Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-163/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi)

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum sem er liður í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Frumvarpið er liður í stefnu og aðgerðum stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi, Öruggara Ísland, sem kynnt var í janúar 2026. Skipulögð brotastarfsemi hér á landi hefur aukist að umfangi og tekið á sig flóknari og alvarlegri mynd. Brotahópar starfa í auknum mæli þvert á landamæri, nýta sér tækniframfarir og flókin fjármálatengsl. Brotahópar fremja með skipulögum hætti meðal annars fíkniefnabrot, peningaþvætti, mansal, netbrot og alvarleg ofbeldisbrot. Með frumvarpinu er leitast við að bregðast við þeirri þróun sem orðið hefur á skipulagðri brotastarfsemi hér á landi með breytingum á refsilöggjöf, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum. Lagðar eru til breytingar á almennum hegningarlögum sem miða að því að refsilöggjöfin taki skýrar mið af þeirri auknu hættu sem fylgir skipulagðri brotastarfsemi. Lagt er til að heimilt verði að hækka refsingu þegar brot er liður í starfsemi skipulagðs brotahóps og þegar barn eða ungmenni undir 18 ára aldri er fengið til þátttöku í refsiverðri háttsemi, þar á meðal gegn greiðslu eða öðrum ávinningi. Þá verður skilgreining á skipulögðum brotahópi rýmkuð og færð nær skilgreiningu samnings Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri skipulagðri brotastarfsemi. Jafnframt verður hámarksrefsing fyrir gegn 175. gr. a. hækkuð úr fjögurra ára fangelsi í átta ár. Enn fremur er lagt til að heimildir til upptöku ólögmæts ávinnings verði rýmkaðar. Unnt verður að gera verðmæti upptæk þegar ætla má að þau séu ávinningur af refsiverðri háttsemi eða standi í beinum tengslum við slíka háttsemi, þótt ekki liggi fyrir sakfelling fyrir tiltekið brot. Upptaka verður háð dómi eða úrskurði dómstóls. Breytingin tekur mið af alþjóðlegri þróun, þar á meðal regluverki ESB, tilmælum FATF og nýlegri löggjöf í Svíþjóð. Í lögum um meðferð sakamála eru lagðar til breytingar sem miða að því að laga rannsóknarreglur að umfangi og eðli alvarlegrar og skipulagðrar brotastarfsemi. Lagt er til að almennur frestur til að veita verjanda aðgang að rannsóknargögnum verði lengdur úr þremur vikum í sex, án þess þó að hróflað verði við þeirri meginreglu að aðgangur skuli veittur jafnskjótt og unnt. Hámarkslengd gæsluvarðhalds áður en mál er höfðað verður lengd úr tólf vikum í sex mánuði. Skilyrði gæsluvarðhalds verða óbreytt og dómstólar leggja eftir sem áður sjálfstætt mat á nauðsyn þess og meðalhóf. Jafnframt er lagt til að skýr lagaheimild verði sett um stafræna leit í haldlögðum farsímum, tölvum og öðrum raftækjum. Heimildir til öflunar upplýsinga frá fjarskiptafyrirtækjum munu ná til annarra sambærilegra þjónustuveitenda og skýrt að þær taki bæði til upplýsinga sem þegar hafa orðið til og upplýsinga sem verða til síðar. Þá verður ákæranda heimilt, þegar brýn hætta er á sakarspjöllum, að ákveða að tiltekin rannsóknaraðgerð skv. 80. - 82. gr. laganna hefjist án undangengins dómsúrskurðar. Krafa skal þá lögð fyrir héraðsdóm svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að aðgerð hefst. Einnig er lagt til að úrskurður um slíkar aðgerðir geti gilt í allt að átta vikur í stað fjögurra. Með breytingum á lögreglulögum er lagt til að lögregla starfræki sérstakan samráðsvettvang með öðrum viðeigandi stjórnvöldum og einkaaðilum til að efla samvinnu og upplýsingamiðlun gegn skipulagðri brotastarfsemi. Einnig verður lögfest heimild til notkunar löggæslumyndavéla og reksturs miðlægs kerfis fyrir vinnslu og varðveislu myndefnis. Ráðherra verður falið að setja nánari reglur um notkun kerfisins, þar á meðal um notkun gervigreindar, greiningu andlitsmynda, búkmyndavélar og sjálfvirka greiningu skráningarnúmera bifreiða. Þá eru lagðar til breytingar á málsmeðferð er varðar eftirlit með einstaklingum sem tengjast skipulögðum brotahópum.

