Breyting á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
Lagðar verða til breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með það að markmiði að styrkja og skýra lagarammann, einkum hvað varðar vernd og sjálfbæra nýtingu
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-171/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. september 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
- #1Bændasamtök Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Bændasamtaka íslands,
- #2Fuglaverndarfélag Íslands
Fuglavernd fagnar framlögðum áformum um lagasetningu með ákvæðum um stjórnunar- og verndaráætlanir og um mögulegt inngrip ráðherra í ósjálfbærar hlunnindaveiðar. Vakin er athygli á því að fjallað var um bæði þessi mikilvægu atriði í umfangsmikilli úttekt sérfræðingahóps þáverandi ráðherra umhverfismála um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, sem út kom árið 2013 Eins og skýrslan sýndi kyrfilega fram á er mikil þörf á heildarendurskoðun. Fuglavernd styður breytingarnar sem hér eru til umfjöllunar en skorar á stjórnvöld að fresta ekki frekar heildarendurskoðun og líta ekki svo á a… Lesa alla
Fuglavernd fagnar framlögðum áformum um lagasetningu með ákvæðum um stjórnunar- og verndaráætlanir og um mögulegt inngrip ráðherra í ósjálfbærar hlunnindaveiðar. Vakin er athygli á því að fjallað var um bæði þessi mikilvægu atriði í umfangsmikilli úttekt sérfræðingahóps þáverandi ráðherra umhverfismála um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, sem út kom árið 2013 Eins og skýrslan sýndi kyrfilega fram á er mikil þörf á heildarendurskoðun. Fuglavernd styður breytingarnar sem hér eru til umfjöllunar en skorar á stjórnvöld að fresta ekki frekar heildarendurskoðun og líta ekki svo á að með þessum breytingum séu lögin fullnægjandi, því sú er ekki raunin. Í vihengi má sjá athugasemdir Fuglaverndar við einstakar lagagreinar í breytingartillögunni.
- #3Skotveiðifélag Íslands
Umsögn Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS) um mál nr. S-171/2026 Áform um breytingu á lögum nr. 64/1994 SKOTVÍS gerir alvarlega athugasemd við að áform um breytingu á lögum nr. 64/1994 hafi verið birt í samráðsgátt án þess að nokkuð samráð hafi verið haft við félagið. Félagið fékk fyrst ábendingu um málið utan úr bæ kl. 14:45 í dag, 24. september 2026, sama dag og umsagnarfrestur átti að renna út. Félaginu hefur því ekki gefist tækifæri til að fjalla um áformin né vinna efnislega umsögn innan frestsins. Félagið telur ámælisvert og að ekki hafi verið haft neitt samráð við félagið við vinn… Lesa alla
Umsögn Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS) um mál nr. S-171/2026 Áform um breytingu á lögum nr. 64/1994 SKOTVÍS gerir alvarlega athugasemd við að áform um breytingu á lögum nr. 64/1994 hafi verið birt í samráðsgátt án þess að nokkuð samráð hafi verið haft við félagið. Félagið fékk fyrst ábendingu um málið utan úr bæ kl. 14:45 í dag, 24. september 2026, sama dag og umsagnarfrestur átti að renna út. Félaginu hefur því ekki gefist tækifæri til að fjalla um áformin né vinna efnislega umsögn innan frestsins. Félagið telur ámælisvert og að ekki hafi verið haft neitt samráð við félagið við vinnslu málsins. Félagið vill í því sambandi benda á 3. gr. laganna þar sem sérstaklega er tekið fram að samráð skuli haft við félagið um mál sem hafa stefnumótandi mál um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Fyrirhugaðar breytingar varða slík mál. Að sama skapi er það líka umhugsunarefni ráðuneytið skuli ekki einu sinni hafa sent félaginu tilkynningu þegar áformin voru birt. Einn tölvupóstur til þeirra aðila sem lögin tilgreina sem samráðsaðila hefði dugað til að vekja athygli þeirra á málinu. SKOTVÍS átelur þessi vinnubrögð harðlega og óskar eftir að málið verði þegar tekið úr Samráðsgátt. Málið verði tekið upp við samráðsaðila skv. lögunum, fundað verði með þeim og málið rætt. Í kjölfarið, eftir lögmætt samráð, verði málið birt á ný í samráðsgáttinni með nýjum, rúmum umsagnarfresti. Þessi umsögn lýtur bara að samráðsferlinu en félagið lýsir sig mótfallið öllum breytingum á lögunum nema áður fari fram lögmætt samráð. SKOTVÍS áskilur sér rétt til að skila efnislegri umsögn þegar félagið hefur fengið raunhæft tækifæri til að fara yfir áformin. Fyrir hönd stjórnar Skotveiðifélags Íslands, Áki Ármann Jónsson formaður SKOTVÍS
- #4Dýraverndarsamband Íslands
Hér meðfylgjandi er umsögn Dýraverndarsambands Íslands.
- #5Þórhallur Borgarsson
umsögn um mál S-171/2026 Hreindýraráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við þær fyrirætlanir stjórnvalda sem byrtast í framlögðum drögum að breytingum á Villidýralögum að svo stöddu. Ráðið áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum. Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við það að ráðið hafi ekki verið látið vita af áformuðum breytingum á lögunum. Að formaður Hreindýraráðs "hafi frétt út í bæ" að mál sem varðar ráðið væri komið í samráðsgátt getur ekki talist vera ásættanleg stjórnsýsla. Ýmsar af þeim tillögum sem finna má í fyrirhuguðum breytingum geta haft áhrif með einum eða ö… Lesa alla
umsögn um mál S-171/2026 Hreindýraráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við þær fyrirætlanir stjórnvalda sem byrtast í framlögðum drögum að breytingum á Villidýralögum að svo stöddu. Ráðið áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum. Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við það að ráðið hafi ekki verið látið vita af áformuðum breytingum á lögunum. Að formaður Hreindýraráðs "hafi frétt út í bæ" að mál sem varðar ráðið væri komið í samráðsgátt getur ekki talist vera ásættanleg stjórnsýsla. Ýmsar af þeim tillögum sem finna má í fyrirhuguðum breytingum geta haft áhrif með einum eða öðrum hætti á þá aðila sem eiga fulltrúa í hreindýraráði og þarfnast því nánari skoðunar sem ekki gefst tími til að framkvæma innan þess umsagnarfrest sem gefin er sökum þess hve seint Hreindýraráð frétti af málinu. Fyrir hönd Hreindýraráðs Þórhallur Borgarsson formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.