Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-189/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Dvalarleyfi - Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun á V. -X. kafla laganna sem fjalla um útgáfu og skilyrði dvalarleyfa. Samhliða því eru gerðar nauðsynlegar breytingar á öðrum lögum í bandormi.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laga um útlendinga um dvalarleyfi fyrir ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins. Markmið þess er einkum að færa íslenskt regluverk nær því sem gildir á hinum Norðurlöndunum, styrkja auðkenningu umsækjenda og varnir gegn misnotkun kerfisins, skýra skilyrði dvalarleyfa og endurnýjunar þeirra og bæta réttarstöðu þolenda mansals og alvarlegra brota á vinnumarkaði. Lagt er til að auðkenni umsækjanda verði sjálfstætt skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis og að aflað verði andlitsmyndar og fingrafara við umsókn í stað þess að það sé gert við komu útlendings til landsins. Þá verði við tiltekna leyfisflokka lagt einstaklingsbundið mat á hvort líklegt sé að umsækjandi yfirgefi landið að lögmætri dvöl lokinni. Jafnframt eru skilyrði fyrir endurnýjun dvalarleyfa skýrð og samræmd og heimildir stjórnvalda til upplýsingaöflunar vegna eftirlits með skilyrðum styrktar. Veigamiklar breytingar eru lagðar til á skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis. Almennt búsetuskilyrði lengist úr fjórum árum í sex, en sérfræðingar geta áfram fengið ótímabundið leyfi eftir fjögur ár að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Þá bætist við skilyrði um að umsækjandi sé ekki í vanskilum vegna skatta, opinberra gjalda eða sekta. Jafnframt er lagt til að handhafar dvalarleyfa vegna alþjóðlegrar verndar og mannúðarsjónarmiða verði ekki lengur undanþegnir almennu framfærsluskilyrði við umsókn um ótímabundið dvalarleyfi. Reglur um fjölskyldusameiningu eru endurskoðaðar. Foreldrar 67 ára og eldri falla ekki lengur undir almenna skilgreiningu nánustu aðstandenda en geta sótt um sérstakt dvalarleyfi að uppfylltum afmörkuðum skilyrðum, m.a. um knýjandi ástæður, húsnæði og framfærslu. Þá er lagt til húsnæðisskilyrði við fjölskyldusameiningu og skýrari ákvæði um framfærslu. Lagt er til að aldursskilyrði maka og sambúðarmaka verði almennt 24 ár, með tilteknum undanþágum, og að lágmarkstími sambúðar verði lengdur úr einu ári í tvö ár. Markmiðið er m.a. að draga úr hættu á nauðungar- og málamyndahjúskap og færa íslenskar reglur nær norrænu regluverki. Frumvarpið styrkir jafnframt réttarstöðu þolenda. Lagt er til nýtt tímabundið dvalarleyfi, til allt að tólf mánaða, fyrir einstakling sem hefur sætt misneytingu eða alvarlegu broti á vinnumarkaði, svo honum gefist svigrúm til að leita nýs starfs og leita réttar síns. Þá er tryggt að dvöl á grundvelli leyfis vegna mansals rjúfi ekki ávinnslu til ótímabundins dvalarleyfis. Orðalag ákvæða um mansal er jafnframt fært til þolendamiðaðra horfs. Dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir ríkisborgara ríkja utan EES er fellt brott. Þá er lagt til sérstakt dvalarleyfi fyrir þátttakendur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu íslenskra stjórnvalda. Einnig eru gerðar breytingar til einföldunar og samræmingar, m.a. með skýrari reglugerðarheimildum og fækkun opinna undanþáguheimilda. Loks felur frumvarpið í sér breytingar á reglum um dvalarskírteini aðstandenda EES-borgara og vinnslu lífkennaupplýsinga vegna innleiðingar EES-reglna um öryggi skilríkja. Réttur EES- og EFTA-borgara til dvalar og atvinnu hér á landi breytist ekki. Frumvarpið tekur heldur ekki til reglna um veitingu alþjóðlegrar verndar.