S-163/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. sep. 2026 – 16. sep. 2026· 12 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi)

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum sem er liður í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-163/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Örn Ægir Reynisson
    UMSÖGN UM MÁL NR. S-163/2026 Drög að frumvarpi um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum – aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi Undirritaður leggst gegn því að frumvarpið verði lagt fram í núverandi mynd. Ég styð að gripið sé með markvissum hætti gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali, peningaþvætti, alvarlegum ofbeldisbrotum og hagnýtingu barna. Slík markmið réttlæta hins vegar ekki almennar og illa afmarkaðar skerðingar á friðhelgi einkalífs, persónuvernd, frelsi einstaklinga, eignarrétti og rétti sakborninga til réttlátrar málsmeðferðar. F… Lesa alla

    UMSÖGN UM MÁL NR. S-163/2026 Drög að frumvarpi um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum – aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi Undirritaður leggst gegn því að frumvarpið verði lagt fram í núverandi mynd. Ég styð að gripið sé með markvissum hætti gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali, peningaþvætti, alvarlegum ofbeldisbrotum og hagnýtingu barna. Slík markmið réttlæta hins vegar ekki almennar og illa afmarkaðar skerðingar á friðhelgi einkalífs, persónuvernd, frelsi einstaklinga, eignarrétti og rétti sakborninga til réttlátrar málsmeðferðar. Frumvarpið felur ekki aðeins í sér hert viðurlög gegn skipulögðum brotahópum. Það felur jafnframt í sér grundvallarbreytingar á valdajafnvægi lögreglu, ákæruvalds og dómstóla. Með nokkrum ákvæðum er dregið úr fyrirfram­eftirliti dómstóla og ákvörðunarvald flutt til lögreglu, ákærenda og stýrihópa innan löggæslukerfisins sjálfs. Réttaröryggi almennings má aldrei byggjast á því einu að treysta því að víðtækum heimildum verði ekki misbeitt. Lög verða að vera þannig úr garði gerð að misbeiting sé torvelduð með skýrum mörkum, rekjanleika, fyrirfram­eftirliti óháðra dómstóla og raunhæfum úrræðum fyrir þá sem aðgerðir beinast að. 1. Frumvarpið nær langt út fyrir skipulagða brotastarfsemi Fyrirsögn frumvarpsins gefur til kynna að um sértækar aðgerðir gegn skipulögðum brotahópum sé að ræða. Margar veigamestu breytingarnar eru þó settar inn sem almenn ákvæði í lög um meðferð sakamála og lögreglulög, án þess að beiting þeirra sé í lagatextanum bundin við rannsókn skipulagðrar brotastarfsemi. Þetta á meðal annars við um: • lengingu frests til afhendingar rannsóknargagna til verjanda, • stafræna leit í farsímum, tölvum og öðrum raftækjum, • öflun fjarskiptagagna hjá fjölbreyttum þjónustuveitendum, • upphaf símhlerunar og annarra leynilegra rannsóknaraðgerða án fyrirframúrskurðar dómara, • lengingu heimilda til slíkra aðgerða úr fjórum vikum í átta, • lengingu hámarksgæsluvarðhalds áður en mál er höfðað, • miðlægt myndavélakerfi lögreglu og notkun andlitsgreiningar og gervigreindar. Það er því ekki fullnægjandi að réttlæta allar breytingarnar með almennri vísan til skipulagðrar brotastarfsemi. Hver einstök heimild verður að standast sjálfstætt mat á nauðsyn, meðalhófi og afmörkun. 2. Leynilegar rannsóknaraðgerðir án fyrirframúrskurðar dómara Samkvæmt 8. gr. frumvarpsins gæti ákærandi ákveðið að hefja aðgerðir samkvæmt 80.–82. gr. laga um meðferð sakamála án undangengins dómsúrskurðar þegar talin er brýn hætta á sakarspjöllum. Umræddar aðgerðir geta meðal annars falið í sér: • öflun fjarskiptagagna, • símhlerun og upptöku fjarskipta, • leynilega hljóðupptöku, • leynilega myndatöku, • staðsetningarvöktun og notkun eftirfararbúnaðar. Krafa til dómstóls þyrfti ekki að berast fyrr en allt að 48 klukkustundum eftir að aðgerð hæfist. Þetta er ekki smávægileg tæknibreyting heldur verulegt frávik frá þeirri meginreglu að óháður dómari meti skilyrði mjög íþyngjandi og leynilegra aðgerða áður en þær hefjast. Það er ófullnægjandi úrræði að gögnum skuli eytt ef dómari synjar síðar um heimild. Inngripið í einkalíf hefur þá þegar átt sér stað. Starfsmenn lögreglu kunna að hafa séð eða heyrt viðkvæmar upplýsingar og öðlast vitneskju sem ekki verður eytt úr minni þeirra. Frumvarpið leysir heldur ekki skýrlega úr því hvort heimilt verði að nýta afleiddar upplýsingar eða rannsóknarslóðir sem uppgötvast með aðgerð sem dómari telur ólögmæta. Eftirfarandi varnagla vantar að lágmarki: • mun styttri hámarksfrest en 48 klukkustundir, • samtímaskráningu á nákvæmum ástæðum þess að ekki var unnt að bíða úrskurðar, • sjálfstætt mat á nauðsyn og meðalhófi aðgerðarinnar, • bann við notkun afleiddra upplýsinga úr ólögmætri aðgerð, • tryggan rekjanleika allra aðgangs- og vinnsluaðgerða, • tilkynningu til þess sem aðgerðin beindist að þegar rannsóknarhagsmunir leyfa, • raunhæfan rétt til kæru, bóta og annarra úrræða vegna ólögmætrar aðgerðar, • sjálfstætt ytra eftirlit sem er ekki innan lögreglu eða ákæruvalds. Ég tel að halda eigi meginreglunni um fyrirframúrskurð dómara vegna aðgerða samkvæmt 80.