Áform um innleiðingu EES-reglna um tilflutning úrgangs
Áformuð er innleiðing reglugerðar (ESB) 2024/1157 um tilflutning úrgangs, sem tekur til flutnings úrgangs á milli landa.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-192/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. október 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Sigurpáll Ingibergsson
Hellnasker styður innleiðingu reglugerðarinnar en telur mikilvægt að árangur hennar sé mældur. Í áformunum er undir „Mælikvarðar á árangur“ tilgreint „Á ekki við“, þótt reglugerðinni sé ætlað að styðja við hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Sérstaklega þarf að greina á milli samdráttar í íslenska losunarbókhaldinu vegna útflutnings úrgangs og raunverulegs samdráttar í hnattrænni losun. Það sem ekki er mælt er erfitt að stjórna og enn erfiðara að bæta. Nánar er fjallað um tillögur Hellnaskers í meðfylgjandi umsögn.
- #2Staðlaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Staðlaráðs Íslands um áform um innleiðingu rg. (ESB) 2024/1157 vegna tilvísana til staðla í henni.
- #3Gróa Björg Baldvinsdóttir
Umsögn Terra umhverfisþjónustu hf. Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003 (EES-reglur, flutningur milli landa), URN26070081 Terra umhverfisþjónusta hf. styður innleiðingu reglugerðar (ESB) 2024/1157 og leggur áherslu á að hún gangi hratt fyrir sig. Ísland er eyríki og allur útflutningur úrgangs fer sjóleiðis. Íslensk fyrirtæki og sveitarfélög eru háð því að útflutningur til meðhöndlunar erlendis gangi hnökralaust fyrir sig, þar sem varaleiðir innanlands eru fáar eða engar. Undanfarna mánuði hafa orðið verulegar tafir á útfl… Lesa alla
Umsögn Terra umhverfisþjónustu hf. Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003 (EES-reglur, flutningur milli landa), URN26070081 Terra umhverfisþjónusta hf. styður innleiðingu reglugerðar (ESB) 2024/1157 og leggur áherslu á að hún gangi hratt fyrir sig. Ísland er eyríki og allur útflutningur úrgangs fer sjóleiðis. Íslensk fyrirtæki og sveitarfélög eru háð því að útflutningur til meðhöndlunar erlendis gangi hnökralaust fyrir sig, þar sem varaleiðir innanlands eru fáar eða engar. Undanfarna mánuði hafa orðið verulegar tafir á útflutningi vegna þess að erlendir viðtakendur og flutningsaðilar voru ekki skráðir í DIWASS. Í þeim tilvikum var ekki hægt að ljúka umsókn um tilkynningu (notification) í kerfinu fyrr en skráningu var lokið. Algengasta ástæðan er að flutningsaðilar sem tilgreina þarf í umsókn hafa ekki verið skráðir, og eina leiðin til að ljúka umsókninni hefur þá verið að sleppa því að tilgreina þá. Íslenskir rekstraraðilar hafa engin áhrif á hvenær erlendir aðilar ljúka skráningu, en bera engu að síður afleiðingarnar. Til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig, og áður en rafræn skil verða eina leiðin fyrir sendingar samkvæmt Annex VII, leggur Terra til eftirfarandi: • Umhverfis- og orkustofnun gefi út skriflegar leiðbeiningar um framkvæmd flutnings úrgangs í DIWASS, bæði fyrir tilkynningarskyldar sendingar og sendingar samkvæmt Annex VII. Leiðbeiningarnar þurfa jafnframt að ná til tímabilsins fram að gildistöku laganna. • Skýrt verði hvað gera skuli þegar viðtakandi, endurvinnslustöð eða flutningsaðili er ekki skráður í DIWASS. Reglugerðin gerir sjálf ráð fyrir þessari stöðu varðandi endurvinnslustöðvar í 8. og 9. mgr. 18. gr., þar sem staðfesting á móttöku og vottorð um endurvinnslu geta borist í gegnum þann sem skipuleggur sendinguna. Útfæra þarf hvernig það fer fram í kerfinu og hvaða gögn teljast fullnægjandi. Sams konar skýringar þurfa að ná til flutningsaðila sem umsækjandi vill tilgreina í umsókn en hafa ekki verið skráðir í kerfið. • Íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því að það verði viðurkennd aðferð í umsóknarferlinu að umsókn sé send inn án þess að flutningsaðilar sem ekki eru skráðir séu tilgreindir, eða að þeir séu taldir upp í athugasemdum, og að þeim sé bætt formlega við síðar í ferlinu þegar grunnskráningu þeirra í kerfið er lokið. • Sendingar stöðvist ekki eingöngu vegna þess að erlendur aðili er ekki skráður í kerfið, þegar sendingin uppfyllir að öðru leyti skilyrði reglugerðarinnar. • Skýrt verði hvort varaleið sé til staðar, t.d. á pappír, ef aðili er ekki skráður eða kerfið er óaðgengilegt, og hvernig upplýsingar eru þá færðar inn í kerfið eftir á. • Tekið verði tillit til sérstöðu Íslands sem eyríkis. Brottfarir skipa eru tiltölulega fáar og ef sending missir af skipi vegna skráningar eða kerfisvillu getur það tafið hana verulega, með tilheyrandi geymsluþörf og kostnaði. f.h. Terra umhverfisþjónustu Gróa Björg Baldvinsdóttir framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar
- #4Úrvinnslusjóður
Meðfylgjandi er umsögn Úrvinnslusjóðs um áform um innleiðingu EES- reglna um tilflutning úrgangs.
- #5Birgir Ásgeir Kristjánsson
Meðfylgjandi er umsögn Íslenska gámafélagins.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.