S-189/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 1. okt. 2026 – 15. okt. 2026· 65 umsagnir

Dvalarleyfi - Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun á V. -X. kafla laganna sem fjalla um útgáfu og skilyrði dvalarleyfa. Samhliða því eru gerðar nauðsynlegar breytingar á öðrum lögum í bandormi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-189/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 65 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (65)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Eins og með fyrri slíkar tilkynntar breytingar. Þá eru þessar breytingar ekkert nema andúð á útlendingum, ef ekki kerfisbundið stjórnvaldlegt hatur á útlendingum. Þetta lagafrumvarp ætti ekki að leggja fram og það ætti að breyta lögum um útlendinga í samræmi við mannréttindasáttmála sem Ísland er aðild að. Slíkir sláttmálar eru ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld geta valið og hafnað úr. Gildir einu þó svo að útlendingur komi frá ríkjum utan Evrópusambandsins, EES og EFTA. Að vísa í önnur ríki og þá norðurlönd er einnig fáránlegt. Þar sem í þessum ríkjum hafa verið stjórnvöld sem eru jafn mi… Lesa alla

    Eins og með fyrri slíkar tilkynntar breytingar. Þá eru þessar breytingar ekkert nema andúð á útlendingum, ef ekki kerfisbundið stjórnvaldlegt hatur á útlendingum. Þetta lagafrumvarp ætti ekki að leggja fram og það ætti að breyta lögum um útlendinga í samræmi við mannréttindasáttmála sem Ísland er aðild að. Slíkir sláttmálar eru ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld geta valið og hafnað úr. Gildir einu þó svo að útlendingur komi frá ríkjum utan Evrópusambandsins, EES og EFTA. Að vísa í önnur ríki og þá norðurlönd er einnig fáránlegt. Þar sem í þessum ríkjum hafa verið stjórnvöld sem eru jafn mikið að brjóta mannréttindasáttmála sem þau hafa skrifað undir og samþykkt með svipuðum hætti og Ísland gerir tilraun með hérna. Stjórnvöld í þessum ríkjum hafa einnig verið í lengri tíma verið í krafti kosninga stjórnmálaflokkar sem teljast til öfgahægri og jafnvel fasta flokkar sem ganga útá hræðsluáróður gagnvart útlendingum til þess að fela þeirra eigin vanhæfni og vangetu í innanlandsmálum. Það sést á því hvaða stefnum stjórnmálaflokkar raunverulega fylgja þegar það sést hvað þeir gera en ekki hvað þeir segja. Þessu frumvarpi ætti að henda í ruslið og kveikja í því og það ætti aldrei að leggja fram svona frumvarp aftur. Þar sem svona frumvörp eru mannréttindabrot, gegn mannlegri reisn. Eina leiðin til þess að koma réttindamálum í lag er að gera lögin sanngjörn og skapa raunverulega leið til þess að fólk geti flutt til Íslands frá ríkjum utan ESB, EES og EFTA. Núverandi lög gera það nær vonlaust ferli og þessar lagabreytingar bæta það ekki neitt. Í ljósi þessa. Þá ætti dómsmálaráðherra einnig að segja af sér embætti fyrir stórkostlega vanhæfni í starfi og brot á alþjóðlegum samþykktum sem Ísland hefur gengist undir. Á Íslandi er einnig stöðug fólksfækkun, þegar flutningur útlendinga til Íslands er dreginn frá. Þetta hefur verið viðvarandi ástand í áratug núna. Svona lagabreytingar munu einnig auka þessa fólksfækkun á Íslandi ef þetta ógeðfelldar lagafrumvarp verður samþykkt á Alþingi. Flutningur útlendinga til Íslands frá ríkjum sem eru í ESB, EES og EFTA mun einnig væntanlega stöðvast og snúast við á næstu árum með versnandi efnahagsástandi. Þá er ljóst að svona lagafrumvörp eru akkerishæll. Það er einnig ljóst að þetta lagafrumvarp er til þess að þóknast mjög smáum en háværum hópi öfgafólks á Íslandi. Þetta er hópur fólks sem enginn ætti að taka mark á. Hvorki í dag eða nokkurntímann í sögunni.

