Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-169/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um öryggisþjónustu

Áformaðar eru breytingar á lögum með það að markmiði að stuðla að auknu öryggi almennings og einfalda stjórnsýslu málaflokksins.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: janúar).

Þann 4. maí 2026 skipaði dómsmálaráðherra starfshóp til að endurskoða lög um öryggisþjónustu nr. 58/1997 með hliðsjón af löggjöf annarra Norðurlanda og leggja til breytingar á lögunum í samræmi við þá yfirferð. Þá er starfshópnum jafnframt falið, í samráði við Atvinnuvegaráðuneytið (ATRN), að taka til skoðunar efnisákvæði laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald er varða dyraverði, þar á meðal fýsileika þess að færa ákvæði um dyravörslu undir endurskoðuð lög um öryggisþjónustu. Markmið áformanna er annars vegar að stuðla að auknu öryggi almennings og hins vegar, eftir atvikum, að einfalda stjórnsýsluna, með því að mögulega færa tengd ákvæði sem varða dyraverði úr lögum nr. 85/2007 yfir í endurskoðuð lög um öryggisþjónustu. Um er að ræða heildarendurskoðun á lögum um öryggisþjónustu þar sem áhersla verður lögð á að stuðla að bættu réttaröryggi þeirra sem þiggja þjónustuna sem og almennu öryggi í víðara samhengi. Að auki þykir rétt að endurskoða núverandi kröfur um dyravörslu, endurskoða skilyrði til að öðlast leyfi til að starfa við dyravörslu og veita viðeigandi stjórnvöldum auknar heimildir til að beita viðurlögum og afturkalla leyfi þegar svo ber undir. Í kjölfar lagabreytinga yrðu gerðar viðeigandi breytingar á gildandi reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli núgildandi laga. Áformaðar breytingar munu m.a. kveða á um gildisvið laganna og markmið, leyfisveitanda, skilyrði fyrir leyfisveitingu, eftirlit með leyfishöfum, afturköllun leyfis og viðurlög, hæfnisskilyrði, menntun, þjálfun og verksvið starfsmanna öryggisfyrirtækja og dyravarða, tryggingar og miðlun gagna, alþjóðlega staðla, þ.m.t. í tengslum við verkefni erlendra öryggisþjónusta hér á landi, heimildir til bakgrunnsathugana umsækjenda, kröfur um fjölda dyravarða/öryggisvarða miðað við fjölda gesta á m.a. samkomum, skemmtistöðum og krám og í tengslum við tækifærisleyfi og rekstrarleyfi með áfengisveitingum, og heimildir lögreglu til þvingunarráðstafana þegar svo ber undir. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á 158. Löggjafarþingi, í byrjun árs 2027.

S-169/2026· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. sep. 2026 – 30. sep. 2026· 2 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um öryggisþjónustu

Áformaðar eru breytingar á lögum með það að markmiði að stuðla að auknu öryggi almennings og einfalda stjórnsýslu málaflokksins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-169/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-169/2026: Áform um breytingar á lögum um öryggisþjónustu · Alviti