Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-210/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 26. október 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 42 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (42)
- #1Valgerður Stefánsdóttir
1. Kennarar í fremstu röð – aukin gæði kennslu. Til þess að nemendur með tvítyngi íslensks táknmáls og íslensku að móðurmáli hafi kennara með góðan bakgrunn í því sem þeir kenna þarf að gera kröfu um færni kennara í íslensku táknmáli og kunnáttu í kennslu nemenda með tvítyngi. 2. Stórsókn í útgáfu námsgagna – fjölbreytt og vönduð námsgögn. Hefa þarf stórsókn í útgáfu námsefnis á íslensku táknmáli fyrir börn sem stefnt er að því að verði tvítyngd á íslenskt táknmál og íslensku. Nú eru til aðeins 9 "bækur" á íslensku táknmáli fyrir öll skólastig og allar námsgreinar. 3. Stuðningur strax – öru… Lesa alla
1. Kennarar í fremstu röð – aukin gæði kennslu. Til þess að nemendur með tvítyngi íslensks táknmáls og íslensku að móðurmáli hafi kennara með góðan bakgrunn í því sem þeir kenna þarf að gera kröfu um færni kennara í íslensku táknmáli og kunnáttu í kennslu nemenda með tvítyngi. 2. Stórsókn í útgáfu námsgagna – fjölbreytt og vönduð námsgögn. Hefa þarf stórsókn í útgáfu námsefnis á íslensku táknmáli fyrir börn sem stefnt er að því að verði tvítyngd á íslenskt táknmál og íslensku. Nú eru til aðeins 9 "bækur" á íslensku táknmáli fyrir öll skólastig og allar námsgreinar. 3. Stuðningur strax – öruggt og inngildandi skólasamfélag. Öruggt og inngildandi skólasamfélag þarf að fela í sér íslenskt táknmálsumhverfi þar sem börn geta tileinkað sér íslenskt táknmál á náttúrulegan hátt. Ég bendi á Þingsályktun um málstefnu íslensks táknmáls 2024-2027 og aðgerðaráætlun sem samþykkt var á Alþingi í mars 2024. Þar kemur fram: Í A hluta II kafla málstefnunnar lið 6 segir að menntastefna stjórnvalda hverju sinni stuðli að jafnri stöðu íslensks táknmáls og íslensku. Í allri aðgerðaráætlun menntastefnunnar þarf að huga að jafnri stöðu íslensks táknmáls og íslensku. Í III kafla aðgerðaáætlunar málstefnu ÍTM 2024-2027 lið 2 er tiltekin ábyrgð mennta- og barnamálaráðuneytis á að stuðla að markvissri samþættingu þjónustu í þágu farsældar táknmálsbarna í samstarfi við sveitarfélög og aðra rekstraraðila skóla. Þetta vantar alveg. Í lið 3 kemur fram að ráðuneyti ásamt sveitarfélögum beri ábyrgð á að fram fari markvisst eftirlit með námi og kennslu táknmálsbarna í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Þetta eftirlit vantar alveg. Í lið 4 stendur að mennta- og barnamálaráðuneyti beri ábyrgð á að við reglubundna endurskoðun á aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla verði gerðar viðeigandi breytingar til að styrkja stöðu íslensks táknmáls. Huga þarf að styrkingu íslensks táknmáls í aðgerðaráætlun menntastefnunnar. Í lið 10 kemur fram ábyrgð ráðuneytis á að tryggja að táknmálstalandi nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum njóti náms og kennslu við hæfi. Kennurum og öðru starfsfólki skóla og skólaþjónustu verði tryggð viðeigandi starfsþróun, stuðningur og hafi möguleika á sérhæfingu. Á meðan nemendur sem eiga að verða tvítyngdir á íslenskt táknmál og íslensku hafa kennara sem ekki er gerð krafa á um kunnáttu í íslensku táknmáli er hægt að færa rök fyrir því að íslenskt táknmál sé bannað. Viðhengt er bréf til menntamálaráðherra.