  • #2Ásmunda Björg Baldursdóttir
    Athugasemd við ákvæði um fjölskyldusameiningu Undirrituð gerir athugasemd við þá afmörkun hugtaksins fjölskyldusameiningar sem felst í frumvarpinu, að því er varðar stöðu barna íslenskra ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri. Af frumvarpinu verður ráðið að barn íslensks ríkisborgara, sem orðið er sjálfráða, geti að meginstefnu ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með þeirri afmörkun virðist löggjafinn leggja til grundvallar að fjölskyldutengsl milli foreldris og barns njóti ekki sömu verndar eftir að barn nær 18 ára aldri, nema sérstakar undantekningar eigi við. Að m… Lesa alla

    Athugasemd við ákvæði um fjölskyldusameiningu Undirrituð gerir athugasemd við þá afmörkun hugtaksins fjölskyldusameiningar sem felst í frumvarpinu, að því er varðar stöðu barna íslenskra ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri. Af frumvarpinu verður ráðið að barn íslensks ríkisborgara, sem orðið er sjálfráða, geti að meginstefnu ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með þeirri afmörkun virðist löggjafinn leggja til grundvallar að fjölskyldutengsl milli foreldris og barns njóti ekki sömu verndar eftir að barn nær 18 ára aldri, nema sérstakar undantekningar eigi við. Að mati undirritaðrar er slík nálgun of fortakslaus. Fjölskyldulíf foreldra og barna lýtur ekki eingöngu að aldri barns heldur einnig eðli og styrkleika fjölskyldutengslanna hverju sinni. Ljóst er að fjölskyldutengsl geta verið mjög náin og raunveruleg þrátt fyrir að barn hafi náð lögræðisaldri, meðal annars þegar fyrir hendi er fjárhagslegt, félagslegt eða tilfinningalegt gagnkvæmt háð eða aðrar sérstakar aðstæður sem réttlæta áframhaldandi samvistir fjölskyldunnar. Réttur til friðhelgi fjölskyldulífs nýtur verndar samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Þótt ríkjum sé játað nokkurt svigrúm til að setja skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu hefur í framkvæmd mannréttindadómstóla verið lögð áhersla á að mat á tilvist og vernd fjölskyldulífs ráðist af raunverulegum aðstæðum en ekki eingöngu formlegum aldursmörkum. Þá vekur athygli að sú skipan sem frumvarpið gerir ráð fyrir getur leitt til þess að íslenskur ríkisborgari eigi ekki kost á að sameinast eigin fullorðnu barni hér á landi, jafnvel þótt fyrir hendi séu sterk og verndunarverð fjölskyldutengsl. Slík niðurstaða kallar að mati undirritaðrar á nánari rökstuðning og mat á meðalhófi. Af framangreindu tilefni er lagt til að endurskoðuð verði skilgreining þeirra aðila sem geta fallið undir fjölskyldusameiningu. Að lágmarki ætti að vera fyrir hendi sérstök heimild til einstaklingsbundins mats á umsóknum fullorðinna barna íslenskra ríkisborgara þar sem sýnt er fram á að raunverulegt og verndað fjölskyldulíf sé til staðar. Slík heimild myndi samrýmast betur mannréttindasjónarmiðum, meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og þeirri meginreglu að mat á fjölskyldutengslum byggist á efnislegum aðstæðum fremur en einvörðungu formlegum aldursmörkum. Raunveruleg áhrif laganna á fjölskyldulíf íslenskra ríkisborgara: Í þessu samhengi er sérstaklega ástæða til að benda á mál stjúpsonar undirritaðrar, mexíkósks ríkisborgara, sem sótti um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið. Umsókn hans var synjað af Útlendingastofnun og sú niðurstaða staðfest með úrskurði Kærunefndar útlendingamála nr. 9/2026 frá 15. janúar 2026. Þar lagði kærunefndin til grundvallar að fjölskyldutengsl umsækjandans við íslenskan föður hans væru ein og sér ekki nægjanleg til veitingar dvalarleyfis, auk þess sem ekki hefðu verið talin fyrir hendi þau umönnunar- eða framfærslusjónarmið sem áskilin eru samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðinum er enn fremur áréttað að ákvæði um sérstök tengsl við landið séu ekki ætlað að útvíkka gildissvið reglna um fjölskyldusameiningu. Þar af leiðandi varð umsækjandinn ekki talinn eiga rétt til dvalar á Íslandi á grundvelli tengsla við íslenskan