Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-186/2026 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Markmið frumvarpsins er að styrkja vernd barna í stafrænu umhverfi, draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum ótímabærrar notkunar samfélagsmiðla á líðan, þroska og öryggi þeirra og styðja foreldra og forsjáraðila við að setja börnum skýr og samræmd mörk um notkun samfélagsmiðla. Í frumvarpinu er lagt til að börn yngri en 15 ára skuli ekki hafa sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum og að foreldrar og forsjáraðilar skuli sjá til þess að börn virði aldursmarkið. Aldursmarkið miðast við fæðingarár barns. Ekki er gert ráð fyrir refsingum eða öðrum viðurlögum vegna brota gegn ákvæðinu, enda er því fyrst og fremst ætlað að skapa samfélagslegt verndar- og uppeldisviðmið. Þá er hugtakið samfélagsmiðill skilgreint út frá virkni þjónustunnar. Tiltekin þjónusta fellur þó utan skilgreiningarinnar, svo sem tölvuleikir, ritstýrðir fréttamiðlar, rafræn viðskipti, náms- og kennslukerfi, samskipti vegna skipulagðs skóla-, íþrótta- og frístundastarfs og lokuð samskipti milli einstaklinga eða afmarkaðra hópa. Í frumvarpinu er lögð áhersla á ábyrgð foreldra og forsjáraðila, fræðslu og forvarnir. Gert er ráð fyrir reglubundinni fræðslu til barna, foreldra og forsjáraðila um ábyrga notkun samfélagsmiðla og áhrif notkunarinnar á heilsu, þroska og velferð barna, meðal annars á vettvangi grunnskóla. Við undirbúning frumvarpsins var haft samráð við börn og ýmsa hagaðila. Meðal annars var tekið mið af niðurstöðum Barnaþings umboðsmanns barna 2025, sjónarmiðum ungmennaráðs Samfés, vinnustofum ráðuneytisins með börnum og hagaðilum. Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarpsdrögin og hvetur sérstaklega börn og ungmenni, foreldra og forsjáraðila, skólasamfélagið, félaga- og hagsmunasamtök og aðra sem málið varðar til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

S-186/2026· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. sep. 2026 – 9. okt. 2026· 12 umsagnir

Frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-186/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Bergþóra Þórhallsdóttir
    Meðfylgjandi er umsögn Kópavogsbæjar um drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum. Í umsögninni er tekið undir mikilvægi aðgerða til að efla öryggi og velferð barna í stafrænu umhverfi, en jafnframt lögð áhersla á að verndarráðstafanir þurfi að fara saman við uppbyggingu stafrænnar hæfni, miðlalæsis og gagnrýninnar hugsunar. Kópavogsbær leggur áherslu á skýra ábyrgðarskiptingu milli ríkisins, þjónustuveitenda, skóla og foreldra, auk þess að ríkið tryggi aðgengilegt og vandað fræðsluefni fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Einnig er vakin sérstök athygli á réttindum barna… Lesa alla

    Meðfylgjandi er umsögn Kópavogsbæjar um drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum. Í umsögninni er tekið undir mikilvægi aðgerða til að efla öryggi og velferð barna í stafrænu umhverfi, en jafnframt lögð áhersla á að verndarráðstafanir þurfi að fara saman við uppbyggingu stafrænnar hæfni, miðlalæsis og gagnrýninnar hugsunar. Kópavogsbær leggur áherslu á skýra ábyrgðarskiptingu milli ríkisins, þjónustuveitenda, skóla og foreldra, auk þess að ríkið tryggi aðgengilegt og vandað fræðsluefni fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Einnig er vakin sérstök athygli á réttindum barna í viðkvæmri stöðu og mikilvægi þess að lagasetning leiði ekki til aukinnar félagslegrar útilokunar. Umsögnin byggir meðal annars á niðurstöðum úr rannsókn Evrópuráðsins á sjónarhorni foreldra til stafrænnar borgaravitunda og skýrslunni SMARTBUS Digital Youth on Tour 2025 – Analysis of 2025 SmartBus session findings in Iceland.

  • #2Alma Guðmundsdóttir

    Fyrir hönd Sjálfstæðra skóla sendi ég inn umsögn. sjá meðfylgjandi skjal.

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  • #4ÖBÍ réttindasamtök

    Umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka

  • #5Eleonora Bergþórsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Persónuverndar um drög að frumvarpi til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.