- #2Félag heyrnarlausra
Umsögn Félags heyrnarlausra um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 Félag heyrnarlausra fagnar því að lögð sé áhersla á að efla gæði menntunar, bæta námsárangur, styrkja námsgagnagerð og tryggja að börn fái stuðning í samræmi við þarfir sínar. Félagið telur þó verulegan annmarka á drögunum að íslenskt táknmál og þarfir barna og ungmenna sem reiða sig á íslenskt táknmál til náms og samskipta eru nær ósýnileg í aðgerðaáætluninni. Íslenskt táknmál er ekki sérúrræði heldur sjálfstætt tungumál. Samkvæmt 3. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenskt… Lesa alla
Umsögn Félags heyrnarlausra um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 Félag heyrnarlausra fagnar því að lögð sé áhersla á að efla gæði menntunar, bæta námsárangur, styrkja námsgagnagerð og tryggja að börn fái stuðning í samræmi við þarfir sínar. Félagið telur þó verulegan annmarka á drögunum að íslenskt táknmál og þarfir barna og ungmenna sem reiða sig á íslenskt táknmál til náms og samskipta eru nær ósýnileg í aðgerðaáætluninni. Íslenskt táknmál er ekki sérúrræði heldur sjálfstætt tungumál. Samkvæmt 3. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenskt táknmál fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta og barna þeirra. Stjórnvöldum ber að hlúa að málinu og styðja það. Í 5. gr. sömu laga kemur jafnframt fram að ríki og sveitarfélög skuli stuðla að þróun, rannsóknum, kennslu og útbreiðslu íslensks táknmáls og styðja við menningu, menntun og fræðslu þeirra sem reiða sig á málið. Félagið telur því nauðsynlegt að íslenskt táknmál verði sýnilegt þvert á þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu, sérstaklega þar sem fjallað er um málþroska og læsi, námsgögn, inngildingu, námsmat og námsárangur. 1. Sérstök aðgerð um íslenskt táknmál og táknmálstalandi börn Í drögunum er í aðgerð 3.3 fjallað um aukinn stuðning við börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Sú aðgerð snýr fyrst og fremst að börnum af erlendum uppruna, íslensku sem öðru máli, móttöku nýkominna barna og mati á færni þeirra í íslensku. Félag heyrnarlausra telur ekki rétt að fella börn sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál undir þann hóp. Um er að ræða ólíkar forsendur, ólíka stöðu og ólíkar skyldur stjórnvalda. Íslenskt táknmál hefur sérstaka lagalega stöðu sem fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Menntun táknmálstalandi barna þarf því að byggjast á málréttindum þeirra og tryggja að þau hafi raunverulegan aðgang að menntun, málumhverfi, kennslu, námsgögnum og námsmati á íslensku táknmáli. Félag heyrnarlausra leggur því til að bætt verði við sjálfstæðri aðgerð undir kaflanum „Stuðningur strax – öruggt og inngildandi skólasamfélag“, sem gæti til dæmis borið heitið: „Stuðningur við börn sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál.“ Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja samfellu í menntun táknmálstalandi barna frá leikskóla til framhaldsskóla, aðgang þeirra að fullnægjandi íslensku táknmálsumhverfi og að þau fái kennslu, stuðning, námsgögn og námsmat sem tekur mið af málréttindum þeirra og þörfum. Í aðgerðinni verði meðal annars kveðið á um: • aðgang barna að íslensku táknmálsumhverfi og málfyrirmyndum, • reglubundið mat á málþroska og námsframvindu með viðeigandi matstækjum, • aðgengi að fagfólki með þekkingu á íslensku táknmáli og menntun táknmálstalandi barna, • samfellu milli skólastiga, • aðgang að námsgögnum á íslensku táknmáli, • og skýra ábyrgð ríkis og sveitarfélaga á framkvæmdinni. Félagið leggur jafnframt til að Félag heyrnarlausra, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og sérfræðingar á sviði íslensks táknmáls og menntunar táknmálstalandi barna verði skilgreind sem samstarfsaðilar við útfærslu og framkvæmd aðgerðarinnar. 