föður sinn og systkinna. Þar á meðal ungur bróðir sem umsæjandi hefur ekki náð að mynda tengsl við. Málið sýnir með skýrum hætti hvernig gildandi löggjöf hefur í framkvæmd leitt til þess að íslenskir ríkisborgarar geta ekki sameinast eigin fullorðnum börnum nema við afar þröng og sérstök skilyrði. Þótt fyrir liggi raunveruleg fjölskyldutengsl, sameiginlegur uppruni og fjölskyldunet hér á landi, er það ekki talið nægja nema umsækjandi geti jafnframt sýnt fram á ríka þörf fyrir umönnun eða framfærslu. Að mati undirritaðrar er þessi framkvæmd til marks um of þrönga túlkun á hugtakinu fjölskyldulíf. Fjölskyldutengsl milli foreldra og barna falla ekki sjálfkrafa niður við 18 ára aldur og verða ekki síður verndunarverð þegar um er að ræða íslenska ríkisborgara sem óska eftir því að viðhalda eðlilegum fjölskyldutengslum við börn sín. Í ljósi þessa vekur áhyggjur að frumvarpið virðist ekki fela í sér úrbætur á þessu sviði heldur fremur staðfesta þá réttarstöðu að fullorðin börn íslenskra ríkisborgara eigi að jafnaði ekki kost á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Telja verður að slík niðurstaða samrýmist illa markmiðum um vernd fjölskyldulífs og feli í sér verulega skerðingu á möguleikum íslenskra ríkisborgara til að njóta fjölskyldulífs hér á landi. Því er lagt til að frumvarpið verði endurskoðað þannig að heimilt verði að veita fullorðnum börnum íslenskra ríkisborgara dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar eða að lágmarki að fyrir hendi verði skýr heimild til einstaklingsbundins mats þegar sýnt er fram á raunveruleg og sterk fjölskyldutengsl, án þess að gerð sé krafa um sérstaka umönnunarþörf eða framfærslu. Slík breyting myndi betur samræmast vernd fjölskyldulífs samkvæmt 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, auk þess að tryggja íslenskum ríkisborgurum raunhæfari möguleika til að halda uppi fjölskyldulífi með fullorðnum börnum sínum.

  • #3Pétur Bjarni Gunnlaugsson
    Þar sem ég sjálfur hef verið au pair og farið erlendis til þess þá verð ég að vera mjög ósammála því að hindra fólk utan Evrópu til þess að nýta þetta tækifæri til að koma hingað og upplifa Ísland. Þetta var mikil upplifun fyrir mig og reynsla sem ég bý enn að í dag. Nú með 6 manna fjölskyldu erum við með au pair á heimilinu svo við teljum 7 hérna. Í sumar ferðuðumst við mikið um landið til þess að okkar au pair fengi að upplifa og kynnast landinu okkar. Veit ekki betur en þetta sé búið að vera einstök upplifun og eitthvað sem okkar au pair á eftir að lifa lengi á ásamt því að vera búin að… Lesa alla

    Þar sem ég sjálfur hef verið au pair og farið erlendis til þess þá verð ég að vera mjög ósammála því að hindra fólk utan Evrópu til þess að nýta þetta tækifæri til að koma hingað og upplifa Ísland. Þetta var mikil upplifun fyrir mig og reynsla sem ég bý enn að í dag. Nú með 6 manna fjölskyldu erum við með au pair á heimilinu svo við teljum 7 hérna. Í sumar ferðuðumst við mikið um landið til þess að okkar au pair fengi að upplifa og kynnast landinu okkar. Veit ekki betur en þetta sé búið að vera einstök upplifun og eitthvað sem okkar au pair á eftir að lifa lengi á ásamt því að vera búin að læra mjög mikið um okkar land. Svo ég mótmæli eindregið að við lokum okkur af. Við eigum heldur að einfalda þetta og svo bæði þeir sem koma hingað sem au pair geti kynnst okkar landi. Eins lærum við líka mikið um þeirra land að hafa þau hérna, börnin hafa fræðst mjög mikið af þessu. Eina sem ég sagt er að því miður byrjaði ég ekki fyrr að fá au pair. Ég og mín fjölskylda þekkjum vel til Evrópu og flestra landa þar, því var meiri áhugi fyrir því að fá au pair sem var utan Evrópu svo bæði við og au pair myndum læra meira. Ég vona að ráðherra sjái sér sóma í því að endurskoða þetta og fara ekki að apa allt upp eftir örðum ríkjum, við erum ekki eins, verðum ekki eins og viljum ekki vera eins. Verum bara Íslendingar og förum okkar eigin leiðir eins og forfeður okkar börðust fyrir. Verum stolt af því og höldum því áfram.