–82. gr. laganna. 3. Afnám aðkomu dómstóla að langvarandi eftirliti Með 12. og 13. gr. frumvarpsins er lagt til að fella niður núverandi skyldu til að bera áframhaldandi eftirlit með einstaklingi undir héraðsdóm þegar það hefur staðið lengur en fjóra mánuði. Í stað óháðs dómstóls ættu lögreglustjóri og stýrihópur um skipulagða brotastarfsemi að taka ákvörðun um áframhald eftirlitsins. Það er ekki sambærileg verndarráðstöfun. Stýrihópur innan löggæslukerfisins er ekki sjálfstæður og óvilhallur dómstóll. Sérstaklega alvarlegt er að þetta eftirlit getur beinst að einstaklingi án þess að hann sé grunaður um refsivert brot. Tengsl við aðra einstaklinga eða mat lögreglu á mögulegri hættu geta þannig orðið grundvöllur langvarandi eftirlits. Ef stjórnvöld telja sig þurfa að fylgjast leynilega með einstaklingi mánuðum saman ætti þörfin fyrir óháð dómstólaeftirlit að aukast eftir því sem eftirlitið stendur lengur, ekki minnka. Ég legg því til að 12. og 13. gr. verði felldar brott og núverandi krafa um staðfestingu héraðsdóms standi óbreytt. 4. Miðlægt myndavélakerfi, andlitsgreining og gervigreind Í 11. gr. er lagt til að lögreglu verði heimilt að nota löggæslumyndavélar við störf sín og starfrækja miðlægt kerfi þar sem myndefni er unnið og varðveitt. Ráðherra verði síðan falið að setja reglur um meðal annars: • andlitsgreiningu, • notkun gervigreindar, • búkmyndavélar lögreglu, • sjálfvirkan lestur skráningarnúmera bifreiða. Þetta ákvæði er alltof almennt. Grundvallarskilyrði fyrir notkun svo íþyngjandi tækni eiga að koma skýrt fram í lögum frá Alþingi en ekki vera ákveðin síðar með reglugerð ráðherra. Í lögunum sjálfum þyrfti meðal annars að afmarka: • nákvæman og tæmandi tilgang vinnslunnar, • við hvaða brot og aðstæður andlitsgreining mætti fara fram, • hvort rauntímaandlitsgreining yrði heimil, • hvaða gagnagrunna mætti tengja við myndakerfið, • hámarksvarðveislutíma myndefnis, • hverjir hefðu aðgang að kerfinu, • hvenær leita mætti eftir nafni, andliti, skráningarnúmeri eða ferðum einstaklings, • skyldu til að skrá allar leitir, skoðun, afritun og miðlun, • reglulega óháða úttekt á kerfinu, • rétt einstaklinga til upplýsinga, leiðréttingar og kæruleiða, • skýra ábyrgð vegna rangrar auðkenningar gervigreindar. Miðlæg söfnun myndefnis, andlitsgreining og sjálfvirk kortlagning á ferðum almennings getur breytt afmörkuðu myndavélaeftirliti í umfangsmikið persónueftirlitskerfi. Slíkt kerfi verður ekki réttlætt með almennum tilvísunum til skilvirkni lögreglu. Fram þarf að fara sjálfstætt mat á áhrifum á persónuvernd og mannréttindi, í opinberu samráði við Persónuvernd, lögmenn, tæknisérfræðinga og mannréttindasamtök, áður en slík heimild verður lögfest. 5. Óafmörkuð miðlun persónuupplýsinga til og frá einkaaðilum Samkvæmt 10. gr. skulu lögregla, stjórnvöld og einkaaðilar að eigin frumkvæði miðla sín á milli öllum upplýsingum, þar á meðal persónuupplýsingum, sem stuðla að markmiði samráðsvettvangsins. Orðalagið „öllum upplýsingum“ er óeðlilega víðtækt. Ekki er tilgreint: • hvaða einkaaðilar geti orðið þátttakendur, • hvaða tegundir persónuupplýsinga megi afhenda, • hvaða grunur eða önnur skilyrði þurfi að vera fyrir hendi, • hver beri ábyrgð á réttmæti upplýsinganna, • hvernig rangar upplýsingar verði leiðréttar, • hversu lengi þær verði varðveittar, • hverjir fái aðgang, • hvernig upplýsingamiðlunin verði skráð og endurskoðuð, • hvernig komið verði í veg fyrir að upplýsingar verði notaðar í öðrum tilgangi. Almenn tilvísun í persónuverndarlög í greinargerð kemur ekki í stað skýrrar afmörkunar í lagatextanum sjálfum. Sérstaklega þarf að gæta að tilgangstakmörkun, meðalhófi, réttleika upplýsinga, rekjanleika og rétti einstaklinga til leiðréttingar. 