Áform um lagasetningu - endurskoðun á lögum um velferð dýra nr. 55/2013
Í áformaskjalinu er lögð til heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra nr. 55/2013.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-175/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 30. september 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
- #1Nicolai Gissur Ingvarsson
Ég legg til að blanketbans á tegundum verði algerlega afnumin og innleitt verði svokallað PPP (potential perro peligrosso) kerfi eins og það kallast á Spáni. Til að halda vissum tegundum þarf að sækja um leyfi, færð skírteini ef þú uppfyllir allt sem þarf, ekkert ofbeldi á sakaskrá, geðmat, þarft sértryggingar, og fylgja strangari lögum.
- #2Ragnar Þór Egilsson
Krafa um hæfni til að stunda gæsar- og rjúpnaveiðar Ég vil einnig benda á að við endurskoðun laga um velferð dýra nr. 55/2013 þurfi að skoða sérstaklega hvort nægilegar kröfur séu gerðar til þeirra sem stunda gæsar- og rjúpnaveiðar með haglabyssu. Að mínu mati þarf að tryggja að einstaklingur sem fer á slíkar veiðar hafi bæði nægilega skothæfni og líkamlega getu til að meðhöndla haglabyssu á öruggan hátt og stunda veiðarnar þannig að dýrum sé ekki valdið óþarfa sársauka eða þjáningu. Ég legg því til að gerð verði krafa um að veiðimaður sýni fram á lágmarks skothæfni, til dæmis með því að sk… Lesa alla
Krafa um hæfni til að stunda gæsar- og rjúpnaveiðar Ég vil einnig benda á að við endurskoðun laga um velferð dýra nr. 55/2013 þurfi að skoða sérstaklega hvort nægilegar kröfur séu gerðar til þeirra sem stunda gæsar- og rjúpnaveiðar með haglabyssu. Að mínu mati þarf að tryggja að einstaklingur sem fer á slíkar veiðar hafi bæði nægilega skothæfni og líkamlega getu til að meðhöndla haglabyssu á öruggan hátt og stunda veiðarnar þannig að dýrum sé ekki valdið óþarfa sársauka eða þjáningu. Ég legg því til að gerð verði krafa um að veiðimaður sýni fram á lágmarks skothæfni, til dæmis með því að skjóta 10 leirdúfur og hitta að minnsta kosti 8. Einnig verði metið hvort viðkomandi hafi næga líkamlega getu til að meðhöndla haglabyssu, miða, skjóta og bregðast rétt við ef fugl særist. Skoða þarf jafnframt hvort staðbundin björgunarsveit eða annar hæfur og óháður aðili á því svæði þar sem veiðar fara fram geti haft ákveðið hlutverk í þessu mati, sérstaklega þegar sótt er um veiðileyfi eða heimild til veiða á viðkomandi svæði. Slíkur aðili gæti metið, eftir fyrirfram ákveðnum og samræmdum reglum, hvort sérstakar aðstæður gefi tilefni til þess að krefjast frekara hæfnimats. Ég legg áherslu á að slíkt mat yrði að byggjast á skýrum, hlutlægum og samræmdum reglum, þannig að ekki verði um geðþóttaákvarðanir að ræða. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna þess að með haglabyssu dreifast haglarnir yfir ákveðið svæði og ófullnægjandi skothæfni getur aukið hættu á að fuglar verði særðir án þess að veiðimaður nái þeim. Veiðimaður ber jafnframt ábyrgð á því að gera það sem í hans valdi stendur til að aflífa dýr sem hann hefur sært. Ég tel því að við endurskoðun laganna eigi að skoða hvort setja þurfi skýrari lágmarkskröfur um skothæfni, þjálfun, meðferð haglabyssu og líkamlega getu veiðimanna. Ég vísa jafnframt til þess myndbands sem fylgir þessari umsögn sem dæmis um þau sjónarmið sem ég tel að löggjafinn þurfi að hafa til hliðsjónar við þessa endurskoðun: https://www.youtube.com/watch?v=sJI0y1ISbuk
- #3Margrét Einarsdóttir
Ég mæli með að endurskoða ákvæði í reglum um dýravernd þar sem aldur kettlinga og hvolpa verði verði hækkaður í samræmi við önnur lönd. Ræktendur katta á Íslandi fylgja reglum FiFé (Federacion international Felinos). Þar var aldur fyrir aldur á afhendingu kettlinga hækkaður úr 12 vikum í 14. Á Íslandi er leyfilegt að afhenda kettlinga við 8 vikna aldur sem er ekki í samræmi við alþjóðlega dýravernd. Sama á við um hvolpa. Eins mæli ég með að ítreka betur að dýr eigi að vera örmerkt. Hægt væri að setja í reglur um slíkt hjá dýralæknum. Að ef inn komi einstaklingur með dýr (þá aðallega hunda og k… Lesa alla
