlagningar ökutækja til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll. Þá verði viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði.

S-213/2026· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Til umsagnar· frestur 20. okt. 2026 – 10. nóv. 2026· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013

Drög að breytingum á náttúruverndarlögum um uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum, vernd náttúruminja í hafi og bættum úrræðum vegna ólögmæts utanvegaaksturs.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-213/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. nóvember 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Gísli Birgir Gíslason
    Mér finnst það þurfi að vera vel merkt hvaða slóða má aka og það sé inni á öllum kortum, GPS tækjum, Google Maps. Skýra þarf betur heimildir landeigenda sem ítrekað hafa lokað slóðum sem og gömlum þjóðleiðum sem fólk hefur ferðast um áratugum saman. Viðurlög vegna eignaspjalla og landskemmda þurfa að vera þannig að það bítur. Heimildir um hverskonar tæki má nota á slóðum og viðkvæmum vegum hálendis þarf að skýra því augljóst er að ferðamenn eru að koma með það stór aldrifs tæki sem eru allt of þung fyrir okkar hálendisvegi og slóða og valda gríðarlegum skemmdum. Mér finnst að allir íslendinga… Lesa alla

    Mér finnst það þurfi að vera vel merkt hvaða slóða má aka og það sé inni á öllum kortum, GPS tækjum, Google Maps. Skýra þarf betur heimildir landeigenda sem ítrekað hafa lokað slóðum sem og gömlum þjóðleiðum sem fólk hefur ferðast um áratugum saman. Viðurlög vegna eignaspjalla og landskemmda þurfa að vera þannig að það bítur. Heimildir um hverskonar tæki má nota á slóðum og viðkvæmum vegum hálendis þarf að skýra því augljóst er að ferðamenn eru að koma með það stór aldrifs tæki sem eru allt of þung fyrir okkar hálendisvegi og slóða og valda gríðarlegum skemmdum. Mér finnst að allir íslendingar eigi að fá frípassa á allar náttúruperlur Íslands, rökin eru þau að annars hætta íslendingar að ferðast um eigið land

  • #2Jón Hafsteinn Haraldsson
    Alveg er ég sammála þessum nýju skaðabóta reglum upp að vissu marki ef þær verða til og þá meina ég ef skaði verður af akstrinum. Að skemma náttúruna okkar á aldrei að líðast og á að taka hart á því. En nú þarf líka aðeins að staldra við og fara ekki offari í þessum málum hafa það skýrt sanngjarnt og rétt Ekki einhverja geðþótta ákvarðanir lögreglu og eftirlitsaðila reglurnar þurfa að vera alveg 100% skýrar til að vinna eftir. Er verið að keyra í ógrónum sandi eða möl. Eða í fjörum ofl eins og stöðum þar sem engin er að valda tjóni á nátúrunni og er ekki að skemma eða valda skaða. Þetta þarf… Lesa alla

    Alveg er ég sammála þessum nýju skaðabóta reglum upp að vissu marki ef þær verða til og þá meina ég ef skaði verður af akstrinum. Að skemma náttúruna okkar á aldrei að líðast og á að taka hart á því. En nú þarf líka aðeins að staldra við og fara ekki offari í þessum málum hafa það skýrt sanngjarnt og rétt Ekki einhverja geðþótta ákvarðanir lögreglu og eftirlitsaðila reglurnar þurfa að vera alveg 100% skýrar til að vinna eftir. Er verið að keyra í ógrónum sandi eða möl. Eða í fjörum ofl eins og stöðum þar sem engin er að valda tjóni á nátúrunni og er ekki að skemma eða valda skaða. Þetta þarf að vera alveg skýrt og viðurlögin og sektir í samræmi við brotið. En að gera ökutæki upptæk og hafa atvinnuna af fólki og brjóta niður heilu fjölskyldurnar. Eða láta svo 3 aðila bera skaðann eins og þann sem lánar bílinn eða bílaleiguna eða fyrirtækið sem á bílinn það er bara það er bara ekki rétt eða málefnalegt, þessir aðilar hafa ekkert gert af ser Og hvað er Vegslóði ? Moldarslóði ? Malarslóði ? Fjallaslóði ? Gróin slóði ? Gamall eða nýr slóði Frosin jörð ofl ofl ?. Þarna þarf að hafa reglurnar alveg skýrar og hvað er verið að valda miklu tjóni og sekta þá í samræmi við tjónið og ekki sekta nema að hafi orðið tjón en ekki einhverjir duttlungar og geðþótta ákvarðanir eftirlitsaðila

  • #3Laufey Guðmundsdóttir

    Höfn 27 oktober 2026 Mál nr. S-213/2026 Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 Til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins Efni: Umsögn um frumvarp um úrræði vegna utanvegaaksturs er í fylgiskjali.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.