Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-198/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)

Lagðar eru til breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum vegna skipulagsbreytinga lögreglunnar sem hafa það meginmarkmið að styrkja og efla lögregluna í heild.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Tilefni frumvarpsins er að laga skipulag lögreglunnar að breyttu umhverfi og skapa sterkari faglegar forsendur fyrir löggæslu um land allt. Lögreglan stendur frammi fyrir nýjum og krefjandi verkefnum, m.a. vegna aukinnar skipulagðrar brotastarfsemi, netbrota, fjölþáttaógna og almannavarna, sem krefjast sérhæfðrar þekkingar, aukinnar samhæfingar og faglegrar samlegðar ásamt skilvirkri nýtingu mannafla og fjármuna. Með frumvarpinu eru lagðar til umfangsmiklar breytingar sem miða að því að styrkja faglega og rekstrarlega getu lögreglunnar, einfalda stjórnskipulag og skýra verkaskiptingu innan lögreglunnar, sem og að efla getu hennar til að sinna verkefnum sem í auknum mæli kalla á sérhæfingu, samhæfingu og samstarf. Um er að ræða umfangsmestu breytingarnar á skipulagi lögreglunnar í rúman áratug. Samkvæmt núgildandi lögreglulögum skiptist landið í níu lögregluumdæmi sem hvert um sig heyrir undir sjálfstæðan lögreglustjóra. Embættin eru mjög ólík að stærð, mannafla og verkefnasamsetningu. Fámennari embætti þurfa þó, rétt eins og þau stærri, að viðhalda ákveðinni grunngetu til löggæslu, rannsókna, viðbragðs og stjórnunar. Lögreglan gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri þjónustu við almenning um allt land, m.a. með útkallsþjónustu, samfélagslöggæslu, forvarnastarfi og samstarfi við sveitarfélög og aðra opinbera aðila. Nauðsynlegt er að skipulag lögreglunnar styðji bæði við þessa staðbundnu þjónustu og getu hennar til að sinna umfangsmiklum og sérhæfðum verkefnum. Lagt er til að núverandi níu lögregluembætti verði sameinuð í þrjú embætti. Með þessari skipan verða til þrjú staðbundin embætti lögreglu með meiri faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega burði. Stærri embætti skapa aukið svigrúm til að jafna verkefnaálag, færa mannafla tímabundið eftir þörfum og byggja upp sérhæfð fagteymi. Þau skapa jafnframt betri skilyrði fyrir þekkingaruppbyggingu og faglegu samstarfi og styrkja rannsóknargetu hvers umdæmis vegna flókinna og umfangsmikilla mála. Með skipulagsbreytingunum skapast jafnframt betri forsendur til að samnýta stoðþjónustu, samræma verklag og innkaup, einfalda stjórnun og nýta sameiginleg kerfi. Markmiðið er að draga eftir föngum úr tvíverknaði og skapa með tímanum aukið svigrúm til að einblína á kjarnaverkefni lögreglu. Með breytingunum verður hvorki starfsfólki lögreglu né starfsstöðvum fækkað. Markmiðið er að styrkja og efla lögregluna í heild með aukinni faglegri getu, umbótum og skilvirkni við löggæslu. Til að styðja við dreifða stjórnun er jafnframt lagt til að fleiri en einn aðstoðarlögreglustjóri verði skipaðir við hvert embætti, til viðbótar stjórnendateymi lögregluembættanna. Þannig verður unnt að dreifa stjórnunarlegri og faglegri ábyrgð innan hinna stærri umdæma og staðsetja stjórnendur á fleiri en einum stað. Aðeins sá aðstoðarlögreglustjóri sem gegnir stöðu staðgengils lögreglustjóra þarf að uppfylla sérstök skilyrði um lögfræðimenntun, en aðrir aðstoðarlögreglustjórar geta komið úr röðum lögreglumenntaðra stjórnenda. Sérstök áhersla er lögð á að landsbyggðarembættin tvö verði nægilega öflug til að byggja upp eigin sérhæfingu, rannsóknargetu og stjórnunarlega getu. Með því er leitast við að dreifa ábyrgð, sérþekkingu og störfum innan