6. Sex mánaða gæsluvarðhald áður en mál er höfðað Lagt er til að almenn hámarkslengd gæsluvarðhalds áður en mál er höfðað verði tvöfölduð úr tólf vikum í sex mánuði. Gæsluvarðhald er frelsissvipting manns sem ekki hefur verið sakfelldur. Það er eitt þyngsta úrræði sem ríkið getur beitt einstakling á rannsóknarstigi. Sex mánaða varðhald án þess að ákæra hafi verið gefin út getur haft óafturkræf áhrif á heilsu, fjölskyldu, atvinnu, húsnæði og mannorð viðkomandi. Reglubundin endurskoðun dómara breytir ekki því að frumvarpið rýmkar almenna lagalega hámarkið verulega. Breytingin er heldur ekki afmörkuð í lagatextanum við skipulagða brotastarfsemi. Ég legg til að þessari breytingu verði hafnað. Ef sérstök undanþága er talin óhjákvæmileg þarf hún að vera þröngt bundin við nánar tilgreind, sérlega alvarleg brot og háð auknum kröfum um rannsóknarhraða og ítarlegan rökstuðning ákæruvalds. 7. Takmörkun á aðgangi verjanda að rannsóknargögnum Framlenging frests úr þremur vikum í sex getur skert raunhæfan möguleika sakbornings og verjanda hans til að bregðast við rannsóknaraðgerðum, mótmæla gæsluvarðhaldi og halda uppi vörnum. Sá sem sviptur hefur verið frelsi verður að hafa tímanlegan aðgang að þeim gögnum sem ákvörðun um frelsissviptingu byggist á. Ekki ætti að vera heimilt að halda gögnum frá verjanda í sex vikur eingöngu á grundvelli mats lögreglu. Sérhver lenging umfram núverandi frest ætti að vera háð rökstuddum úrskurði dómara og taka aðeins til nákvæmlega tilgreindra gagna. 8. Upptaka eigna án sakfellingar Frumvarpið heimilar upptöku verðmæta án þess að sakfellt hafi verið fyrir tiltekið brot. Þótt endanleg ákvörðun verði tekin af dómstóli er um verulegt inngrip í eignarrétt að ræða. Tryggja verður að sönnunarbyrði um ólögmætan uppruna hvíli raunverulega á ríkinu og að einstaklingur þurfi ekki í framkvæmd að sanna sakleysi sitt eða lögmætan uppruna allra eigna sinna. Einnig þarf að tryggja rétt til lögmannsaðstoðar, vernd grandlausra þriðju manna, skýrar kæruleiðir og bætur vegna rangrar haldlagningar eða upptökukröfu. 9. Einhliða undirbúningur og óeðlilega stuttur umsagnarfrestur Í greinargerðinni er undirbúningnum lýst sem víðtæku samráði. Þeir aðilar sem sérstaklega eru taldir upp eru þó að mestu leyti lögregluembætti, ríkissaksóknari, héraðssaksóknari, Europol og Eurojust. Frumvarpið er því að verulegu leyti byggt á óskum þeirra stofnana sem eiga að fá auknar valdheimildir. Ekki verður séð af greinargerðinni að samsvarandi samráð hafi farið fram við Persónuvernd, dómstóla, Lögmannafélag Íslands, verjendur í sakamálum, mannréttindasérfræðinga, frjáls félagasamtök eða fulltrúa almennings. Fjórtán daga opinber umsagnarfrestur er ófullnægjandi fyrir 39 blaðsíðna frumvarp sem felur í sér víðtækar breytingar á grundvallarréttindum og valdajafnvægi ríkisstofnana. Krefjast verður lengri umsagnarfrests og sjálfstæðrar greiningar á samræmi frumvarpsins við: • 2. gr. stjórnarskrárinnar um aðgreiningu ríkisvalds, • 67. gr. um persónufrelsi, • 70. gr. um réttláta málsmeðferð, • 71. gr. um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu, • 72. gr. um eignarrétt, • 5., 6. og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, • 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmálans, • lög um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Niðurstaða og kröfur Ég legg til að frumvarpið verði ekki lagt fram í núverandi mynd. Áður en málið heldur áfram verði: 1. Umsagnarfrestur lengdur verulega. 2. Framkvæmt sjálfstætt stjórnarskrár-, mannréttinda- og persónuverndarmat. 3. Haldið eftir kröfu um fyrirframúrskurð dómara vegna símhlerana, fjarskiptaeftirlits og annarra leynilegra rannsóknaraðgerða. 4. Fallið frá afnámi aðkomu dómstóla að langvarandi eftirliti með einstaklingum. 5. Heimildir til andlitsgreiningar, gervigreindar og miðlægrar varðveislu myndefnis annaðhvort felldar brott eða afmarkaðar ítarlega í lögunum sjálfum. 6. Upplýsingamiðlun milli lögreglu, stjórnvalda og einkaaðila takmörkuð með skýrum og tæmandi skilyrðum. 7. Fallið frá almennri lengingu gæsluvarðhalds í sex mánuði. 8. Tryggt að verjendur hafi tímanlegan aðgang að gögnum og að frekari takmörkun sé háð dómsúrskurði. 9. Þær breytingar sem raunverulega eiga aðeins að beinast gegn skipulagðri brotastarfsemi verði skýrt og ótvírætt bundnar við slík mál í lagatextanum sjálfum. Barátta gegn alvarlegri brotastarfsemi er mikilvægt markmið. Hún má hins vegar ekki verða tilefni til að draga úr óháðu eftirliti dómstóla og koma á víðtæku eftirlits- og upplýsingakerfi sem síðar getur verið notað í öðrum og mun almennari tilgangi. Lög eiga ekki aðeins að vera samin með heiðarlega og vandaða framkvæmd í huga. Þau verða einnig að innihalda nægilega sterka varnagla til að standast mistök, valdþenslu og mögulega misbeitingu. Virðingarfyllst, Örn Ægir Reynisson kt1312612929

