Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-201/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (skilvirkni og tryggingarvernd)

Frumvarpinu er ætlað að auka skilvirkni og styrkja vernd innstæðueigenda, m.a. þegar um er að ræða tímabundið háar innstæður vegna tiltekinna lífsviðburða.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Frumvarpsdrögin eru í tveimur hlutum. Annars vegar er um að ræða breytingar á lögum um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta og hins vegar innleiðingu á evrópugerðum. Um er að ræða eftirfarandi breytingar á lögum um innstæðutryggingar: 1. Innlánsstofnunum verði gert skylt að auðkenna tryggingarhæfar innstæður í sínum upplýsingakerfum. 2. Sjóðurinn geti krafið innlánsstofnanir, lífeyrissjóði og vörsluaðila lífeyrissparnaðar um upplýsingar um innstæðueigendur og tryggingarhæfar innstæður hvers eiganda. 3. Fjármálaeftirlitið fær heimild til að gera kröfur um úrbætur ef þeirri skyldu sem fram kemur í liðum i) og ii) er ekki sinnt og jafnframt til að leggja á dagsektir ef ekki er orðið við kröfu um úrbætur innan fjögurra vikna. 4. Tryggingarvernd verði aukin vegna innstæðna sem hafa fallið til vegna kaupa eða sölu á íbúðarhúsnæði einstaklinga til eigin nota, verndin geti orðið allt að jafnvirði 1.000.000 evra í íslenskum krónum í allt að sex mánuði frá því innstæða féll til. 5. Tryggingarvernd verði aukin vegna innstæðna sem fallið hafa til vegna eftirfarandi lífsviðburða; hjúskapar, lögskilnaðar, starfsloka, örorku og andláts. Sama gildi um innstæður sem fallið hafa til vegna greiðslu vátryggingabóta og greiðslu bóta vegna líkamstjóns af völdum refsiverðar háttsemi eða vegna ranga sakfellingu. Hin aukna tryggingarvernd geti orðið allt að jafnvirði 500.000 evra í íslenskum krónum í allt að sex mánuði frá því innstæða féll til. 6. Frestur Fjármálaeftirlitsins til að veita álit á því hvort aðildarfyrirtæki er fært um að inna af hendi greiðslu á andvirði tryggðrar innstæðu, verðbréfa eða reiðufjár verði styttur úr þremur vikum að hámarki niður í að það eigi að liggja fyrir eins fljótt og auðið er í tilviki verðbréfa og að hámarki innan fimm virka daga í tilviki innstæðna. 7. Skilgreiningu á innstæðu verði breytt á þann veg að heildsöluinnlán verði með skýrum hætti felld undir hugtakið, afmarkað verði hvenær innlánsleið lífeyrissparnaðar teljist innstæða og hvað þurfi til að peningamarkaðsinnlán teljist innstæða. 8. Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja fái auknar heimildir til lántöku vegna innstæðudeildarinnar og veðsetningar eigna deildarinnar vegna útgreiðslu úr henni. 9. Ráðherra fái auknar heimildir til að setja nánari ákvæði um framkvæmd laganna í reglugerð m.a. um heimild Tryggingasjóðs vegna fjármálafyrirtækja til að framkvæma álagspróf um skyldu innlánsstofnana til að auðkenna innstæður og um skyldu aðila á fjármálamarkaði til að veita sjóðnum upplýsingar um innstæðueigendur og innlán. 10. Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja verði heimil vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem nauðsynlegar eru vegna innstæðutrygginga. Þá eru breytingar gerðar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til að innleiða tvær EES-gerðir. Reglugerð (ESB) 2023/662 og reglugerð (ESB) 2024/895 breyta reglugerð (ESB) 2015/63 sem innleidd er með tilvísunaraðferð í lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Reglugerðirnar mæla fyrir um breytingu á útreikningum varðandi framlög í skilasjóð. Skilasjóður hefur verið fullfjármagnaður frá stofnun og er ekki gert ráð fyrir breytingu á því.

S-201/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. okt. 2026 – 23. okt. 2026· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (skilvirkni og tryggingarvernd)

Frumvarpinu er ætlað að auka skilvirkni og styrkja vernd innstæðueigenda, m.a. þegar um er að ræða tímabundið háar innstæður vegna tiltekinna lífsviðburða.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-201/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.