  • #4Harpa Söring Ragnarsdóttir
    Umsögn um mál S-189/2026 – brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar Ég geri athugasemd við tillögu um að afnema dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir einstaklinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég styð að réttindi og öryggi au pair séu tryggð og að tekið sé af festu á misnotkun. Ég tel hins vegar að skoða þurfi betur leiðir til að bæta fyrirkomulagið áður en þessi möguleiki er felldur niður. Fjölskylda mín hefur reynslu af því að hafa au pair frá Filippseyjum. Fyrir okkur hefur þetta fyrirkomulag haft mikið gildi. Ég er móðir tveggja ungra barna og eiginmaður minn er hreyfihamla… Lesa alla

    Umsögn um mál S-189/2026 – brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar Ég geri athugasemd við tillögu um að afnema dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir einstaklinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég styð að réttindi og öryggi au pair séu tryggð og að tekið sé af festu á misnotkun. Ég tel hins vegar að skoða þurfi betur leiðir til að bæta fyrirkomulagið áður en þessi möguleiki er felldur niður. Fjölskylda mín hefur reynslu af því að hafa au pair frá Filippseyjum. Fyrir okkur hefur þetta fyrirkomulag haft mikið gildi. Ég er móðir tveggja ungra barna og eiginmaður minn er hreyfihamlaður. Aðstoð við barnagæslu og létt heimilisstörf hefur því sérstaka þýðingu fyrir daglegt líf okkar og möguleika mína til að sinna vinnu og öðrum skyldum. Au pair hefur jafnframt verið hluti af fjölskyldulífinu og dvölin skapað tækifæri til gagnkvæmra menningarskipta. Ég geri ekki lítið úr hættunni á misnotkun eða þeim aðstöðumun sem getur verið milli vistfjölskyldu og au pair. Góð reynsla einnar fjölskyldu útilokar ekki að aðrir búi við óviðunandi aðstæður. Á sama hátt tel ég að ekki eigi að afnema fyrirkomulagið í heild án þess að leggja fram skýrar upplýsingar um umfang vandans hér á landi og mat á því hvort aðrar aðgerðir geti tryggt fullnægjandi vernd. Í því sambandi óska ég eftir upplýsingum um fjölda tilkynntra og staðfestra brota vegna vistráðninga, eðli þeirra og hvernig brugðist hefur verið við. Fáar tilkynningar myndu ekki einar og sér sýna að misnotkun sé sjaldgæf, en gögn um framkvæmdina eru nauðsynleg til að meta hvaða breytinga er þörf. Einnig tel ég mikilvægt að horfa til félagslegs baklands þeirra sem hingað koma. Hér á landi er filippseyskt samfélag sem getur veitt au pair frá Filippseyjum tengsl, stuðning og upplýsingar. Slíkt tengslanet getur dregið úr einangrun og auðveldað þeim að leita aðstoðar. Það kemur ekki í stað ábyrgðar stjórnvalda, en mætti nýta í samstarfi um fræðslu og stuðning. Í greinargerðinni kemur fram að aukið eftirlit sé talið óraunhæft vegna kostnaðar og þess að dvölin fari fram á einkaheimilum. Ég tel þó að rökstyðja þurfi þá niðurstöðu nánar, meðal annars með kostnaðarmati og samanburði á ólíkum leiðum til að tryggja vernd. Regluleg trúnaðarsamtöl við au pair, sjálfstæð ráðgjöf og greiðari leiðir til að skipta um vistfjölskyldu þurfa ekki öll að byggjast á heimsóknum inn á heimili. Einnig þarf að skýra hvers vegna ekki sé unnt að draga úr aðstöðumun með breyttum réttindum og minni tengingu dvalarréttar við tiltekna vistfjölskyldu. Ég óska því eftir að eftirfarandi úrbætur verði metnar sérstaklega áður en leyfaflokkurinn