lögreglu. Samhliða breytingum á lögregluumdæmunum er lagt til að hlutverk ríkislögreglustjóra verði skýrt betur. Embættinu verður áfram ætlað að sinna landsbundinni forystu, samhæfingu og sameiginlegri þjónustu lögreglunnar, meðal annars á sviði innkaupa, upplýsingamála og tækni, greininga, alþjóðasamstarfs, öryggismála og samræmingar. Dagleg stjórn löggæslu og ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan hvers umdæmis verður áfram hjá þremur lögreglustjórum, ásamt aðstoðarlögreglustjórum og öðrum stjórnendum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tiltekin sérhæfð verkefni verði unnin fyrir lögregluna í heild hjá einu embætti. Á það meðal annars við um verkefni þar sem þörf er á sérstökum búnaði, aðstöðu, reynslu eða nægilegu verkefnamagni til að viðhalda sérþekkingu. Jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra geti falið einu eða fleiri lögregluembættum önnur afmörkuð verkefni á landsvísu. Við slíka ákvörðun er sérstaklega horft til þess að landsbyggðarembættin tvö geti tekið að sér landsbundin verkefni og byggt þar með upp sérhæfingu og störf sem þjóna lögreglunni í heild. Gert er ráð fyrir að hin nýju lögregluembætti taki til starfa 1. janúar 2028. Frá samþykkt laga og fram að gildistöku þeirra verður unnið að stofnun nýrra lögregluembætta. Starfsfólk núverandi lögregluembætta færist til hinna nýju embætta við gildistöku laganna. Í heild er með frumvarpinu leitast við að sameina kosti stærri og öflugri rekstrareininga annars vegar og áframhaldandi staðbundinnar löggæslu hins vegar. Markmiðið er að lögreglan hafi aukna getu til sérhæfingar og samvinnu, geti nýtt mannafla og sérþekkingu með sveigjanlegri hætti og starfað í auknum mæli sem ein heild þegar verkefni kalla á það, án þess að ábyrgð á daglegri löggæslu eða staðbundin nærvera lögreglu breytist.

S-198/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. okt. 2026 – 25. okt. 2026· 34 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)

Lagðar eru til breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum vegna skipulagsbreytinga lögreglunnar sem hafa það meginmarkmið að styrkja og efla lögregluna í heild.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-198/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 34 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (34)
  • #1Örn Ægir Reynisson
    Umsögn um mál nr. 4345 í Samráðsgátt stjórnvalda Til: Dómsmálaráðuneytisins Efni: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum – skipulagsbreytingar hjá lögreglu Dagsetning: 9. október 2026 1. Inngangur – eftirlit og ábyrgð áður en lögregluvald er samþjappað Undirritaður gerir alvarlegar athugasemdir við að ráðast eigi í umfangsmikla endurskipulagningu lögreglunnar án þess að samhliða sé gerð ítarleg, sjálfstæð úttekt á virkni eftirlits með lögreglu, rannsóknarskyldu, meðferð kvartana, ábyrgð stjórnenda og réttarúrræðum borgaranna. Frumvarpið gerir rá… Lesa alla

    Umsögn um mál nr. 4345 í Samráðsgátt stjórnvalda Til: Dómsmálaráðuneytisins Efni: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum – skipulagsbreytingar hjá lögreglu Dagsetning: 9. október 2026 1. Inngangur – eftirlit og ábyrgð áður en lögregluvald er samþjappað Undirritaður gerir alvarlegar athugasemdir við að ráðast eigi í umfangsmikla endurskipulagningu lögreglunnar án þess að samhliða sé gerð ítarleg, sjálfstæð úttekt á virkni eftirlits með lögreglu, rannsóknarskyldu, meðferð kvartana, ábyrgð stjórnenda og réttarúrræðum borgaranna. Frumvarpið gerir ráð fyrir fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, aukinni miðlægri upplýsingavinnslu og breyttri verkaskiptingu. Slíkar breytingar geta haft rekstrarlegan ávinning en skapa jafnframt hættu á samþjöppun stjórnunarvalds og veikingu innra aðhalds ef sjálfstætt ytra eftirlit er ekki eflt til samræmis. Það verður að gera skýran greinarmun á því að efla lögregluna sem stofnun og því að tryggja að lögreglan starfi samkvæmt lögum, rannsaki kærur með hlutlægum hætti og sæti raunhæfu eftirliti. 