2. Námsgögn á íslensku táknmáli verði hluti af stórsókn í námsgögnum Í öðrum meginþætti áætlunarinnar er boðuð „stórsókn í námsgögnum – fjölbreytt og vönduð námsgögn“. Félag heyrnarlausra vekur athygli á því að hvergi er þar sérstaklega kveðið á um námsgögn á íslensku táknmáli. Þetta er sérstaklega athyglisvert þar sem í fyrri aðgerðum menntastefnu til 2030 var sérstaklega lögð áhersla á að auka gæði, fjölbreytni og aðgengi að náms- og kennslugögnum, meðal annars með námsgögnum á táknmáli. Mikilvægt er að sú áhersla tapist ekki við áframhaldandi innleiðingu menntastefnunnar. Námsefni á íslensku táknmáli þarf að þróast samhliða öðru námsefni en ekki eftir á. Þegar nýtt námsefni er þróað í íslensku, stærðfræði, náttúrugreinum og öðrum kjarnagreinum þarf frá upphafi að gera ráð fyrir námsefni á íslensku táknmáli. Félagið leggur því til að sett verði sérstakt markmið og mælikvarði um þróun og framboð námsgagna á íslensku táknmáli og að námsefni á íslensku táknmáli verði sérstaklega tekið inn í miðlæga stafræna námsgagnaveitu. 3. Námsárangur táknmálstalandi nemenda verði sýnilegur í mælikvörðum Í aðgerðaáætluninni er mikil áhersla lögð á PISA, Matsferil og aðra mælikvarða til að greina stöðu nemenda og grípa tímanlega til aðgerða. Félag heyrnarlausra telur mikilvægt að sama áhersla sé lögð á að greina stöðu nemenda sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál. Fyrirliggjandi upplýsingar um námsárangur þessa litla nemendahóps, meðal annars niðurstöður PISA þar sem unnt er að greina nemendur eftir tungumálabakgrunni, gefa að mati félagsins ástæðu til að skoða stöðuna sérstaklega og grípa til markvissra aðgerða. Smæð hópsins má ekki leiða til þess að hann hverfi úr tölfræði, mælikvörðum og stefnumótun. Tryggja þarf að hægt sé að fylgjast með námsárangri, málþroska, líðan og námsframvindu táknmálstalandi nemenda með aðferðum sem taka mið af tungumáli þeirra og aðstæðum, án þess að persónugreinanlegar upplýsingar séu birtar. Jafnframt þarf að tryggja að námsmat sé viðeigandi fyrir nemendur sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál og að niðurstöður séu ekki túlkaðar án tillits til tungumáls og námsaðstæðna nemenda. 4. Samráð við íslenska táknmálssamfélagið verði tryggt Félag heyrnarlausra gerir einnig athugasemd við að ekki verði séð af drögunum að fulltrúar íslenska táknmálssamfélagsins eða sérfræðingar á sviði íslensks táknmáls hafi verið sérstaklega kallaðir að borðinu við undirbúning aðgerðaáætlunarinnar. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þar sem fjölmargar aðgerðir áætlunarinnar snerta beint málþroska, læsi, námsgögn, námsmat, inngildingu og rétt barna til menntunar við hæfi. Félagið leggur til að Félag heyrnarlausra, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og Málnefnd um íslenskt táknmál verði höfð með í áframhaldandi samráði og útfærslu þeirra aðgerða sem varða tungumál, læsi, námsgögn, námsmat og inngildingu. Einnig verði tryggt að fulltrúar íslenska táknmálssamfélagsins komi að undirbúningi nýrrar menntastefnu sem hefjast á árið 2027. Samantekt Markmið menntastefnunnar er að hvert barn nái betri árangri og búi við meiri farsæld. Til þess að það markmið nái raunverulega til allra barna þarf íslenskt táknmál og staða táknmálstalandi barna að vera sýnileg í aðgerðaáætluninni. Félag heyrnarlausra leggur því til að áður en þriðja aðgerðaáætlunin verður lögð fram verði: 1. bætt við sjálfstæðri aðgerð um börn sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál, aðskildri frá aðgerð 3.3 um börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, 2. sett skýr markmið um þróun og framboð námsgagna á íslensku táknmáli, 3. tryggt að námsmat, árangursmælingar og eftirfylgd nái með viðeigandi hætti til nemenda sem hafa íslenskt táknmál sem fyrsta mál, 4. og tryggt formlegt samráð við Félag heyrnarlausra, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og Málnefnd um íslenskt táknmál við útfærslu og framkvæmd viðeigandi aðgerða. Íslenskt táknmál er hluti af íslensku menntakerfi og íslensku málsamfélagi. Menntun barna sem reiða sig á íslenskt táknmál þarf því að vera sjálfstæður og sýnilegur þáttur í stefnumótun menntakerfisins en ekki felld undir aðra nemendahópa sem búa við allt aðrar málfræðilegar og menntunarlegar forsendur. Fyrir hönd Félags heyrnarlausra Heiðdís Dögg Eírksdóttir formaður
- #3Hilmar Hilmarsson
