Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta

Áformuðum umbótum er ætlað að auka skilvirkni, réttarvissu og að styrkja vernd innstæðueigenda, m.a. þegar um er að ræða tímabundið háar innstæður vegna tiltekinna lífsviðburða.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Löggjöf um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er nú til endurskoðunar m.a. með það að markmiði að auka skilvirkni og tryggingarvernd vegna tiltekinna lífsviðburða. Gert er ráð fyrir að löggjöfinni verði breytt þannig að: a. Kveðið verði skýrar á um heimildir Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja (TvF) til lántöku, b. nánar verði fjallað um upplýsingagjöf til TvF af hálfu þeirra fyrirtækja sem taka við innlánum, c. skýrt verði að heildsöluinnlán geti talist til tryggingarhæfra innstæðna, d. frestur Fjármálaeftirlitsins til að gefa út álit um getu aðildarfyrirtækis til að inna af hendi tryggða innstæðu verði styttur, e. tryggingarvernd verði aukin fyrir tilteknar innstæður sem tímabundið nema háum fjárhæðum vegna atvika á borð við útgreiðslu örorkubóta, arfskipti, fasteignaviðskipti, hjónaskilnað eða sambærilegar aðstæður. Að auki er um að ræða innleiðingu tveggja EES-gerða. Reglugerð (ESB) nr. 2023/662 og reglugerð (ESB) nr. 2024/895 breyta reglugerð (ESB) nr. 2015/63 sem innleidd er með tilvísunaraðferð í lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Reglugerðirnar mæla fyrir um breytingu á útreikningum varðandi framlög í skilasjóð. Skilasjóður hefur verið fullfjármagnaður frá stofnun og er ekki gert ráð fyrir breytingu á því.

S-182/2026· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2026 – 8. okt. 2026· 2 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta

Áformuðum umbótum er ætlað að auka skilvirkni, réttarvissu og að styrkja vernd innstæðueigenda, m.a. þegar um er að ræða tímabundið háar innstæður vegna tiltekinna lífsviðburða.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (15. október 2026)

Tvær umsagnir bárust. Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja fagnar fyrirhuguðum lagabreytingum. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) leggja áherslu á að ekki verði gengið lengra en ESB tilskipanir kveða á um, kalla eftir meðalhófi í upplýsingagjöf, og tekið sé tillit til kostnaðar og nægur aðlögunartíma gefinn áður en breytingarnar taka gildi. Ákvæði um tímabundið háar innstæður verði skýrt um fjárhæðarmark, verndartíma og gætt að því að gildissviðið verði ekki rýmra en í tilskipunum og það sé innstæðueiganda að gera grein fyrir tímabundnum innstæðum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja

    Umsögn Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja um mál nr. S-182/2026

  • #2Umsögn um mál nr. S-182/2026 – Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta
    Fjármála- og efnahagsráðuneytið Umsögn eingöngu send í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Reykjavík, 9. október 2026 Efni: Umsögn um mál nr. S-182/2026 – Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu („SFF“ eða „samtökin“) vísa til áformaðra breytinga á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 og laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur k… Lesa alla

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið Umsögn eingöngu send í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Reykjavík, 9. október 2026 Efni: Umsögn um mál nr. S-182/2026 – Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu („SFF“ eða „samtökin“) vísa til áformaðra breytinga á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 og laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til umsagnar. Í áformunum kemur fram að gert sé ráð fyrir að löggjöfinni verði breytt þannig að: a. Kveðið verði skýrar á um heimildir Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja (TvF) til lántöku, b. nánar verði fjallað um upplýsingagjöf til TvF af hálfu þeirra fyrirtækja sem taka við innlánum, c. skýrt verði að heildsöluinnlán geti talist til tryggingarhæfra innstæðna, d. frestur Fjármálaeftirlitsins til að gefa út álit um getu aðildarfyrirtækis til að inna af hendi tryggða innstæðu verði styttur, e. tryggingarvernd verði aukin fyrir tilteknar innstæður sem tímabundið nema háum fjárhæðum vegna atvika á borð við útgreiðslu örorkubóta, arfskipti, fasteignaviðskipti, hjónaskilnað eða sambærilegar aðstæður. Ábendingar SFF Hugtakið innstæða SFF telja framfaraskref að skilgreining hugtaksins „innstæða“, í 4. mgr. 9. gr. laga nr. 98/1999, verði skýrt nánar, þannig að skýrt verði að heildsöluinnlán geti talist til tryggingahæfra innstæðna. Frestur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands SFF leggja áherslu á að við styttingu frests Fjármálaeftirlitsins til að meta greiðslugetu aðildarfyrirtækis verði ekki lögfestur skemmri hámarksfrestur en núgildandi tilskipun Evrópusambandsins kveður á um. Upplýsingagjöf Fram kemur í áformunum að nánar verði fjallað um upplýsingagjöf til TvF af hálfu þeirra fyrirtækja sem taka við innlánum. SFF leggja áherslu á að ekki verði gengið lengra í upplýsingaöflun en nauðsyn stendur til. Einnig verði að horfa til þess í framkvæmd að innlánsstofnanir lúti ríkum kröfum um upplýsingaöryggi, persónuvernd og þagnarskyldu. Einnig er á það minnt að bæði hvað varðar nýja upplýsingagjöf eða upplýsingagjöf á nýju formi þá tekur ávallt tíma að innleiða slíkt í kerfi fyrirtækjanna og nauðsynlegt að veita svigrúm til slíks. Tímabundið háar innstæður Verði lögfest aukin vernd innstæðna, sem tímabundið nema háum fjárhæðum, skiptir máli að með skýrum og afdráttarlausum hætti verði kveðið á um fjárhæðarmark, verndartíma og gætt að því að gildissviðið verði ekki rýmra en kveðið er á um í tilskipunum. Að auki telja SFF að það sé innstæðueiganda að gera grein fyrir tímabundinni hárri innstæðu og færa sönnur á slíku, en ekki innlánsstofnunar. Aðlögunartími Loks leggja SFF áherslu á að fyrirhuguð gildistaka 1. janúar 2027 taki mið af raunhæfum aðlögunartíma fyrirtækja. Frá birtingu löggjafar og stjórnvaldsfyrirmæla þarf að gefast nægur tími til breytinga á upplýsingakerfum, verklagi og upplýsingagjöf. Verði því ekki komið við með raunhæfum hætti fyrir gildistöku, sé rétt að gildistöku slíkra lagaákvæða verði frestað og/eða mælt fyrir um raunhæfan aðlögunarfrest. Þannig gæti hluti löggjafarinnar tekið gildi á ákveðnum tíma, en öðrum frestað. Einnig benda SFF á að hafa verði í huga að ekki verði ráðist í breytingar á landslögum í takt við ákvæði tilskipana/reglugerða sem ekki hafa tekið gildi í Evrópusambandinu, a.m.k. væri rétt að horfa til þess að gildistaka slíkra ákvæða verði ekki fyrr en hún eigi sér stað í Evrópusambandinu. Samtökin þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og lýsa sig reiðubúin til að eiga frekara samtal við ráðuneytið vegna umsagnarinnar. SFF áskilja sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum og sjónarmiðum á síðari stigum málsins, einkum þegar frumvarp liggur fyrir. Virðingarfyllst, f.h. Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2026: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta · Alviti