er afnuminn: - Að hver au pair hafi sjálfstæðan tengilið og fái regluleg trúnaðarsamtöl án aðkomu vistfjölskyldunnar. - Að tryggja skýrar og aðgengilegar leiðir til að tilkynna brot og fá aðstoð. - Að auðvelda skipti um vistfjölskyldu og tryggja svigrúm til að yfirgefa óviðunandi aðstæður án tafarlauss missis dvalarréttar. - Að styrkja réttindi varðandi vasapeninga, tryggingar, vinnutíma og frítíma og útiloka vistfjölskyldur sem brjóta gegn skilyrðum. - Að kanna hvort breyttur lagarammi geti betur tryggt réttindi au pair og skýrt mörkin milli menningarskipta og vinnu. Þá þarf að meta áhrif afnámsins á barnafjölskyldur, sérstaklega þar sem fötlun eða veikindi hafa áhrif á daglegt líf. Í greinargerðinni er gert ráð fyrir að fækkun au pair frá ríkjum utan EES verði mætt með einstaklingum innan EES. Ég tel að sú forsenda þarfnist frekari rökstuðnings. Ekki er sjálfgefið að framboð, áhugi og möguleikar til vistráðningar séu sambærilegir milli þessara hópa. Ég óska því eftir að tillagan um brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar verði endurskoðuð. Markmiðið ætti að vera að tryggja öruggt og sanngjarnt fyrirkomulag sem verndar au pair og varðveitir möguleikann á gagnkvæmum menningarskiptum. Áður en sá möguleiki er afnuminn þarf að sýna með skýrari hætti hvers vegna ekki sé hægt að ná því markmiði með bættum réttindum, stuðningi og eftirliti. Virðingarfyllst, Harpa Ragnarsdóttir

  • #5Dmitrii Bukhgolts
    Ég tala smá íslensku. Ég ætla að þýða umsögnina með AI. Ég vil gjarnan koma skoðun minni á þessu frumvarpi á framfæri sem einstaklingur sem kom hingað frá þriðja landi, utan Evrópusambandsins. Þessi lög virðast fyrst og fremst vera til þess fallin að skerða enn frekar réttindi fólks sem hefur mestan áhuga og sterkasta hvatann til að aðlagast lífi og menningu á Íslandi. Ég og eiginkona mín búum hér við nánast þrælslegar aðstæður vegna þess að ég hef ekki rétt til að skipta um starf fyrr en ég fæ ótímabundið dvalarleyfi. Það þýðir sjálfkrafa að atvinnurekandi, sem veit þetta, getur beitt mér þ… Lesa alla

    Ég tala smá íslensku. Ég ætla að þýða umsögnina með AI. Ég vil gjarnan koma skoðun minni á þessu frumvarpi á framfæri sem einstaklingur sem kom hingað frá þriðja landi, utan Evrópusambandsins. Þessi lög virðast fyrst og fremst vera til þess fallin að skerða enn frekar réttindi fólks sem hefur mestan áhuga og sterkasta hvatann til að aðlagast lífi og menningu á Íslandi. Ég og eiginkona mín búum hér við nánast þrælslegar aðstæður vegna þess að ég hef ekki rétt til að skipta um starf fyrr en ég fæ ótímabundið dvalarleyfi. Það þýðir sjálfkrafa að atvinnurekandi, sem veit þetta, getur beitt mér þrýstingi og haft mikil áhrif á mig, því ef mér er sagt upp gæti ég þurft að yfirgefa landið. Einu sinni fékk ég tilkynningu um uppsögn sem síðar var afturkölluð, en ég þurfti þá að samþykkja ný starfsskilyrði. Eftir uppsögn hef ég nokkra mánuði til að finna mér nýtt starf. Það þýðir að nýr atvinnurekandi þarf fyrst að reyna að finna starfsmann meðal Íslendinga í þrjár vikur og, ef enginn finnst, meðal ríkisborgara Evrópusambandsins í þrjár vikur til viðbótar. Aðeins eftir það væri hægt að ráða mig. Líkurnar á því eru afar litlar. Þar að auki þarf ég áfram að greiða húsaleigu og hafa eitthvað til að lifa af. Eiginkona mín býr hér á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þar