Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-172/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó - Áform

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga stórþörungarækt í sjó.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Stórþörungarækt í sjó er enn á frumstigi hér á landi en áhugi á greininni hefur aukist á undanförnum árum. Greinin er talin geta skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar, nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar, meðal annars með framleiðslu hráefna til matvæla, fóðurs, lífefna og annarra afurða. Núgildandi löggjöf tekur hins vegar ekki með skýrum og heildstæðum hætti á ræktun stórþörunga í sjó og sérstakt leyfiskerfi fyrir slíka starfsemi hefur ekki verið mótað. Með fyrirhugaðri lagasetningu er stefnt að því að skapa skýran, fyrirsjáanlegan og heildstæðan lagaramma um stórþörungarækt í sjó. Meðal annars verður fjallað um rannsóknar- og rekstrarleyfi, aðgang að ræktunarsvæðum, úthlutun og nýtingu svæða, umhverfisvernd, ræktunarefni, vöktun, búnað og eftirlit. Jafnframt er markmiðið að tryggja að starfsemin þróist á grundvelli sjálfbærrar nýtingar, vistkerfisnálgunar og varúðarsjónarmiða. Áformað er að setja sérstök heildarlög um ræktun stórþörunga í sjó. Ekki er gert ráð fyrir að lagasetningin hafi fjárhagsáhrif á ríkissjóð umfram það sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í fjárlögum og fjármálaáætlun. Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.

S-172/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 11. sep. 2026 – 25. sep. 2026· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó - Áform

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga stórþörungarækt í sjó.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-172/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Resea Energy ehf.
    Resea Energy ehf., sem undirbýr tilraunaræktun beltisþara á Norðurlandi, fagnar áformum um heildstæð lög um stórþörungarækt í sjó og leggur áherslu á eftirfarandi tvö atriði: Forgangur frá rannsóknarleyfi að rekstrarleyfi Í kafla A.2, bls. 2, segir að rannsóknarleyfi skuli vera skýr um að þau veiti „hvorki forgang né lögmætar væntingar um síðara rekstrarleyfi“. Við leggjum til að rannsóknarleyfishafi njóti tímabundins og skilyrts forgangs að rekstrarleyfi á sama afmarkaða svæði, skilgreindu með hnitum. Skilyrði forgangsins, meðal annars um framvindu rannsókna, umhverfisvernd, nýtingu og ums… Lesa alla

    Resea Energy ehf., sem undirbýr tilraunaræktun beltisþara á Norðurlandi, fagnar áformum um heildstæð lög um stórþörungarækt í sjó og leggur áherslu á eftirfarandi tvö atriði: Forgangur frá rannsóknarleyfi að rekstrarleyfi Í kafla A.2, bls. 2, segir að rannsóknarleyfi skuli vera skýr um að þau veiti „hvorki forgang né lögmætar væntingar um síðara rekstrarleyfi“. Við leggjum til að rannsóknarleyfishafi njóti tímabundins og skilyrts forgangs að rekstrarleyfi á sama afmarkaða svæði, skilgreindu með hnitum. Skilyrði forgangsins, meðal annars um framvindu rannsókna, umhverfisvernd, nýtingu og umsóknarfrest, verði skýrð í rannsóknarleyfinu frá upphafi, þannig að leyfishafi þekki forsendur áframhaldandi rekstrar áður en hann leggur í rannsóknarkostnað. Aðstæður til þararæktar geta verið mjög mismunandi milli fjarða og flóa og einnig milli staða innan sama fjarðar eða flóa. Dýpi, botngerð, straumar og ölduálag ráða miklu um hentugleika staðar og val á búnaði. Rannsóknarkostnaður og fjárfestingar eru því að verulegu leyti staðbundin. Það er óeðlilegt að rannsóknarleyfishafi beri kostnað og áhættu af því að sannreyna hentugleika svæðis án þess að njóta skilyrts forgangs til áframhaldandi rekstrar þar. Slíkt fyrirkomulag dregur úr hvata til rannsókna og fjárfestinga og vinnur gegn markmiði lagasetningarinnar um uppbyggingu greinarinnar. Forgangurinn verði bundinn hinu hnitsetta ræktunarsvæði og veiti ekki almennan forgang innan heils fjarðar eða flóa. Umsóknir og leyfi við gildistöku Í áformunum er ekki skýrt hvernig farið verði með útgefin leyfi og fyrirliggjandi umsóknir við gildistöku laganna. Við leggjum til skýr bráðabirgðaákvæði sem varðveiti gildi útgefinna leyfa og þær heimildir sem í þeim felast út leyfistímann. Jafnframt verði tryggð skýr afgreiðsla fyrirliggjandi umsókna og að þegar unnar rannsóknir, umsagnir og önnur gögn nýtist áfram án óþarfa endurtekningar á leyfisferlinu.

  • #2Náttúrufræðistofnun

    Í viðhengi er umsögn Náttúrufræðistofnunar.

  • #3Samtök þörungafélaga

    Samtök þörungafélaga óska eftir að ráðuneytið bæti samtökunum við lista hagaðila, móti aðgengilegt kerfi rannsóknarleyfa og meti raunverulegan kostnað vegna leyfisumsókna og reksturs samkvæmt fyrirhugaðri löggjöf áður en frumvarp verður lagt fram. Samtökin bjóða fram þekkingu félagsaðila við frekari vinnu og munu taka afstöðu til nánari ákvæða þegar drög að frumvarpi liggja fyrir. Hjálagt er umsögn samtakanna.

  • #4Sveitarfélagið Stykkishólmur

    Í viðhengi er umsögn Sveitarfélagsins Stykkishólms.

  • #5Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS)

    Meðfylgjandi er umsögn SFS

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-172/2026: Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó - Áform · Alviti