2. Athugasemdir við 2. gr. – innra eftirlit ríkislögreglustjóra Samkvæmt frumvarpinu verður innra eftirlit áfram starfrækt innan embættis ríkislögreglustjóra, þótt yfirmaður þess skuli vera sjálfstæður í störfum. Hér vaknar grundvallarspurning um stofnanalegt sjálfstæði. Þegar kvörtun eða kæra beinist að ríkislögreglustjóra, öðrum yfirmönnum lögreglu eða ákvörðunum þeirra verður að tryggja að rannsókn og eftirlit fari ekki fram undir stjórn eða innan sömu stjórnsýslueiningar og kvörtunin beinist að. Lagt er til að lögfest verði sérstök málsmeðferð við slíkar aðstæður, þar sem sjálfstæður utanaðkomandi aðili hafi heimild til að afla gagna, kanna ákvarðanir og meta hvort rannsóknarskyldu hafi verið fullnægt. 3. Athugasemdir við 13. gr. – meðferð kvartana og rökstuðningsskylda Í frumvarpinu er lagt til að nefnd um eftirlit með lögreglu geti metið á fyrri stigum hvort kvörtun gefi nægt tilefni til frekari meðferðar. Þótt skilvirkni sé lögmætt markmið má hún ekki leiða til þess að einstaklingar sem bera fram alvarlegar kvartanir fái ekki fullnægjandi upplýsingar um ástæður þess að mál þeirra eru ekki tekin til frekari skoðunar. Lagt er til að lögfest verði: 1. Skylda til skriflegrar og rökstuddrar niðurstöðu þegar kvörtun er ekki tekin til frekari meðferðar. 2. Sérstök skylda til að varðveita frumgögn sem tengjast kvörtun. 3. Skýr leið til endurskoðunar ákvarðana nefndarinnar. 4. Sérstök málsmeðferð þegar kvörtun beinist að stjórnendum lögreglu eða varðar mögulega hindrun rannsóknar. 4. Rafræn gögn, aðgangsskrár og rekjanleiki Samkvæmt 2. gr. frumvarpsins er ríkislögreglustjóra falið miðlægt hlutverk við rekstur upplýsingakerfa, gagnagrunna, skráningu og miðlun upplýsinga. Þessi breyting kallar á skýrar öryggis- og eftirlitsreglur. Tryggja þarf að hægt sé að rekja hver skráir, skoðar, breytir, flytur eða eyðir upplýsingum í kerfum lögreglu. Sérstaklega þarf að tryggja varðveislu og sjálfstæða úttekt á: * Aðgangsskrám og auðkenningarferlum. * Breytingasögu málaskráa. * Skráningu ákvarðana um rannsókn, stöðvun hennar eða niðurfellingu. * Móttöku, afhendingu og varðveislu rafrænna sönnunargagna. * Fyrirmælum stjórnenda sem kunna að hafa áhrif á rannsókn sakamála. Óháður eftirlitsaðili verður að geta fengið aðgang að frumskrám og tæknilegum rekjanleikagögnum án þess að þurfa eingöngu að byggja á samantektum þeirra aðila sem eftirlitið beinist að. 5. Athugasemdir við 14. gr. – upplýsingar um kærur gegn lögreglustarfsmönnum Frumvarpið gerir ráð fyrir að sá sem skipar í embætti fái upplýsingar um móttöku kæru á hendur lögreglustarfsmanni vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi. Slík upplýsingagjöf getur verið réttmæt vegna ábyrgðar á starfsmannamálum. Hins vegar verður að tryggja að upplýsingar um kærur séu ekki notaðar til að hafa áhrif á sjálfstæða rannsókn, hafa samband við vitni með óviðeigandi hætti eða torvelda gagnaöflun. Lagt er til að sérstaklega verði mælt fyrir um vernd rannsóknarhagsmuna, hæfisreglur og skráningu þess hver fær upplýsingar um kærur og hvenær. 