Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-159/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september); 158. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu, sem samið er í dómsmálaráðuneytinu, er verið að fylgja eftir þeirri stefnumótunarvinnu sem átt hefur stað undanfarin ár í málefnum sýslumanna. Í byrjun árs 2021 kom út skýrsla dómsmálaráðuneytisins, Sýslumenn – framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri, þar sem sett er fram stefna um framtíðarsýn fyrir málefni sýslumanna. Í kjölfarið lagði þáverandi ráðherra skýrsluna fram á Alþingi (þskj. 1043, 609. mál á 151. löggjafarþingi 2020–2021). Í stefnunni felst að sýslumannsembættin veiti framúrskarandi þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar almenningi hverju sinni. Á grundvelli stefnumótunar sem hefur átt sér stað síðustu ár voru lög um um sýslumann, nr. 9/2026 samþykkt á Alþingi 2. febrúar 2026. Við gildistöku laganna, 1. janúar 2027 verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt embætti sýslumanns. Frá sama tíma verður landið eitt umdæmi sýslumanns og sýslumanni falin stjórn, rekstur og fagleg ábyrgð á framkvæmd verkefna embættisins um land allt. Í lögum um sýslumann er kveðið á um að sýslumaður fari með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög, reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Jafnframt er með lögunum lögð áhersla á jafnt aðgengi að þjónustu hins opinbera óháð búsetu, aukið framboð stafrænnar þjónustu, framþróun embættisins og eflingu starfsemi á landsbyggðinni. Ljóst er að samþykkt laga um sýslumann kallar á breytingar á fjölmörgum lagabálkum og tilgangur frumvarpsins er að laga aðra löggjöf að þeim breytingum sem sameining sýslumannsembætta hefur í för með sér. Með því eru lagðar til breytingar á 67 lagabálkum sem fjalla um sýslumenn og verkefni þeirra og eru breytingarnar misumfangsmiklar. Þær veigamestu lúta að umdæmamörkum sýslumanna og tengingu þeirra við umdæmamörk héraðsdómstóla, sérverkefnum einstakra embætta og hæfisskilyrðum fyrir framkvæmd tiltekinna embættisverka. Víða í lögum eru ákvæði sem fjalla um verkefni sýslumanna og byggjast á því að sýslumannsembættin séu fleiri en eitt. Í mörgum lagabálkum eru ákvæði sem þjóna þeim tilgangi að ákveða hvaða sýslumannsembætti fari með úrlausn máls og á öðrum stöðum er kveðið á um heimild til handa ráðherra að fela einu sýslumannsembætti að fara með framkvæmd afmarkaðs verkefnis. Ljóst er að slík ákvæði fara bæði illa saman við þá breyttu skipan sem tekur gildi 1. janúar 2027 og verða að verulegu leyti marklaus þegar aðeins eitt embætti sýslumanns er á landsvísu. Af þeirri ástæðu er með frumvarpi þessu lagt til að gerðar verði breytingar á þeim ákvæðum laga sem byggjast á eldri umdæmaskipan þannig að þau verði löguð að hinu nýja skipulagi. Markmið frumvarpsins er fyrst og fremst að tryggja heildstætt og samræmt lagaumhverfi fyrir hið sameinaða embætti sýslumanns. Frumvarpið tryggir jafnframt einfaldari og skýrari stjórnsýslu, stuðlar að samræmdri málsmeðferð og eyðir hindrunum fyrir innleiðingu rafrænnar og stafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumanni. Veigamestu breytingarnar lúta að fjölda sýslumannsembætta og umdæma þeirra, umdæmamörkum sýslumanna og tengingu þeirra við umdæmamörk héraðsdómstóla og hæfisskilyrðum fyrir framkvæmd tiltekinna embættisverka. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu er skipt í átta þætti: 1. Fjöldi embætta og umdæma. 2. Tenging við héraðsdómstóla. 3. Hæfi sýslumanns til að fara með framkvæmd tiltekinna embættisverka. 4. Lögbundnir starfstitlar við framkvæmd verkefna. 5. Umboðsmenn. 6. Gjaldtökuheimildir. 7. Tæknilega hlutlaust orðalag. 8. Aðrar orðalags- og samræmingarbreytingar.

