Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda (hámarkslánstími verðtryggðra lána)
Áformað er að leggja fram frumvarp sem kveður á um að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði 25 ár og takmarki jafnframt veitingu lána með sambærilegum greiðsluferli.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-199/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. október 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
- #1Jón Frímann Jónsson
Það ætti að leggja niður og banna öll ný verðtryggð lán. Verðtryggingin er sá þáttur sem er að búa til þráláta verðbólgu í íslensku hagkerfi og veldur stöðugri rýrnun á íslensku krónunni. Það breytir engu þó svo að verðtryggð lán sé breytt í 25 ár eða önnur takmörk sett á slík lán. Það er einfaldast að banna öll ný slík lán og ráðast í aðgerðir til þess að breyta núverandi verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán og losa þannig lántakendur að slíkum lánum úr þeim vanda sem þeir eru í dag. Þegar verðtryggingin er að fullu horfin úr íslensku hagkerfi. Þá lækkar verðbólgan og stýrivextir á sama tím… Lesa alla
Það ætti að leggja niður og banna öll ný verðtryggð lán. Verðtryggingin er sá þáttur sem er að búa til þráláta verðbólgu í íslensku hagkerfi og veldur stöðugri rýrnun á íslensku krónunni. Það breytir engu þó svo að verðtryggð lán sé breytt í 25 ár eða önnur takmörk sett á slík lán. Það er einfaldast að banna öll ný slík lán og ráðast í aðgerðir til þess að breyta núverandi verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán og losa þannig lántakendur að slíkum lánum úr þeim vanda sem þeir eru í dag. Þegar verðtryggingin er að fullu horfin úr íslensku hagkerfi. Þá lækkar verðbólgan og stýrivextir á sama tíma. Þangað til að það verður gert mun ekkert breytast á Íslandi á íslenskum lánamarkaði og í íslensku hagkerfi.
- #2Ásgeir Guðmundur Daníelsson
Svo virðist sem helsta (og eiginlega eina) röksemdin fyrir því að banna eigi verðtryggingu fjárskuldbindinga til lengri tíma en 25 ára sé að „25 ára hámarkslánstími tryggir að höfuðstóll verðtryggðra lána hækkar ekki að nafnvirði á neinu 12 mánaða tímabili á lánstímanum miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá bönkum og lífeyrissjóðum undanfarin 10 ár (3,5%) þegar verðbólga er við verðbólgumarkmið (2,5%).“ Þetta er rétt ef verið er að tala um jafngreiðslulán en þetta er ekki rétt ef verið er að tala um verðtryggt lán með jöfnum afborgunum. Líkur á að nafnvirði höfuðstóls (eftirstöðva)… Lesa alla
Svo virðist sem helsta (og eiginlega eina) röksemdin fyrir því að banna eigi verðtryggingu fjárskuldbindinga til lengri tíma en 25 ára sé að „25 ára hámarkslánstími tryggir að höfuðstóll verðtryggðra lána hækkar ekki að nafnvirði á neinu 12 mánaða tímabili á lánstímanum miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá bönkum og lífeyrissjóðum undanfarin 10 ár (3,5%) þegar verðbólga er við verðbólgumarkmið (2,5%).“ Þetta er rétt ef verið er að tala um jafngreiðslulán en þetta er ekki rétt ef verið er að tala um verðtryggt lán með jöfnum afborgunum. Líkur á að nafnvirði höfuðstóls (eftirstöðva) jafngreiðslulána hækki eru mestar fyrsta mánuðinn þegar höfuðstóllinn er stærstur, vaxtahluti greiðslunnar er stærstur og afborgunarhlutinn því minnstur. Ef höfuðstóll lánsins lækkar að nafnvirði eftir fyrstu mánaðargreiðsluna og verðbólgan helst við 2,5% gildir það sama um allar greiðslurnar. Ef við miðum við jafngreiðslulán sem upphaflega er 