6. Athugasemdir við 10. gr. – hæfi og starfsferill lögreglumanna Í frumvarpinu er gert ráð fyrir reglulegri athugun á hæfi lögreglumanna og heimild til miðlunar upplýsinga um starfsferil þeirra milli lögregluembætta. Þetta getur styrkt faglegt aðhald. Hins vegar þarf að tryggja að upplýsingar um alvarlegar, skjalfestar athugasemdir við starfshætti og mögulega vanrækslu starfsskyldna glatist ekki við sameiningu embætta eða flutning starfsmanna. Einnig þarf að tryggja að slíkar upplýsingar séu áreiðanlegar, að starfsmenn njóti andmælaréttar og að óstaðfestar ásakanir séu ekki meðhöndlaðar sem sannaðar staðreyndir. 7. Bráðabirgðaákvæði – skipun lögreglustjóra án auglýsingar Frumvarpið gerir ráð fyrir forgangi núverandi lögreglustjóra við skipun í ný embætti og undanþágu frá auglýsingaskyldu. Þessi ráðstöfun þarfnast sérstakrar skoðunar út frá jafnræði, málefnalegum sjónarmiðum og gagnsæi. Lagt er til að fyrir skipun í ný embætti liggi fyrir skjalfest og málefnalegt hæfismat, þar sem meðal annars sé tekið tillit til staðfestra niðurstaðna eftirlitsaðila um starfshætti, stjórnunarlega ábyrgð og rækslu starfsskyldna. 8. Stjórnarskrárbundin réttindi og mannréttindasáttmáli Evrópu Í greinargerð frumvarpsins er því haldið fram að breytingarnar kalli ekki á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Undirritaður telur að sú niðurstaða sé ekki nægilega rökstudd. Sérstaklega þarf að skoða áhrif breytinganna með hliðsjón af: * 65. gr. stjórnarskrárinnar um jafnræði. * 70. gr. stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð. * 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs. * 6., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, eftir því hvaða réttindi og málsatvik eiga við. Jafnframt þarf að meta hvort breytingar á aðgangi að gögnum, meðferð kvartana og eftirliti með lögreglu tryggi raunhæf og virk réttarúrræði. 9. Óháð úttekt á rannsóknarskyldu og mögulegri spillingu Áður en breytingarnar taka gildi er lagt til að gerð verði sjálfstæð úttekt á meðferð kvartana og kæra sem beinast að lögreglu og stjórnendum hennar. Sérstaklega verði skoðað: * Hvort kærur um ætlaða refsiverða háttsemi lögreglustarfsmanna hafi verið sendar réttum rannsóknaraðila. * Hvort ákvarðanir um að rannsaka ekki mál hafi verið rökstuddar með fullnægjandi hætti. * Hvort gögn hafi verið varðveitt og skráð samkvæmt lögum. * Hvort fyrirmæli stjórnenda hafi haft óeðlileg áhrif á rannsóknir. * Hvort fyrirliggjandi eftirlitskerfi geti með sjálfstæðum hætti rannsakað mögulega spillingu eða misbeitingu valds innan lögreglu. Úttektin verði framkvæmd af aðilum sem eru sjálfstæðir gagnvart þeim embættum og stjórnendum sem sæta skoðun. 10. Niðurstaða og kröfur Undirritaður telur að ekki eigi að samþykkja frumvarpið óbreytt án þess að fyrst verði tekin rökstudd afstaða til framangreindra athugasemda. Þess er sérstaklega óskað að dómsmálaráðuneytið: 1. Leggi fram sjálfstætt mat á áhrifum frumvarpsins á réttindi borgaranna. 2. Tryggi raunverulegt stofnanalegt sjálfstæði rannsókna á ætluðum brotum innan lögreglu. 3. Styrki rökstuðningsskyldu og réttarúrræði kvartenda. 4. Lögfesti fullnægjandi varðveislu og óháða úttekt á rafrænum rannsóknar- og aðgangsgögnum. 5. Tryggi gagnsætt hæfismat við skipun stjórnenda nýrra lögregluembætta. 6. Láti framkvæma óháða úttekt á virkni eftirlits með lögreglu áður en ný embættaskipan tekur gildi. Grundvallarreglan verður að vera sú að aukinni stjórnsýslulegri samþjöppun lögregluvalds fylgi að minnsta kosti jafnöflugt, sjálfstætt og gagnsætt eftirlit. Eitt atriði myndi ég sérstaklega skoða áður en umsögnin er send: Í 13. gr. frumvarpsins er beinlínis lagt til að kvartandi eigi ekki rétt á aðgangi að tilteknum gögnum hjá eftirlitsnefndinni. Þetta, ásamt auknu svigrúmi nefndarinnar til að ljúka kvörtunum án ítarlegrar rökstuddrar afstöðu, er mjög mikilvægt að fá skýrt og afmarkað í endanlegri umsögn. Örn Ægir Reynisson kt1312612929

