Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-156/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 um eingreiðslu, orlofs- og desemberuppbætur.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á gildandi lögum um almannatryggingar. Annars vegar er lagt til að í lögunum verði skýrt kveðið á um að greiða skuli orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega. Í frumvarpinu er þannig lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við 21., 24., 25. og 27. gr. laganna þar sem kveðið verði á um að árlega skuli greiða orlofs- og desemberuppbætur til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega. Jafnframt er gert ráð fyrir að nánar skuli kveðið á um fyrrnefndar orlofs- og desemberuppbætur í reglugerð sem ráðherra skuli setja árlega. Hins vegar er lagt til að bætt verði við lögin nýju ákvæði til bráðbirgða þar sem kveðið verði á um sérstaka eingreiðslu í desember 2026 til tekjulægstu hópa þeirra sem eiga rétt samkvæmt lögum um almannatryggingar á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., hlutaörorkulífeyris skv. 25. gr. eða ellilífeyris skv. 16. eða 17. gr., sem og þeirra sem eiga rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum skv. 27. gr., enda hafi viðkomandi verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2026.

S-156/2026· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. ágú. 2026 – 1. sep. 2026· 6 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 um eingreiðslu, orlofs- og desemberuppbætur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-156/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 205)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-156/2026: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót) · Alviti