1.000.000 kr. og sömu forsendur og eru í tilvitnuninni fæst að nafnvirði höfuðstóls lánsins eftir fyrstu greiðslu og uppfærslu á nafnvirðinu m.v. hækkun vísitölu neysluverðs um 2,5% á ári (0,206% á mánuði) verður 999.966 kr. Nafnvirði höfuðstólsins lækkar þannig um 34 kr. Ef við lengjum lánstímann úr 25 árum í 26 ár verður nafnvirði eftirstöðvanna eftir fyrstu mánaðargreiðslu og verðlagsuppfærslu 1.000.086 kr., þ.e. hækkun um 86 kr. Af hverju er þessi munur talinn skynsamleg röksemd fyrir því að lögfesta hámark lánstíma verðtryggðra fasteignalána við 25 ár? Jafnvel þótt við berum það traust til Seðlabankans að verðbólgan sveiflist í kringum 2,5% markmiðið í framtíðinni er ósennilegt að verðbólgan verði alltaf nákvæmlega 2,5%. Ef verðlagsleiðréttingin eftir fyrstu mánaðargreiðslu af verðtryggðu jafngreiðsluláni tekur mið af 2,6% árshækkun verðlags hækkar nafnvirði höfuðstóls láns sem upphaflega var 1.000.000 kr. í 1.000.047 kr. Hækkun nafnvirðisins verður 1.177 kr. ef verðbólgan er við efri mörk verðbólgumarkmiðsins sem er 4,0%. Ef við miðum við verðtryggt lán með jöfnum afborgunum (að raunvirði) verður afborgunin (og greiðslan) eftir fyrsta mánuðinn hærri en í tilfelli og jafngreiðslulánsins. Ef miðað er við sömu forsendur og í Mál nr. S-199/2026, lán upp á 1.000.000 kr., jafnar afborganir og lán til 40 ára verður nafnvirði höfuðstólsins eftir fyrsta mánuðinn 999.972 kr., en ef lánið er til 41 árs verður nafnvirði höfuðstólsins eftir fyrsta mánuðinn 1.000.023 kr. Eru það ekki jafngild rök fyrir því að miða hámarks lánstíma verðtryggðra lána við 40 ár? Hér á landi er verðtrygging fjárskuldbindinga útbreiddari en í öðrum sambærilegum ríkjum (hún finnst þó í flestum þróuðum ríkjum, t.d. er í flestum ríkjum gefin út verðtryggð ríkisskuldabréf jafnframt óverðtryggðum m.a. til að nota mismun ávöxtunar á slíkum bréfum til að mæla verðbólguvæntingar á fjármálamarkaði. Í íslenskum lögum eru líka meir af ákvæðum sem takmarka hvernig verðtryggja megi fjárskuldbindingar, t.d. við hvað megi miða í skilmálum um verðtryggingu. Í 14 grein laga um vexti og verðtryggingu (nr. 38/2001) er skilmerkilega tilgreint að miða megi við vísitölu neysluvöruverðs sem Hagstofan reiknar og svo er bætt við að „þó (er) heimilt að miða við hlutabréfavísitölu, innlenda eða erlenda, eða safn slíkra vísitalna sem ekki mæla breytingar á almennu verðlagi.“ Hagkvæmni viðmiða fyrir verðtryggingu fjárskuldbindinga er mismunandi eftir því í hvaða stöðu aðilarnir eru. Í einhverjum tilfellum kann að vera hagkvæmast að miða við verðvísitölu neysluverðs, í öðrum við launavísitölu, fasteignavísitölu eða einhverja gengisvísitölu eða markaðsverð á einhverri tiltekinni vöru. Ég held að það væri æskilegt að auka möguleika fyrir fólk að velja viðmiðun fyrir verðtryggingu. Í þessu samhengi er rétt að minna á að verðtrygging fjárskuldbindinga er aðferð til að draga úr óvissu varðandi raunávöxtun og greiðslubyrði vegna ófyrirsjáanlegrar verðbólgu. Þessi óvissa er meiri ef lánstíminni er langur og þess vegna verður hagkvæmni verðtryggingar meiri eftir því sem lánstíminn er lengri. Peningaglýja (e. money illusion) felst í því að (hag)aðilar í hagkerfinu ruglast á nafnvirði og raunvirði fjárhæða. Sumir ruglast á hækkun nafnlauna og hækkun raunlauna og sumir ruglast á nafnvöxtum og raunvöxtum þar sem búið er að draga frá verðbólguþátt nafnvaxta. Það er mikilvægt að stjórnvöld sýni í verki að slík glýja takmarkar ekki sýn þeirra á efnahagsmál.