  • #2Örn Ægir Reynisson
    Viðbótarumsögn – mál nr. 4345 Efni: Pólitískt sjálfstæði lögreglu, rannsóknarákvarðanir, ábyrgð stjórnenda og varnir gegn hefndaraðgerðum Vísað er til fyrri umsagnar undirritaðs frá 9. október 2026 vegna frumvarps til breytinga á lögreglulögum nr. 90/1996. Undirritaður telur nauðsynlegt að vekja sérstaka athygli á því að fyrirhugaðar skipulagsbreytingar lögreglunnar þurfa að tryggja sjálfstæði hennar gagnvart ómálefnalegum pólitískum afskiptum. 1. Sjálfstæði lögreglu gagnvart stjórnmálavaldinu Í 2. gr. frumvarpsins er fjallað um hlutverk ríkislögreglustjóra, meðal annars við að miðla boðu… Lesa alla

    Viðbótarumsögn – mál nr. 4345 Efni: Pólitískt sjálfstæði lögreglu, rannsóknarákvarðanir, ábyrgð stjórnenda og varnir gegn hefndaraðgerðum Vísað er til fyrri umsagnar undirritaðs frá 9. október 2026 vegna frumvarps til breytinga á lögreglulögum nr. 90/1996. Undirritaður telur nauðsynlegt að vekja sérstaka athygli á því að fyrirhugaðar skipulagsbreytingar lögreglunnar þurfa að tryggja sjálfstæði hennar gagnvart ómálefnalegum pólitískum afskiptum. 1. Sjálfstæði lögreglu gagnvart stjórnmálavaldinu Í 2. gr. frumvarpsins er fjallað um hlutverk ríkislögreglustjóra, meðal annars við að miðla boðum og ákvörðunum æðstu handhafa ríkisvaldsins. Þótt ákvæðið byggist að hluta á gildandi lögum er nauðsynlegt að afmarka skýrt muninn á almennri stefnumótun stjórnvalda og afskiptum af einstökum sakamálarannsóknum. Lagt er til að í lögreglulögum verði skýrt tekið fram að ráðherra, aðrir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar geti ekki gefið lögreglu fyrirmæli um að hefja, stöðva, takmarka eða beina rannsókn tiltekins sakamáls að einstaklingi af pólitískum ástæðum. 2. Rannsóknir á ætluðum lögbrotum stjórnmálamanna Tryggja verður að lögreglan geti rannsakað grun um refsiverða háttsemi ráðherra, þingmanna og annarra handhafa opinbers valds án óeðlilegra afskipta þeirra sem fara með pólitískt eða stjórnunarlegt vald. Lagt er til að lögfestar verði sérstakar málsmeðferðartryggingar þegar rannsókn beinist að einstaklingi sem hefur bein eða óbein áhrif á skipun, starfsöryggi eða fjárveitingar þess lögregluembættis sem annast rannsóknina. Slíkar tryggingar þurfa meðal annars að taka til hæfis, sjálfstæðrar rannsóknarstjórnar og skráningar allra samskipta sem kunna að fela í sér tilraunir til ómálefnalegra áhrifa. 3. Varnir gegn pólitískum hefndaraðgerðum Sérstaklega þarf að vernda lögreglumenn, rannsakendur og stjórnendur sem sinna lögbundnum verkefnum sínum í málum er varða stjórnmálamenn eða aðra áhrifamikla aðila. Óheimilt á að vera að beita starfsmenn ómálefnalegum flutningum, brottvikningu, synjun um endurskipun, stöðumissi eða öðrum starfslegum ráðstöfunum vegna þess að þeir hafa sinnt lögmætri rannsókn eða tilkynnt um ætlaða misbeitingu valds. Tryggja þarf sjálfstæða og skilvirka leið til að bera slíkar ákvarðanir undir eftirlit. 4. Skráning fyrirmæla um rannsókn sakamála Lagt er til að allar ákvarðanir og fyrirmæli sem hafa veruleg áhrif á rannsókn sakamáls séu skráð með rekjanlegum hætti. Þetta eigi sérstaklega við um: * Ákvörðun um að hefja eða hefja ekki rannsókn. * Ákvörðun um að stöðva eða takmarka rannsókn. * Fyrirmæli um að tiltekin rannsóknargögn verði ekki könnuð. * Flutning rannsóknar milli embætta eða rannsakenda. * Fyrirmæli stjórnenda sem hafa áhrif á rannsóknarstefnu. * Samskipti við stjórnmálamenn eða aðra utanaðkomandi aðila sem varða einstök sakamál. Skráningin þarf að varðveitast með öruggum hætti og vera aðgengileg þar til bærum sjálfstæðum eftirlits- og rannsóknaraðilum. 