Áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-179/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. október 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
- #1Jónas Haraldsson
Greiðsla stöðugjalds. Í dag er hjá sumum innheimtufyrirtækjum ekki hægt að greiða gjaldið, nema með appi viðkomandi fyrirtækis, sem er í raun einkagjaldmiðill þess fyrirtækis. Ekki er einu sinni hægt að greiða með bankakorti hvað þá peningum, sem er jú löglegur greiðslueyrir á Íslandi. Enginn valkostur með greiðslu. Til þess að geta átt í þessum staðgreiðsluviðskiptum án þess að fá á þig sekt, ef þú átt bara takkasíma, þá þyrftir þú að kaupa nýjan síma fyrir tugir þúsunda til að geta greitt fyrir þessa þjónustu ella fá á þig háa sekt, sem er ekkert annað en refsing. Ósk mín er að þes… Lesa alla
Greiðsla stöðugjalds. Í dag er hjá sumum innheimtufyrirtækjum ekki hægt að greiða gjaldið, nema með appi viðkomandi fyrirtækis, sem er í raun einkagjaldmiðill þess fyrirtækis. Ekki er einu sinni hægt að greiða með bankakorti hvað þá peningum, sem er jú löglegur greiðslueyrir á Íslandi. Enginn valkostur með greiðslu. Til þess að geta átt í þessum staðgreiðsluviðskiptum án þess að fá á þig sekt, ef þú átt bara takkasíma, þá þyrftir þú að kaupa nýjan síma fyrir tugir þúsunda til að geta greitt fyrir þessa þjónustu ella fá á þig háa sekt, sem er ekkert annað en refsing. Ósk mín er að þessum fyrirtækjum verði líka gert skylt að taka við greiðslu með bankakorti. Vísa í grein mína í Morgunblaðinu um þetta efni, Stöðugjald og lögeyrir, þann 22. ágúst sl.
- #2Reykjavíkurborg
Meðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019.
- #3Vilhjálmur Hjálmarsson
Meðfylgjandi er umsögn ADHD samtakanna vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019.
- #4ÖBÍ réttindasamtök
Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaa.
- #5Þórarinn V Þórarinsson
Það er tímabært að setja í lög reglur um innheimtu gjalds fyrir bifreiðastæði. Þetta var lengst af ekki flókið. Bæjarfélögin settu reglur um gjaldtöku, settu upp stöðumæla þar sem greiða mátti með einföldum hætti og fylgdu eftir gjaldskyldunni með eftirliti. Ef ekki var greitt, þá skrifaði stöðumælavörður út greiðsluseðil og setti undir rúðuþurku. Það var þannig enginn vafi á því að krafan var komin og hvernig skyldi greiða. Tæknin hefur nú breytt þessu og víðast standa eigendur bílastæða að innheimtu gjalds fyrir stæði með rafrænum lestri bifreiðanúmera og sérhæfð innheimtufyrirtæki annas… Lesa alla
Það er tímabært að setja í lög reglur um innheimtu gjalds fyrir bifreiðastæði. Þetta var lengst af ekki flókið. Bæjarfélögin settu reglur um gjaldtöku, settu upp stöðumæla þar sem greiða mátti með einföldum hætti og fylgdu eftir gjaldskyldunni með eftirliti. Ef ekki var greitt, þá skrifaði stöðumælavörður út greiðsluseðil og setti undir rúðuþurku. Það var þannig enginn vafi á því að krafan var komin og hvernig skyldi greiða. Tæknin hefur nú breytt þessu og víðast standa eigendur bílastæða að innheimtu gjalds fyrir stæði með rafrænum lestri bifreiðanúmera og sérhæfð innheimtufyrirtæki annast gjaldtöku með tilstyrk sérstaks apps. Allt er þetta ágætt alveg þar til að því kemur af einhverjum ástæðum að ekki hefur verið greitt fyrir stæðið. Viðkomandi hafa t.d. ekki séð að „gjaldskyldan“ væri þarna, nú eða ekki greitt öllum innheimtuaðilunum ef því er að skipta. Vandinn við gjaldskylduna er yfirleitt ekki gjaldið fyrir stæðið, heldur „vangreiðslugjaldið“ sem sýnist vera gjöful og tiltölulega ótakmörkuð veiðilenda, ekki einu sinni kvótasett, þar sem veski samborgaranna er sóknarandlagið. Viðbótargjaldið getur verið margfalt á við stæðisgjaldið. Það þarf að setja þessu verklagi hófleg mörk. Það er sýnilega ekki flókið fyrir innheimtufyrirtækin að senda kröfu um greiðslu í heimabanka. Mannshöndin þarf þar lítt við að koma, rafræn skráning og forritun gerir þetta sjálfvirkt og hikstalaust. Það er því auðgert að bæta ferlið. Mín tillaga er sú, að það verði gert að lögbundnu skilyrði fyrir innheimtu „vangreiðslugjalds“ á grundvelli rafrænnar skráningar bifreiðanúmers, að innheimtuaðili hafi áður sent kröfu um greiðslu fyrir stæðisgjaldið með minnst einnar viku gjaldfresti í heimabanka bíleigandans. Við mætti bæta bankakostnaði, svo eigandi stæðisins væri skaðlaus. Verði krafan ekki greidd á gjalddaga, t.d. 7 dögum síðar, bætist „vangreiðslugjald“ við með venjubundnum hætti. Þetta er einfalt og ekki óeðlilega íþyngjandi fyrir eigendur stæðanna, þótt tækifærin til innheimtu vangreiðslugjaldsins minnki. Reglan tryggir almenningi sanngjarna möguleikann á að greiða fyrir afnot stæða, þar sem afnotin eru hvort sem er skráð rafrænni skráningu og það þá án tilefnislausra viðbótargjalda. Það er heldur ekki vansalaust, að eigendur geti falið fleiri aðilum samhliða innheimtu gjalds fyrir afnot án þess að tryggja að þeir samkeyri upplýsingar um greiðslur. Ég trúi ég sé ekki einn um þá reynslu að fá ítrekað í heimabankann kröfur um „vanskilagjöld“ frá EasyPark fyrir not af stæði, sem ég hef þegar greitt fyrir með Parka appinu. Þeir eru s.s. ekki farnir að stefna mér enn út af þessum tilvikum, en kröfurnar koma og ég er þess fullviss að margir villast til að greiða algerlega tilhæfulausar kröfur af þessum toga. Það er tilefni til að verja borgarana fyrir slíkum viðskiptaháttum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.