Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-180/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins, Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að verðmætasköpun, öryggi og álagsstýringu í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í frumvarpinu kemur m.a. eftirfarandi fram: - Einstaklingar sem hafa ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð kr. 4.500 fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma eða á tímabilinu 1. nóvember til 31. maí er gjaldið kr. 3.000. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ríkisfang ræður ekki gjaldskyldunni. Hins vegar þurfa allir einstaklingar 18 ára og eldri að afla rafræns aðgangsskírteinis (QR - kóði) fyrir umrædd svæði. Ferðaskrifstofum og ferðasölum verður gert kleift að kaupa skírteini fyrir fram fyrir sína viðskiptavini. - Áætlaðar tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins eru sex til sjö milljarðar króna á ári. Fyrir árið 2027 eru tekjur áætlaðar um fimm milljarðar króna, er þá miðað við að lögin taki gildi 1. maí. - Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður ekki lengur heimilt að innheimta bílastæðagjöld innan afmarkaðra gjaldskyldra landsvæða í eigu eða umsjón ríkisins og verða bílastæðagjöld innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum þar með ekki lengur innheimt. - Eftirlit með skírteinum verður á vegum Ferðamálastofu. Eftirlitsaðilum verður heimilt að krefjast framvísunar aðgangsskírteina, persónuskilríkjum eða öðrum nauðsynlegum upplýsingum. Einnig má fletta einstaklingi upp í skrá ef hann getur af afsakanlegum ástæðum ekki sýnt skírteinið. Etirlitsaðilar geta einnig lagt á sektir og innheimt á vettvangi. Nánari framkvæmd eftirlits verður útfærð í reglugerð.

S-180/2026· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 23. sep. 2026 – 7. okt. 2026· 34 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-180/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 34 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (34)
  • #1Ólafur Jarl Einarsson

    Hvernig er skírteinið sótt — rafræn skilríki? Má ráðherra bæta við stöðum með reglugerð, án nýrra laga? Gildir skírteinið bara á þessum þremur, eða er kerfið hannað sem einn passi sem stækkar? Hvaða gögn eru geymd (kennitala, tími, staður)? 60.000 kr. fyrir að gleyma að sækja ókeypis passann — er það meðalhóf?

  • #2Laufey Guðmundsdóttir

    Höfn 25. September 2026 UMSÖGN UM FRUMVARP TIL LAGA UM NÁTTÚRU- OG INNVIÐAGJALD Mál nr. S-180/2026 Atvinnuvegaráðuneytið 158. löggjafarþing 2026-2027 Málefni: Umsögn um frumvarp til laga um náttúru og innviðagjald.

  • #3Trausti S Harðarson

    Af afspurn er mér kunnugt um að í liðinni viku fór ökumaður á 18 manna bifreið með 16 erlenda farþega í dagsferð um svokallaðan Gullhring, þ.e. skoðaðir voru Þingvellir, Geysissvæðið og Gullfoss. Fyrir þessa ferð voru greiddar 2.200 + 2 x 2.500 = 7.200 krónur íslenskar í bílastæðagjöld. Með þeirri breytingu, sem hér er boðuð, mun á næsta ári þurfa að greiða 16 x 4.500 + 2 x 2.500 = 77.000 krónur fyrir samskonar ferð að því tilskildu að engin hækkun verði á stæðisgjöldum við Gullfoss eða Geysissvæðið. Þetta reiknast mér til að sé 969,4% gjaldhækkun, sem mér þykir langt umfram velsæmi.

  • #4Sigurjón Kjartansson

    Ef þetta gjald/skattur er ekki lagt sérstaklega á skattgreiðendur á Íslandi þá má ekki leggja það á ferðamenn frá EES og ESB ríkjum. Að hluti af skattgreiðslum fari í málaflokkinn eru ekki gjaldgeng rök og margir 18 ára og eldri borga engan skatt. Væri þetta heimilt þá mætti rukka alla ferðamenn frá EES og ESB ríkjum um gjald fyrir tollafgreiðslu, til löggæslu, vegagerðar, o.s.frv. strax og stigið er á land. En það, eins og þetta, er bannað.

  • #5Ásborg Ósk Arnþórsdóttir

    Umsögn um drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjaldc.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-180/2026: Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald · Alviti