5. Innra eftirlit og rannsóknir á stjórnendum lögreglu Innra eftirlit sem starfrækt er innan embættis ríkislögreglustjóra getur ekki eitt og sér komið í stað sjálfstæðrar rannsóknar á ætlaðri refsiverðri háttsemi lögreglustjórnenda. Þegar grunur beinist að yfirmanni lögreglu, eða því er haldið fram að stjórnandi hafi hindrað rannsókn, verður að tryggja að viðkomandi hafi hvorki stjórnunarleg áhrif á rannsóknina né aðgang að henni umfram það sem lög heimila. Lagt er til að lögfest verði skýr skylda til að meta hæfi þeirra sem fara með slíkar rannsóknir og tryggja að þær verði færðar til óháðra og þar til bærra rannsóknaraðila þegar tilefni er til. 6. Sjálfstæði ákvarðana um rannsókn og saksókn Sérstaklega þarf að tryggja að ákvarðanir um rannsókn og saksókn séu teknar samkvæmt lögum og á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Verði rannsókn ekki hafin, henni hætt eða máli vísað frá þarf að vera unnt að rekja lagalegan og efnislegan grundvöll ákvörðunarinnar. Þá verður að tryggja að fyrirliggjandi kæruleiðir samkvæmt lögum um meðferð sakamála séu raunhæfar og að viðeigandi gögn séu varðveitt svo endurskoðun ákvörðunar verði möguleg. 7. Pólitísk tengsl, hagsmunaárekstrar og skipun lögreglustjóra Í bráðabirgðaákvæðum frumvarpsins er gert ráð fyrir að núverandi lögreglustjórar njóti forgangs við skipun í ný embætti og að undanþága verði gerð frá auglýsingaskyldu. Við slíka endurskipulagningu verður sérstaklega að tryggja að skipun stjórnenda byggist á hæfni, starfsreynslu, faglegu sjálfstæði og málefnalegum sjónarmiðum. Lagt er til að sett verði skýr og opinber viðmið um hæfismat og að tryggt verði að pólitísk tengsl eða hollusta við einstaka stjórnmálaflokka hafi ekki áhrif á skipanir, flutninga eða endurskipun stjórnenda. 8. Alþjóðleg viðmið um spillingarvarnir Í ályktun þings Evrópuráðsins um Ísland frá 2018 var meðal annars lögð áhersla á að ráðningar og framgangur innan löggæslustofnana byggðust á gagnsæjum hæfisviðmiðum og væru laus við pólitísk afskipti. Í eftirfylgni GRECO hefur jafnframt verið fjallað um heilindi innan lögreglu, vernd uppljóstrara, ábyrgð æðstu stjórnenda og nauðsyn skýrra viðmiða um ráðningarsamninga. Þessar alþjóðlegu ábendingar þarf að taka sérstaklega til skoðunar við fyrirhugaða endurskipulagningu íslensku lögreglunnar. 9. Niðurstaða Undirritaður leggur til að frumvarpið verði endurskoðað með það að markmiði að tryggja: 1. Skýra lagalega vernd gegn pólitískum afskiptum af einstökum sakamálarannsóknum. 2. Sjálfstæða rannsókn mála sem varða ætlaða refsiverða háttsemi stjórnmálamanna og æðstu stjórnenda lögreglu. 3. Varnir gegn hefndaraðgerðum gagnvart lögreglumönnum sem sinna lögbundnum rannsóknarskyldum sínum. 4. Rekjanleika ákvarðana um rannsókn, stöðvun hennar og meðferð rannsóknargagna. 5. Stofnanalegt sjálfstæði og raunhæfar heimildir eftirlitsaðila. 6. Gagnsæi við skipun og endurskipun lögreglustjóra og annarra stjórnenda. Lögregla í lýðræðisríki verður að vera sjálfstæð gagnvart ólögmætum pólitískum afskiptum en jafnframt lúta lögum, sjálfstæðu eftirliti og lýðræðislegri ábyrgð. Þetta á jafnt við þegar lögregla rannsakar almenna borgara og þegar rannsókn beinist að þeim sem fara með æðsta stjórnmála- eða framkvæmdarvald ríkisins. Örn Ægir Reynisson 9. október 2026

  • #3Ísafjarðarbær

    Meðfylgjandi er umsókn bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, dags. 15. október 2026.

