Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-190/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Ráðuneytið hefur unnið að greiningu á framkvæmd skipulagslöggjafarinnar og átt víðtækt samráð við hagaðila um húsnæðis- og skipulagsmál, m.a. á vinnustofum og í tengslum við stefnumótunarvinnu í málaflokknum. Hefur sú vinna og reynsla af framkvæmd laganna sýnt að þörf er á að endurskoða skipulagslöggjöfina og aðlaga hana að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem það á við. Í frumvarpinu eru því gerðar tillögur til breytinga á skipulagslögum til að mæta framangreindu. Lagt er til að einfalda, skýra og samræma ákvæði skipulagslaga um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum, m.a. þannig að Skipulagsgátt verði vettvangur fyrir formlega birtingu gagna og móttöku athugasemda og umsagna. Í frumvarpinu er einnig lögð til málsmeðferð varðandi breytingar á gildandi svæðisskipulagi, úrlausn ágreinings um breytingar á svæðisskipulagi og heimild til að fella niður svæðisskipulag að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þá eru lagðar til breytingar til að einfalda tiltekna þætti málsmeðferðar við gerð og breytingar skipulagsáætlana og til að tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi. Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun skipulagslöggjafarinnar og miða að því að tryggja að hún styðji áfram við markmið um sjálfbæra þróun, vandaða skipulagsgerð og góða stjórnsýslu.

S-190/2026· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. okt. 2026 – 16. okt. 2026· 11 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-190/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.