Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-206/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um bókhald (ný heildarlög)

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um bókhald sem leysa af hólmi lög nr. 145/1994, um bókhald. Gildandi lög voru sett árið 1994 og hefur umhverfi bókhalds tekið verulegum breytingum frá þeim tíma. Færsla og varðveisla bókhalds fer nú að meginstefnu fram með rafrænum hætti, bókhaldsgögn eru í auknum mæli varðveitt í skýjaþjónustu og notkun rafrænna reikninga, sjálfvirkra gagnaskipta og þjónustu þriðja aðila hefur aukist. Markmið frumvarpsins er að færa ákvæði bókhaldslaga til samræmis við breytta framkvæmd og tækniþróun á sviði bókhalds. Lagt er til að meginreglur um rafrænt bókhald, sem nú er að hluta til mælt fyrir um í reglugerð nr. 505/2013, verði lögfestar og að orðalag og uppbygging laganna taki mið af því að bókhald og bókhaldsgögn eru almennt á rafrænu formi. Jafnframt er lagt til að skýrðar verði reglur um ábyrgð á bókhaldi, færslu og leiðréttingu bókhaldsfærslna, bókhaldsgögn, varðveislu og aðgengi að þeim og gerð ársreikninga þeirra aðila sem ekki falla undir lög um ársreikninga. Frumvarpið er í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja, stafvæðingu og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera. Frumvarpið felur ekki í sér innleiðingu EES-gerða en við undirbúning þess var horft til laga um bókhald í nágrannalöndum Íslands. Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.

S-206/2026· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Til umsagnar· frestur 14. okt. 2026 – 28. okt. 2026· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um bókhald (ný heildarlög)

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-206/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.