  • #4Örn Ægir Reynisson
    Viðbótarumsögn við mál nr. 4345 – S-198/2026 Til: Dómsmálaráðuneytisins Efni: Grímuklæddar lögregluaðgerðir, vernd barna, auðkenning lögreglumanna og sjálfstæði eftirlits með lögreglu 1. Inngangur Vísað er til fyrri umsagna undirritaðs um fyrirhugaðar breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum. Undirritaður telur sérstaka ástæðu til að gera athugasemdir við skort á skýrum og virkum réttaröryggistryggingum vegna aðgerða óeinkennisklæddra og grímuklæddra lögreglumanna, ekki síst þegar börn verða fyrir slíkum aðgerðum. Nýleg umfjöllun um aðgerðir lögreglu á Suðurnesjum gagnvart 1… Lesa alla

    Viðbótarumsögn við mál nr. 4345 – S-198/2026 Til: Dómsmálaráðuneytisins Efni: Grímuklæddar lögregluaðgerðir, vernd barna, auðkenning lögreglumanna og sjálfstæði eftirlits með lögreglu 1. Inngangur Vísað er til fyrri umsagna undirritaðs um fyrirhugaðar breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 og fleiri lögum. Undirritaður telur sérstaka ástæðu til að gera athugasemdir við skort á skýrum og virkum réttaröryggistryggingum vegna aðgerða óeinkennisklæddra og grímuklæddra lögreglumanna, ekki síst þegar börn verða fyrir slíkum aðgerðum. Nýleg umfjöllun um aðgerðir lögreglu á Suðurnesjum gagnvart 13 ára stúlku sýnir hvers vegna nauðsynlegt er að endurskoða reglur um auðkenningu lögreglumanna, beitingu líkamlegs valds og sjálfstætt eftirlit. 2. Grímuklæddir lögreglumenn og öryggi almennings Þegar lögreglumenn koma á ómerktum bifreiðum, óeinkennisklæddir og með andlit hulin, getur almenningur átt í verulegum erfiðleikum með að greina á milli lögmætra lögregluaðgerða og árása einstaklinga sem þykjast fara með lögregluvald. Slíkt fyrirkomulag getur skapað sérstaka hættu á misskilningi, ótta og átökum. Jafnframt verður að horfa til þeirrar hættu að brotamenn geti líkt eftir aðferðum lögreglu við mannrán, rán eða aðra refsiverða háttsemi. Lagt er til að lögfest verði sú meginregla að lögreglumenn sem beita þvingunarúrræðum skuli auðkenna sig með skýrum og sannreynanlegum hætti eins fljótt og aðstæður leyfa. Undantekningar vegna bráðrar hættu eða sérstakra rannsóknarhagsmuna verði afmarkaðar, rökstuddar og skráðar. 3. Sérstök vernd barna Samkvæmt nýlegri umfjöllun um aðgerðir lögreglu á Suðurnesjum varð 13 ára stúlka fyrir afskiptum grímuklæddra og óeinkennisklæddra lögreglumanna, þótt aðgerðin beindist ekki að henni. Fram hefur komið að stúlkan hafi orðið mjög hrædd og að lögreglumenn hafi ekki gert henni strax ljóst hverjir þeir væru. Slíkt atvik vekur alvarlegar spurningar um nauðsyn, meðalhóf og sérstaka vernd barna við lögregluaðgerðir. Lagt er til að sett verði skýr ákvæði um að: 1. Líkamlegri valdbeitingu gagnvart börnum verði aðeins beitt þegar hún er nauðsynleg og vægari úrræði duga ekki. 2. Lögreglumenn skuli kynna sig og tilgang afskipta með þeim hætti sem barn getur skilið, eins fljótt og öruggt er. 3. Sérstök skylda verði til að skrá og rökstyðja valdbeitingu gagnvart börnum. 