  • #2Magnús Geir Guðmundsson
    Hættið að skeina ykkur með stjórnarskránni, fylgið hennar fyrirmælum. 67.gr Hvern þann sem er handtekinn vegna gruns um refsiverða háttsemi skal án undandráttar leiða fyrir dómara. 71. gr. [Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka… Lesa alla

    Hættið að skeina ykkur með stjórnarskránni, fylgið hennar fyrirmælum. 67.gr Hvern þann sem er handtekinn vegna gruns um refsiverða háttsemi skal án undandráttar leiða fyrir dómara. 71. gr. [Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.] 1) 72. gr. [Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.

  • #3Magnús Kristján Guðmundsson

    Hvernig væri að setja pening í forvarnir í staðin fyrir að ganga à réttindi okkar sem borgara. Það hefur ekkert gengið að eltast við ólögleg vímuefni og fangelsin eru nú þegar yfirfull af föngum sem sitja inni fyrir fíkniefnabrot. Það þarf að endurskoða lögin um sölu og vörslu à ólöglegum vímuefnum og setja svo þessa milljarða í forvarnir. Að halda að þessar breytingar muni hafa áhrif à framboð à ólöglegum vímuefnum er barnaskapur og það vita allir sem hafa kynnt sér málið.

  • #4Arnar Már Viðarsson

    Athugasemd um mál S-163/2026 í viðhengi

  • #5Kristinn Már Reynisson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-163/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi) · Alviti