Ég mæli með að endurskoða ákvæði í reglum um dýravernd þar sem aldur kettlinga og hvolpa verði verði hækkaður í samræmi við önnur lönd. Ræktendur katta á Íslandi fylgja reglum FiFé (Federacion international Felinos). Þar var aldur fyrir aldur á afhendingu kettlinga hækkaður úr 12 vikum í 14. Á Íslandi er leyfilegt að afhenda kettlinga við 8 vikna aldur sem er ekki í samræmi við alþjóðlega dýravernd. Sama á við um hvolpa. Eins mæli ég með að ítreka betur að dýr eigi að vera örmerkt. Hægt væri að setja í reglur um slíkt hjá dýralæknum. Að ef inn komi einstaklingur með dýr (þá aðallega hunda og ketti) sem er ekki örmerkt sé það skylda þeirra að örmerkja um leið og dýr kemur til dýralæknis í Bólusetningu eða annað. Enn fremur langar mig að bæta reglur um ófrjósemisaðgerðir dýra. Dýr sem fá að valsa inn og út (þá aðallega kettir) séu örmerktir og búnir að fara í ófrjósemisaðgerð. Hvort heldur að um sé að ræða læðu eða fress. Þó svo að fress sé aðal áherslan. Sé ógeldur fress nappaður og náist samband við eiganda sé sá sami sektaður fyrir að hafa ekki fylgt þessu ákvæði. Læður sem sífellt breima eru í mikilli hættu ef þær verða ekki kettlingafullar. Síbreim getur valdið miklum vandamálum fyrir heilsu læðunar, sem oft endar með sýkt leg. Fyrir ræktendur hreinræktaðra katta er það þannig að kettir eru ekki afhendir nema eftir ófrjósemisaðgerð og örmerkingu. Fyrir ræktendur dýra sé leyft að notast við þau lyf sem hafa sem minnstu neikvæð áhrif á dýrin. Notkun melatóníns með ígræðslu er því ákjósanlegasti kosturinn. Sérstaklega fyrir ketti. Hvað varðar aflífun dýra þá ætti álit dýralæknis viðkomandi dýrs að geta sagt til hvort sé tímabært að aflífa eða ekkinog því vega meira en álit MAST.
- #4Bændasamtök Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Bændasamtaka Íslands.
- #5Hildur Edda Þórarinsdóttir
Varðar tegundina border-collie í útikennel sem sleðahundur. Vinkona mín er með sleðahunda og fékk hjá mér mjög loðinn border-collie hund sem leið vel í útikennel hjá henni, þar sem hundarnir eru með einangruð hús til að fara inn í. Hún fékk fáeina daga til að fjarlægja hundinn vegna tegundar sinnar. Í nágrannalöndum, t.d. í Skotlandi eru border-collie haldnir við svipaðar aðstæður og líður vel. Þeir eru vel einangraðir með góðan feld og þola vel að búa í útikennel eins og skeðahundar hér á landi. Legg því til að reglum um þetta verði breytt þannig að heimilt verði að bæta border-collie inn í þ… Lesa alla
Varðar tegundina border-collie í útikennel sem sleðahundur. Vinkona mín er með sleðahunda og fékk hjá mér mjög loðinn border-collie hund sem leið vel í útikennel hjá henni, þar sem hundarnir eru með einangruð hús til að fara inn í. Hún fékk fáeina daga til að fjarlægja hundinn vegna tegundar sinnar. Í nágrannalöndum, t.d. í Skotlandi eru border-collie haldnir við svipaðar aðstæður og líður vel. Þeir eru vel einangraðir með góðan feld og þola vel að búa í útikennel eins og skeðahundar hér á landi. Legg því til að reglum um þetta verði breytt þannig að heimilt verði að bæta border-collie inn í þennan hóp, en eins og kunnugt er eru þeir notaðir til að draga bæði sem blendingar og hreinræktaðir. Þessi hreinræktaði border-collie hundur var í góðu holdafari og sá loðnasti af sleðahundunum, en henni var ekki heimilt að hafa hann vegna þess að reglugerðin tilgreindi ekki tegundina border-collie og því þarf að breyta og bæta tegundinni við.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.