4. Foreldrar eða forráðamenn verði upplýstir án ástæðulauss dráttar, með þeim undantekningum sem lög heimila. 5. Óháður eftirlitsaðili fái upplýsingar um alvarlegar þvingunaraðgerðir gagnvart börnum og geti tekið þær til skoðunar að eigin frumkvæði. 4. Annmarkar á eftirliti með lögreglu Í umfjöllun um mál stúlkunnar á Suðurnesjum hefur komið fram að nefnd um eftirlit með lögreglu hafi beint tilmælum til lögreglu um að gæta sérstaklega hagsmuna barna og auðkenningu óeinkennisklæddra lögreglumanna, án þess að telja háttsemi lögreglumannanna ámælisverða. Þetta vekur spurningar um hvort núverandi eftirlitskerfi hafi nægilega skýrar heimildir til að bregðast við alvarlegum ágöllum í framkvæmd lögregluaðgerða. Í 13. gr. fyrirliggjandi frumvarps er jafnframt lagt til að nefndin geti ákveðið á fyrri stigum hvort kvörtun gefi nægt tilefni til frekari meðferðar, án þess að öllum málum þurfi að ljúka með ítarlegri rökstuddri afstöðu. Undirritaður telur að sú breyting verði að skoðast sérstaklega með tilliti til réttaröryggis kvartenda. Eftirlit með lögreglu verður að vera raunhæft, sjálfstætt og þannig úr garði gert að niðurstöður þess geti leitt til sannreynanlegra úrbóta. 5. Sjálfstæð rannsókn og eftirfylgni Lagt er til að nefnd um eftirlit með lögreglu verði veittar skýrari heimildir til að afla frumgagna, kanna misræmi í skýrslum lögreglu og fylgja eftir því hvort tilmælum hennar hafi verið hrint í framkvæmd. Jafnframt verði tryggð sjálfstæð rannsókn hjá þar til bærum rannsóknaraðila þegar rökstuddur grunur vaknar um refsiverða valdbeitingu lögreglumanna. Kveðið verði sérstaklega á um að lögregluembætti þurfi að skila skriflegri og rökstuddri greinargerð um framkvæmd úrbóta innan tiltekins frests þegar eftirlitsnefnd gerir alvarlegar athugasemdir. 6. Gagnsæi og mæling á árangri eftirlits Til þess að almenningur og Alþingi geti metið virkni eftirlitsins þarf að birta reglulegar, ópersónugreinanlegar upplýsingar um starfsemi þess. Þar verði meðal annars gerð grein fyrir fjölda kvartana, afgreiðslutíma, niðurstöðum, tilmælum og því hvort lögregluembætti hafi fylgt þeim eftir. Sérstaklega verði birtar upplýsingar um mál sem varða börn, óeinkennisklæddar lögregluaðgerðir, valdbeitingu og ætlaða vanrækslu á auðkenningarskyldu. 7. Niðurstaða Undirritaður telur að ekki sé nægilegt að efla stjórnskipulag, mannafla og rannsóknargetu lögreglunnar án þess að samhliða séu tryggðar skýrar reglur um valdbeitingu, ábyrgð einstakra lögreglumanna og sjálfstætt eftirlit. Þess er óskað að dómsmálaráðuneytið taki framangreindar athugasemdir til sérstakrar skoðunar við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins. Lögregluvald verður að vera auðþekkjanlegt, lögbundið, hóflegt og rekjanlegt. Eftirlit með því verður að hafa raunverulegt vægi en ekki eingöngu vera formlegt úrræði. Virðingarfyllst, Örn Ægir Reynisson kt1312612929

  • #5Samband sveitarfélaga á Austurlandi

    Hjálögð er umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi..

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.