Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-177/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til breytinga á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (vændiskaup).

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að sektir verði afnumdar sem viðurlagategund vegna brota á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, svo að ekki verði lengur heimilt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Í öðru lagi að hámarksrefsing vegna brota á 2. mgr. 206. gr., sem gerir refsivert að kaupa vændi af barni, verði hækkuð úr 2 ára fangelsi í 4 ára. Í þriðja lagi að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti endurgjaldi fyrir vændi en sá sem það þiggur. Í fjórða lagi að saknæmisstig vegna brota gegn 2. mgr. 206. gr. verði bæði ásetningur og gáleysi að því er varðar aldur barns. Markmiðin með framangreindum breytingum eru því að draga úr eftirspurn eftir vændi, þ. á m. barnavændi, draga úr mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri glæpastarfsemi og kynferðisbrotum. Almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga verða að vera nægileg til að draga úr kerfisbundinni eftirspurn eftir vændi.

S-177/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. sep. 2026 – 2. okt. 2026· 11 umsagnir

Drög að frumvarpi til breytinga á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (vændiskaup).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-177/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Renata Sara Arnórsdóttir
    Ég vil benda á skaðsemi þess að glæpavæða kaupendur kynlífsþjónustu/vændis samkvæmt gögnum alþjóðlegra mannréttindastofnana og reynslu seljanda í þeim löndum sem hafa innleitt svokölluðu sænsku leiðina. Ef markmið þessara breytinga á hegningarlögum er að gera konur og aðra jaðarsetta samfélagshópa útsettari fyrir ofbeldi, færa starfsemina lengra í undirheimana, auka fjárhagslega neyð og skapa meiri hræðslu við lögreglu þá verður því markmiði náð. Einnig vil ég nefna að það er ekkert sem heitir “barna vændi” því það er undantekningalaust barnamisnotkun og mansal rétt eins og “barna klám” eða “h… Lesa alla

    Ég vil benda á skaðsemi þess að glæpavæða kaupendur kynlífsþjónustu/vændis samkvæmt gögnum alþjóðlegra mannréttindastofnana og reynslu seljanda í þeim löndum sem hafa innleitt svokölluðu sænsku leiðina. Ef markmið þessara breytinga á hegningarlögum er að gera konur og aðra jaðarsetta samfélagshópa útsettari fyrir ofbeldi, færa starfsemina lengra í undirheimana, auka fjárhagslega neyð og skapa meiri hræðslu við lögreglu þá verður því markmiði náð. Einnig vil ég nefna að það er ekkert sem heitir “barna vændi” því það er undantekningalaust barnamisnotkun og mansal rétt eins og “barna klám” eða “hefndar klám” er ekki viðeigandi orðalag yfir stafrænt ofbeldi. Þeir sem borga til þess að nýðast og misnota börn eiga því að sjálfsögðu að vera glæpavæddir og mætti jafnvel setja þá aðila á skrá fyrir barnanýðingar. Að lokum vil ég mæla með bók þar sem við höfum öll gott af því að heyra raddir þeirra sem við viljum hjálpa: Not Your Rescue Project: Migrant Sex Workers Fighting for Justice eftir Chanelle Gallant og Elene Lam. Revolting Prostitutes: The Fight for Sex Workers’ Rights eftir Juno Mac og Molly Smith.

  • #2Jón Frímann Jónsson

    Þessi lög hafa ekki virkað og koma ekki til með að virka. Eina leiðin til þess að tryggja réttindi og heilsu kvenna og karla í þessu er að afglæpavæða kynlífsþjónustu og allt henni tengt. Þannig er hægt að tryggja mannréttindi allra sem að þessu koma. Þá er einnig hægt að koma í veg fyrir glæpi, mansal og annað ólögmæt, misnotkun og ofbeldi. Að gera kynlífsþjónustu að glæp hefur aðeins aukið ofbeldi og þá sérstaklega gegn konum síðan þetta var fært í lög. Það mun ekkert breytast ef þessari ógæfu stefnu verður haldið áfram á Íslandi.

  • #3Mannréttindastofnun Íslands

    Umsögn Mannréttindastofnunar Íslands um drög að frumvarpi til breytinga á vændisákvæði almennra hegningarlaga

  • #4Landssamtökin Þroskahjálp

    Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar

  • #5Stop the Traffik Iceland

    Meðfylgjandi er umsögn Stop the Traffik: Iceland.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-177/2026: Drög að frumvarpi til breytinga á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga · Alviti