Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-178/2026 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn fátækt barna, til ársins 2031.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Framtíðarsýn stefnunnar er sú að Ísland verði samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að njóta sín, þroskast og dafna, óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldu sinnar. Til þess þarf að bæta afkomu fjölskyldna, tryggja aðgengi að þjónustu og ryðja úr vegi hindrunum sem útiloka börn frá þátttöku. Stefnan hvílir á fjórum stoðum: • Fjárhagslegur stuðningur og virkni. Opinber stuðningur nýtist barnafjölskyldum sem best og ungmenni fái stuðning til náms og atvinnuþátttöku. • Jöfn tækifæri til náms, frístunda og þátttöku. Fjárhagur fjölskyldunnar ráði ekki því hvort barn geti tekið þátt. • Heildstæð og samþætt þjónusta. Fjölskyldur fái aðstoð við hæfi og geti nýtt réttindi sín án óþarfa hindrana. • Skýrar mælingar og gagnreynd stefnumótun. Árangur verði metinn reglulega og þekking nýtt til að bæta aðgerðirnar. Helstu staðreyndir • Um 12,6% barna, eða um 10.500 börn, búa á heimilum undir lágtekjumörkum. • Langvarandi fátækt barna mælist 5,1%. • Um 30% barna einstæðra foreldra búa við fátækt. • Lágtekju/fátæktar hlutfallið er 33,6% og hefur aukist meðal barna sem fædd eru erlendis og eiga báða foreldra af erlendum uppruna. • Fátækt er einnig sérstaklega algeng hjá stórum fjölskyldum, ungum foreldrum og fjölskyldum þar sem foreldri er með örorku. • Barnabætur og húsnæðisbætur hafa mikil áhrif og lækka lágtekjuhlutfall barna um rúmlega fjórðung. • Samfélagslegur kostnaður fátæktar er talinn nema 35-103 milljörðum króna á ári. Aðgerðaáætlunin hefur að geyma 13 aðgerðir. Þær lúta meðal annars að greiningu á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur, stuðningi við ungmenni til náms og atvinnuþátttöku, jöfnu aðgengi að grunnþjónustu, skólastarfi og skipulögðu frístundastarfi, bættu aðgengi að ráðgjöf og upplýsingum n og virku samráði við foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt. Einnig er lagt til að sett verði mælanleg markmið til að draga úr fátækt barna og komið á reglubundnu mati á árangri aðgerðanna. Stefnan og aðgerðaáætlunin voru mótaðar í víðtæku samráði meðal annars við barnafjölskyldur með reynslu af fátækt, opinbera aðila, sveitarfélög, fræðasamfélagið, félaga- og hagsmunasamtök og fulltrúa skipulagðs frístundastarfs. Sú reynsla sem börn og foreldrar búa yfir þarf að hafa vægi við ákvarðanir og framkvæmd. Ráðuneytið hvetur börn, foreldra, forsjáraðila, fagfólk og aðra áhugasama til að kynna sér drögin og senda inn umsögn. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum um áherslur stefnunnar, útfærslu aðgerða, framkvæmd og eftirfylgni.

S-178/2026· Drög að stefnu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. sep. 2026 – 2. okt. 2026· 14 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn fátækt barna, til ársins 2031.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-178/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1BSRB

    Í viðhengi er umsögn BSRB.

  • #2AMSIS
    AMSIS fagnar því að að gera eigi heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun til að uppræta fátækt meðal barna. Slíkt er löngu orðið tímabært. Fátækt meðal barna hefur lítið dregist saman á undanförnum áratug, þrátt fyrir ýmsar góðar aðgerðir stjórnvalda, svo sem gjaldfrjáls námsgögn og skólamáltíðir. AMSIS er sammmála þeim aðgerðum eða stoðum sem nefndar eru í tillögunni. AMSIS vill þó benda á nokkur atriði: • Mikilvægt er að gera heildstæða tómstundastefnu fyrir börn á Íslandi til að tryggja megi þátttöku allra barna óháð stöðu þeirra. Auk fjárhagslegrar stöðu foreldra, þarf að huga að mismunandi at… Lesa alla

    AMSIS fagnar því að að gera eigi heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun til að uppræta fátækt meðal barna. Slíkt er löngu orðið tímabært. Fátækt meðal barna hefur lítið dregist saman á undanförnum áratug, þrátt fyrir ýmsar góðar aðgerðir stjórnvalda, svo sem gjaldfrjáls námsgögn og skólamáltíðir. AMSIS er sammmála þeim aðgerðum eða stoðum sem nefndar eru í tillögunni. AMSIS vill þó benda á nokkur atriði: • Mikilvægt er að gera heildstæða tómstundastefnu fyrir börn á Íslandi til að tryggja megi þátttöku allra barna óháð stöðu þeirra. Auk fjárhagslegrar stöðu foreldra, þarf að huga að mismunandi atgervi barna, búsetu og fleira. Jafnframt þarf slík stefna að taka mið af því sem barni er fyrir bestu og velferð barna. Tómstundir þurfa að efla börn og styrkja. Því þarf að huga að álagi á börn vegna tómstunda, fjölda og lengd æfinga og hvort og þá hve oft er æskilegt að börn á ákveðnum aldri ferðist um langan veg s.s. til að keppa. • Börn innflytjenda eru gjarnan í veikari stöðu en önnur börn, jafnvel þó að þau séu fædd á Íslandi eða hafa búið hér frá unga aldri. Þau eru gjarnan ótengdari samfélaginu, hafa ekki nægilega góðan orðaforða og skilning á íslensku tungumáli. Fjölskyldurnar hafa lítið sem ekkert bakland. Efla þarf íslenskukennslu fyrir foreldra barnanna þeim að kostnaðarlausu og koma upp úrræði þar sem foreldrar fá stuðning til að aðlagast íslensku samfélagi. Þannig er hægt að stuðla að því að börnin standi jafnfætis öðrum börnum hvað varðar tækifæri og menntun. AMSIS leggur áherslu á að því fjármagni sem varið er til velferðar barna og til að uppræta fátækt er fjárfesting til framtíðar.

  • #3Ungmennafélag Íslands

    Í viðhengi er umsögn UMFÍ.

  • #4Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  • #5Landssamtökin Þroskahjálp

    Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-178/2026: Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna · Alviti