- #3Almenni - Lífsverk lífeyrissjóður
Meðfylgjandi er umsögn Almenna - Lífsverks lífeyrissjóðs.
- #4Már Wolfgang Mixa
Meðfylgjandi er umsögn mín um áform um 25 ára hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána. Ég leggst gegn áformunum. Rökstuðningurinn byggir á 2,5% verðbólgu, sem hefur sjaldan náðst hér á landi. Byrðarnar lenda mest á tekjulægri og skuldsettari heimilum. Fullyrðingin um að verðtrygging veiki miðlun peningastefnunnar stenst ekki greiningu Seðlabankans sjálfs. Raunverulegi galli verðtryggðra húsnæðislána liggur í viðmiðinu, vísitölu neysluverðs, en ekki í lánstímanum. Nær væri að skoða tengingu við húsnæðisverð. Nánari rökstuðning og heimildir er að finna í viðhengi. Már Wolfgang Mixa
- #5Steinunn Jóhanna Pálsdóttir
Ég mæli ekki með að stytta 40 ára verðtryggð lán í 25 ár heldur í 30 ár og líta á það sem áfanga í ferlinu að stytta lánið. Sé sérstaklega að með teknu tilliti til hærri greiðslubyrði sem tekjulægri ættu eflaust í vændræðum að standa undir. Jafnframt lýsi ég mig andvíga því að miða verðtryggingu lána við vísitölu neysluverðs. Það er fáranlegt á sama tíma og útgjöld heimilis hækka, að sú hækkun (neysluverðsvístitölu) verði líka til hækkunar á höfuðstól lánsins. Þetta er tvöföld hegning. Það er nóg að takast á við verðlags hækkanir að það sé ekki klínt á lánin líka. Það er fáranlegt um þessar m… Lesa alla
Ég mæli ekki með að stytta 40 ára verðtryggð lán í 25 ár heldur í 30 ár og líta á það sem áfanga í ferlinu að stytta lánið. Sé sérstaklega að með teknu tilliti til hærri greiðslubyrði sem tekjulægri ættu eflaust í vændræðum að standa undir. Jafnframt lýsi ég mig andvíga því að miða verðtryggingu lána við vísitölu neysluverðs. Það er fáranlegt á sama tíma og útgjöld heimilis hækka, að sú hækkun (neysluverðsvístitölu) verði líka til hækkunar á höfuðstól lánsins. Þetta er tvöföld hegning. Það er nóg að takast á við verðlags hækkanir að það sé ekki klínt á lánin líka. Það er fáranlegt um þessar mundir þegar eldsneytisverð hefur rokið upp að það skuli leiða til hækkunar á höfuðstól verðtryggðra íbúðalána. Þetta undirstrikar fáranleika notkunar neysluverðsvísitölu á lánamarkaði. Lærðir menn hafa stungið upp á að miða verðtryggingu lána ekki við neysluverðs vísitölu heldur við vísitölu húsnæðisverðs. Mikið skynsamlegra væri að miða við vísitölu húsnæðisverðs. Þá hagnast báðir, eigandi og lánveitandinn þegar húsnæðisverð hækkar eins og reynslan hefur sýnt að oftast gerist hérlendis, eða alltaf. Standi húsnæðisverð í stað nýtur lánveitandinn vaxtanna og eigandinn er ekki kaffærður í höfðustólshækkunum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.