Athugasemdir við grein 1.8. Endurskoðun viðmiðunarstundaskrár. Þar segir: „Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla verði tekin til endurskoðunar með aukinni áherslu á kennslutíma í íslensku, íslensku sem öðru tungumáli, stærðfræði og náttúrufræði.“ Ekki kemur fram þarna á kostnað hvaða greina á að auka vægi ofangreindra námsgreina en þeirri spurningu verður að svara. Í greinargerðarkafla draganna segir þó: „Jafnframt þarf að standa vörð um fjölbreytni skólastarfs, þar á meðal list- og verkgreinar og val nemenda á unglingastigi.“ Af þessu virðist mega ráða að ekki verði lagt til að fækka stundum í l… Lesa alla
Athugasemdir við grein 1.8. Endurskoðun viðmiðunarstundaskrár. Þar segir: „Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla verði tekin til endurskoðunar með aukinni áherslu á kennslutíma í íslensku, íslensku sem öðru tungumáli, stærðfræði og náttúrufræði.“ Ekki kemur fram þarna á kostnað hvaða greina á að auka vægi ofangreindra námsgreina en þeirri spurningu verður að svara. Í greinargerðarkafla draganna segir þó: „Jafnframt þarf að standa vörð um fjölbreytni skólastarfs, þar á meðal list- og verkgreinar og val nemenda á unglingastigi.“ Af þessu virðist mega ráða að ekki verði lagt til að fækka stundum í list- og verkgreinum né heldur skerða þann tíma sem ætlaður er til valgreina. Hvað stendur þá eftir? Erlend tungumál, samfélagsgreinar, skólaíþróttir og upplýsinga- og tæknimennt. Hvar skyldu menn telja niðurskurð valda minnstum skaða? Því hefur verið haldið fram að enskukunnátta íslenskra barna og unglinga sé með miklum ágætum. Í því ljósi liggur ef til vill beinast við að fækka tímum sem varið er til enskukennslu. Það myndi þó aldrei duga til ef auka á kennslu í þeim greinum sem hér um ræðir að einhverju ráði. Eðlilegast þætti mér að fækka valtímum nemenda. Val er vissulega eftirsóknarvert af mörgum ástæðum sem ég hirði ekki að tilgreina hér en hvergi á byggðu bóli mun valfrelsi á unglingastigi meira en á Íslandi. Aftur á móti vil ég vara sérstaklega við að horft verði til samfélagsgreina í þessu sambandi, einkum sögukennslu. Hún er nú þegar orðin ískyggilega lítil bæði í grunn- og framhaldsskólum. Helst hefði ég viljað sjá sögu á lista yfir þær greinar sem til stendur að veita meira vægi.
- #4Anna Magnea Hreinsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Félags um menntarannsóknir.
- #5BTR ehf.
Umsögn BTR ehf. um aðgerð 5.5 BTR ehf. fagnar aðgerð 5.5 og styður hana eindregið. Í þágu gagnsæis: BTR er fyrirtæki með aðsetur á Akureyri. Við unnum með ráðuneytinu og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að tilraunaverkefni skólaárið 2025-2026 um gervigreindarverkfæri fyrir kennara, og við myndum fagna því að fá hlutverk í þessu starfi. Almenn samstaða er um að kennarar fái ekki þann stuðning sem þeir þurfa varðandi gervigreind. Tilraunaverkefnið sýndi hve mikill áhuginn er: yfir 700 umsóknir bárust. Lítið miðlægt teymi, eins og lagt er til í 5.5, getur tryggt að sá áhugi skili sér. Við h… Lesa alla
Umsögn BTR ehf. um aðgerð 5.5 BTR ehf. fagnar aðgerð 5.5 og styður hana eindregið. Í þágu gagnsæis: BTR er fyrirtæki með aðsetur á Akureyri. Við unnum með ráðuneytinu og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að tilraunaverkefni skólaárið 2025-2026 um gervigreindarverkfæri fyrir kennara, og við myndum fagna því að fá hlutverk í þessu starfi. Almenn samstaða er um að kennarar fái ekki þann stuðning sem þeir þurfa varðandi gervigreind. Tilraunaverkefnið sýndi hve mikill áhuginn er: yfir 700 umsóknir bárust. Lítið miðlægt teymi, eins og lagt er til í 5.5, getur tryggt að sá áhugi skili sér. Við höfum eina tillögu. Í aðgerðum 5.3 og 5.4 er stefnt að því að greining og undirbúningur ákvörðunar liggi fyrir í árslok 2026. Við hvetjum til þess að sama gildi um 5.5, svo teymið geti hafið störf árið 2027 samkvæmt skilgreindu umboði. Eins og fram kemur í áætluninni krefst aðgerðin viðbótarfjárveitingar; samstarfsaðilar úr háskólum, sveitarfélögum og atvinnulífi gætu tekið þátt í kostnaði við þann undirbúning. Við tökum undir áherslu áætlunarinnar á íslenskt mál, réttindi barna og jafnan aðgang, og á samfellu fyrir kennara sem hafa tekið þátt í fyrri þróunarverkefnum. Við deilum fúslega reynslu okkar af tilraunaverkefninu með ráðuneytinu, MMS og Háskóla Íslands. Virðingarfyllst, Josh Klein, fyrir hönd BTR ehf.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.