S-159/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 28. ágú. 2026 – 11. sep. 2026· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-159/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Jón Einarsson
    Umsögn mín snýr að c. lið 17. gr. frumvarpsins. En þar gert er ráð fyrir að 3. gr. þinglýsingarlaga nr. 39/1978 (hér eftir ÞL) með síðari breytingum, verði breytt á þann veg að þar verði einfaldlega opin tilvísun til V. kafla laga um meðferð einkamála nr 91/1991 með síðari breytingum (hér eftir EML). Þetta er að mínu mati óheppilegt og í reynd óframkvæmanlegt svona. Að mínu mati er ekki hægt að hafa svo opnar og ónákvæmar varnarþingsreglur í þessari tegund mála (s.k. T-mál = mál sem fara eftir 3. gr. ÞL). Það er hluti af séreðli þessara mála að þar gildir ekki regla almenns einkamálaréttarf… Lesa alla

    Umsögn mín snýr að c. lið 17. gr. frumvarpsins. En þar gert er ráð fyrir að 3. gr. þinglýsingarlaga nr. 39/1978 (hér eftir ÞL) með síðari breytingum, verði breytt á þann veg að þar verði einfaldlega opin tilvísun til V. kafla laga um meðferð einkamála nr 91/1991 með síðari breytingum (hér eftir EML). Þetta er að mínu mati óheppilegt og í reynd óframkvæmanlegt svona. Að mínu mati er ekki hægt að hafa svo opnar og ónákvæmar varnarþingsreglur í þessari tegund mála (s.k. T-mál = mál sem fara eftir 3. gr. ÞL). Það er hluti af séreðli þessara mála að þar gildir ekki regla almenns einkamálaréttarfars um að sóknaraðili geti valið það hver varnaraðili sé. Í 3. gr. ÞL-málum er það dómari sem ákveður varnaraðildina. Sjá punkta 43 - 44 í héraðsdómi þeim sem staðfestur var í Landsrétti í máli Landsréttar nr. 108/2025. Í 3. mgr. 42. gr. EML er að finna þá reglu að aðilar máls geti samið sín á milli um varnarþing. Þetta er í reynd óframkvæmanlegt í 3. gr. ÞL-málum, því þar er samningsvarnarþing óframkvæmanlegt vegna þessa séreðlis málanna. Mín hugmynd að orðalagi c. liðs 17. gr. frumvarpsins: Um varnarþing fer eftir því í hvaða héraðsdómsumdæmi fasteign sú, sem þinglýsingarákvörðun sú sem skotið er til dómstóla varðar, er staðsett. Varnarþing þinglýsingarmála vegna skipa og báta er héraðsdómsumdæmið þar sem þau eru með skráða heimahöfn. Varnarþing þinglýsingarmála sem varða ökutæki er héraðsdómsumdæmið þar sem eigandi ökutækisins á lögheimili. Ef fleiri en einn aðili er skráður eigandi ökutækis hefur sóknaraðili val um á heimilisvarnarþingi hvers af eigendunum hann hann höfðar málið. Varnarþing þinglýsingarmála sem varða lausafjárbók er héraðsdómsumdæmið þar sem sá aðili, sem telst viðfangsefni ákvörðunarinnar (þ.e. kennitala aðila sem eining í þinglýsingarkerfinu), hefur skráð lögheimili. Nú varðar þinglýsingarákvörðun fleiri en eina fasteign, skip/bát, ökutæki eða aðila í lausafjárbók, og hefur þá sóknaraðili val um til hvaða varnarþings samkvæmt ofangreindum ákvæðum 1. - 4. mgr. hann skýtur málinu til. Varnarþing þinglýsingarmála vegna loftfara er Héraðsdómur Reykjavíkur.

  • #2Strandabyggð

    Sveitarstjórn Strandabyggðar bindur vonir um að staðið verði við áherslur Dómsmálaráðuneytisins um aukna þjónustu á landsbyggðinni, óháð búsetu og jafnt aðgengi landsbyggðar og komi ekki til með að skerða þjónustu eða störf í Strandabyggð.

  • #3Landskjörstjórn

    Meðfylgjandi er umsögn landskjörstjórnar að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl.

  • #4Stéttarfélag lögfræðinga

    Meðfylgjandi er umsögn Stéttarfélags löfræðinga vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-159/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl · Alviti