Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-194/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (ýmsar breytingar)

Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Frumvarp þetta er samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og felur í sér breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018. Reynslan af framkvæmd laganna á undanförnum árum, samhliða aukinni eftirspurn eftir stuðningi, hefur hins vegar leitt í ljós að þörf er á að endurskoða og skýra ýmis ákvæði laganna til að tryggja að markmið þeirra nái fram að ganga. Tilefni þessa frumvarps má rekja til umfangsmikillar greiningar- og stefnumótunarvinnu sem unnin hefur verið á undanförnum árum í samstarfi ríkis, sveitarfélaga, notenda og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Unnar hafa verið skýrslur og tillögur þar sem gerð hefur verið grein fyrir þeim atriðum sem talið er nauðsynlegt að endurskoða eða breyta í gildandi lögum. Hér ber að nefna skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, frá 2022, Áfangaskýrslu II - Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk, frá september 2024, og skýrslu starfshóps um húsnæði við hæfi, Heimili sem styður sjálfstætt líf, frá maí 2026. Þá var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga í desember 2023 um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk á grundvelli svonefndrar Áfangaskýrslu I, en ákvæði samkomulagsins gera ráð fyrir endurskoðun á lögunum. Með frumvarpi þessu er lagt til að ýmsum þeirra tillagna, sem fram hafa komið í áðurnefndum skýrslum, verði hrint í framkvæmd. Frumvarpinu eru þannig ætlað að ná fram fjórum meginmarkmiðum, þ.e. að: 1. Auka gæði, jafnræði og stöðugleika í þjónustu, m.a. með lögfestingu lágmarksstærðar þjónustusvæða og samræmdra staðlaðra matsaðferða á umfangi stuðningsþarfa á landsvísu. 2. Styrkja réttindi og sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks í húsnæðismálum. 3. Efla réttindi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra með þjónustu í nærumhverfi, banni við gjaldtöku fyrir frístundaþjónustu skv. 16. gr. laganna og, eftir því sem við verður komið, vali milli almenns tómstunda- og félagsstarfs og sértæks frístundastarfs. 4. Bæta stjórnsýslu, m.a. með skýrum ákvæðum um meðferð upplýsinga ásamt því að samræma hæfisskilyrði starfsfólks og rekstrarleyfisveitingar að barnaverndarlögum og tryggja virkara samráð við notendur og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um efni frumvarpsins.

S-194/2026· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 6. okt. 2026 – 20. okt. 2026· 25 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (ýmsar breytingar)

Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-194/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Blindrafélagið

    Meðfylgjandi er umsögn Blindrafélagsins

  • #2Reykjavíkurborg

    Meðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar

  • #3Mannréttindastofnun Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Mannréttindastofnunar Íslands.

  • #4Lúðvík Júlíusson
    Ég styð markmið frumvarpsins um þjónustu í nærumhverfi og gjaldfrjálsa frístundaþjónustu fyrir fötluð börn. Athugasemd mín snýst um eitt. Frumvarpið svarar ekki hvernig réttindin ná til barna sem búa á tveimur heimilum og til foreldra þeirra með sameiginlega forsjá. Frumvarpið er skipulagt út frá þeim sem veita þjónustuna. Lögheimili barns ræður hvaða þjónustusvæði ber ábyrgð og líka hver á aðild að máli barnsins. Sveitarfélag hefur sagt eftirlitsstofnun að ekki sé sérstakt verklag um samráð og samstarf vegna þjónustuþarfa barna. Ég bið ráðuneytið að tryggja að báðir forsjárforeldrar fái upp… Lesa alla

    Ég styð markmið frumvarpsins um þjónustu í nærumhverfi og gjaldfrjálsa frístundaþjónustu fyrir fötluð börn. Athugasemd mín snýst um eitt. Frumvarpið svarar ekki hvernig réttindin ná til barna sem búa á tveimur heimilum og til foreldra þeirra með sameiginlega forsjá. Frumvarpið er skipulagt út frá þeim sem veita þjónustuna. Lögheimili barns ræður hvaða þjónustusvæði ber ábyrgð og líka hver á aðild að máli barnsins. Sveitarfélag hefur sagt eftirlitsstofnun að ekki sé sérstakt verklag um samráð og samstarf vegna þjónustuþarfa barna. Ég bið ráðuneytið að tryggja að báðir forsjárforeldrar fái upplýsingar og taki þátt og að þjónustusvæði hafi samráð við báða. Beiðnirnar auka ekki þjónustu umfram metna stuðningsþörf. Barnið á að vera í hjarta kerfisins. Mikilvægustu atriðin - Hagaðilagreiningin skoðaði ekki stöðu barna sem búa á tveimur heimilum. - Drögin gera ekki ráð fyrir þessum börnum þegar þjónusta er metin og veitt. - Forsjá og foreldri koma hvergi fyrir í lagatextanum. - Frumvarpið segir ekki hver kemur fram fyrir barnið. - Lögheimili barns á eingöngu að segja til um hvaða þjónustusvæði ber ábyrgð. - Báðir forsjárforeldrar fái upplýsingar og þátttöku. Ef þeir eru ósammála ákveður lögheimilisforeldri. - Öryggi barnsins gengur fyrir og ákvarðanir eru kæranlegar.

  • #5Karólína Gunnarsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Velferðarsviðs Akureyrarbæjar f.h. þjónustusvæðis um málefni fatlaðs fólks í Eyjafirði.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.