Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-184/2026 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Stjórnskipulag gagna

Innleiðing á reglugerð (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslum opinberra aðila.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Í reglugerðinni eru sett skilyrði um endurnotkun gagna í vörslu opinberra aðila sem njóta verndar á grundvelli viðskiptaleyndar, trúnaðarkvaðar í hagskýrslum, verndar hugverkaréttinda þriðju aðila eða verndar persónuupplýsingalaga, að svo miklu leyti sem slík gögn falla utan gildissviðs tilskipunar (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. Opinberir aðilar skulu tryggja að eðli gagna sem vernduð gögn sé varðveitt, þrátt fyrir endurnot. Þá er kveðið á um að gjöld fyrir endurnot skulu vera gagnsæ, án mismununar og rökstudd á hlutlægan hátt. Tilnefna skal eina eða fleiri stofnun sem aðstoðar opinbera aðila við að veita eða synja um aðgang á endurnotum á þeim flokkum gagna sem reglugerðin tekur til. Einnig skal tryggja að upplýsingar um skilyrði fyrir endurnot og gjöld séu aðgengileg í miðlægri upplýsingagátt. Þá eru einnig settar reglur um aðila sem veita svokallaða gagnamilligönguþjónustu. Það eru hlutlausir þriðju aðilar sem tengja einstaklinga og fyrirtæki sem geyma gögn við aðra sem vilja nota gögnin. Þessir aðilar skulu skrá sig hjá lögbæru stjórnvaldi og þurfa að uppfylla strangar kröfur til að tryggja hlutleysi. Til viðbótar eru settar reglur um gagnavild, þ.e. þegar einstaklingur og fyrirtæki veita samþykki sitt eða leyfi til að gera gögnin, sem þau búa til, aðgengileg til notkunar í þágu almennings, af fúsum og frjálsum vilja og án endurgjalds. Lögbær stjórnvöld skulu halda skrár yfir aðila sem veita þá þjónustu og sinna eftirliti. Í V. kafla reglugerðarinnar er fjallað um lögbær yfirvöld og málsmeðferðarákvæði. Lögbær yfirvöld á sviði gagnamilligönguþjónustu og lögbær yfirvöld sem annast skráningu gagnavildarstofnana geta verið sama stofnunin. Lögbær yfirvöld skulu vera óháð veitendum slíkrar þjónustu. Lögbær yfirvöld hafa eftirlit og umsjón með því að veitendur gagnamilligönguþjónustu og að viðurkenndar gagnavildarstofnanir uppfylli kröfur reglugerðarinnar. Þau hafa umsjón með skráningu og eftirliti og geta beitt viðurlögum, sem kveðið er á um í frumvarpinu. Lögbær yfirvöld skulu halda opinbera landsskrá yfir viðurkenndar gagnavildarstofnanir og skulu veita framkvæmdastjórninni og öðrum lögbærum yfirvöldum innan EES á þessu sviði upplýsingar. Einstaklingar og lögaðilar hafa rétt á að leggja fram kvörtun í tengslum við mál sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Lögbært yfirvald þarf að upplýsa kvörtunaðila um framvindu málsmeðferðar, þá ákvörðun sem er tekin og skilvirk réttarúrræði. Lagt er til að ráðherra tilnefndi lögbært yfirvald í reglugerði settri með stoð í lögunum. Að lokum eru kveðið á um Evrópska gagnanýsköpunarráðið, sem veitir ráðgjöf um framkvæmd reglugerðarinnar, og sérstakar reglur um verndarráðstafanir sem þarf að fylgja þegar ópersónuleg gögn eru flutt til landa utan EES, til að tryggja að upplýsingarnar séu verndaðar með sama hætti þrátt fyrir flutninginn.

S-184/2026· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. sep. 2026 – 16. okt. 2026· 1 umsögn

Stjórnskipulag gagna

Innleiðing á reglugerð (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslum opinberra aðila.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-184/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-184/2026: Stjórnskipulag gagna · Alviti