sem ég er ekki einu sinni ríkisborgari ESB hefur hún alls ekki rétt til að vinna. Starfsgrein hennar krefst endurmenntunar hér á landi, sem tekur tíma, og auk þess þarf hún að kunna íslensku, sem er nokkuð erfitt tungumál að læra og ekki öllum auðvelt. Hún getur ekki einfaldlega fengið láglaunastarf, þar sem íslenskir ríkisborgarar og ríkisborgarar ESB eru í forgangi við ráðningar samkvæmt lögunum. Ráðningarferlið yrði það sama og hjá mér, en innanlands. Það kostaði okkur líka gríðarlega mikla vinnu að flytja til Íslands: ótal vottorð og sönnunargögn, sakavottorð frá þeim löndum þar sem við höfðum búið, fyrirframgreitt húsnæði og fjölda þýðinga á skjölum. Allt þetta ferli tók okkur um það bil níu mánuði. Hvað höfum við þá? Ég vinn algjörlega á forsendum atvinnurekandans, þar sem ég get á engan hátt haft áhrif á eigin starfsskilyrði, því annars gæti ég þurft að yfirgefa landið. Eiginkona mín hefur hins vegar alls ekki rétt til að vinna fyrr en hún fær ótímabundið dvalarleyfi. Þannig virðist Ísland annars vegar vilja gera nú þegar erfiðar aðstæður enn erfiðari fyrir okkur, fólk sem hefur mikinn áhuga og sterkan hvata til að læra tungumálið og aðlagast samfélaginu eftir bestu getu. Hins vegar búa hér fjölmargir ríkisborgarar ESB í mörg ár og jafnvel áratugi. Ég þekki persónulega fólk sem hefur búið hér í 20 ár án þess að hafa lært íslensku á grundvallarstigi eða sótt eitt einasta íslenskunámskeið. Þetta fólk lærir ekki tungumálið og hefur að mínu mati ekki sama hvata til að aðlagast samfélaginu. Margir þeirra safna peningum hér og flytja þá úr landi, til heimalands síns, þar sem þeir kaupa jafnvel húsnæði. Margir stunda glæpastarfsemi, þar sem engin fortíðarskoðun er gerð á þeim. Margir stunda ólöglegan rekstur. Og á endanum er það fólk eins og við sem situr uppi með afleiðingarnar — fólk sem kom hingað til að verða hluti af þessu landi. Svo hvaða vernd er verið að tala um í þessum lögum? Hvern eiga þau að vernda? Þessi lög ganga að mínu mati gegn grundvallarmannréttindum. Þau skipta fólki í mismunandi hópa og gera ríkisborgara frá þriðju löndum að eins konar þjónustufólki, án raunverulegs réttar til að hafa áhrif á eigin aðstæður eða lífsgæði. Einnig er sagt að með þessu verði reglurnar sambærilegri við þær ströngu reglur sem gilda í öðrum Norðurlöndum. En í Finnlandi, til dæmis, getur einstaklingur sem lærir tungumálið jafnvel fengið ríkisborgararétt eftir fjögurra ára búsetu. Í Svíþjóð er hægt að fá ótímabundið dvalarleyfi eftir fjögurra ára búsetu með tímabundið dvalarleyfi. Það ætti að hvetja fólk sem leggur sig fram við að aðlagast samfélaginu, en ekki gera því lífið erfiðara. Samt virðist allt sem stendur í þessum lögum vera til þess fallið að setja fleiri hindranir í veg fyrir okkur — fólkið sem leggur mikla vinnu í að bæta sig og aðlagast. Innflytjendalöggjöf fyrir ríkisborgara frá þriðju löndum er nú þegar ströng á Íslandi. Það er engin þörf á að gera hana enn strangari. Kannski ætti höfundur þessa frumvarps sjálf að kynna sér íslenska innflytjendalöggjöf betur til að sannreyna hvort það sem ég segi sé rétt, og einnig kynna sér tölfræði um hversu stórt hlutfall ríkisborgara frá þriðju löndum er meðal allra innflytjenda á Íslandi. Ég get gefið smá vísbendingu: hlutfallið er í raun mjög lágt.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.