Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-165/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um lagasetningu til innleiðingar markaðseftirlitsreglugerðar ESB

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu sem miðar að því að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 um markaðseftirlit.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011 var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 í desember 2023. Áformað er að innleiða reglugerðina hér á landi með setningu nýrra heildarlaga um markaðseftirlit og breytingum á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995. Reglugerð (ESB) 2019/1020 er ætlað að styrkja markaðseftirlit, bæta samstarf eftirlitsstjórnvalda og stuðla að því að vörur sem boðnar eru fram á innri markaðnum uppfylli þær kröfur sem um þær gilda. Hún tekur meðal annars mið af aukinni netverslun og fjallar sérstaklega um eftirlit með vörum sem koma inn á EES-svæðið frá þriðju ríkjum. Almennar reglur um vöruöryggi og markaðseftirlit er nú að finna í sömu lögum hér á landi, þ.e. lögum nr. 134/1995. Áformað er að aðskilja þessa tvo þætti löggjafarinnar með setningu nýrra heildarlaga um markaðseftirlit sem innleiði reglugerð (ESB) 2019/1020 og breytingum á lögum nr. 134/1995 þannig að þau fjalli framvegis eingöngu um vöruöryggi. Markmiðið með þessari tilhögun er að einfalda og skýra gildandi regluverk og tryggja betra samræmi við samsvarandi löggjöf Evrópusambandsins. Í nýjum lögum verður meðal annars fjallað um hlutverk og valdheimildir markaðseftirlitsstjórnvalda, samstarf þeirra og samræmingu markaðseftirlits og hlutverk miðlægrar tengiskrifstofu (single liaison office) sem gert er ráð fyrir að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun sinni.

S-165/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 3. sep. 2026 – 17. sep. 2026· 4 umsagnir

Áform um lagasetningu til innleiðingar markaðseftirlitsreglugerðar ESB

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu sem miðar að því að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 um markaðseftirlit.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-165/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-165/2026: Áform um lagasetningu til innleiðingar markaðseftirlitsreglugerðar ESB · Alviti