Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-153/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um neytendasamninga

Fyrirhugað er að gera breytingar á lögum um neytendasamninga nr. 16/2016.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: mars); 158. þing (áætlað: október).

Með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd (tilskipunin um nútímavæðingu) voru gerðar breytingar á tilskipun 2011/83/ESB. Tilskipun 2011/83/ESB var innleidd í íslenskan rétt með lögum um neytendasamninga nr. 16/2016. Með frumvarpinu verða gerðar breytingar á ákvæðum laganna í samræmi við tilskipunina um nútímavæðingu. Meðal helstu breytinga sem gerðar verða á lögunum eru í fyrsta lagi nýtt ákvæði um um sértækar viðbótakröfur um uppýsingar þegar um er að ræða samninga sem gerðir eru á netmörkuðum, þ.á.m. upplýsingar um það hvort þriðji aðili sem býður vörur, þjónustu eða stafrænt efni til sölu sé atvinnurekandi eða ekki og upplýsingar um áhrif þess á réttindi neytenda samkvæmt neytendaverndarlögum. Í öðru lagi verður gildissvið laganna rýmkað þannig að þau taki einnig til samninga þar sem seljandinn afhentir stafrænt efni eða stafræna þjónustu til neytenda gegn því að neytandi veiti seljandanum persónuupplýsingar. Það á þó ekki við ef upplýsingarnar eru einungis notaðar til þess að afhenta efnið eða þjónustuna eða það er skylt samkvæmt lögum. Í þriðja lagi verður í samræmi við þær breytingar sem gerðar eru með tilskipun um nútímavæðingu sett nýtt ákvæði þar sem lögfest eru þau sjónarmið sem ber að taka tillit til við mat á fjárhæð sekta og tilgreind hámarksfjárhæð sekta sem tekur mið af ársveltu seljanda. Breytingarnar koma í framhaldi af sambærilegum breytingum sem voru gerðar með frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga sem afgreitt var á vorþingi 2026 og eru í samræmi við aðgerðaráætlun þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030.

S-153/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. ágú. 2026 – 1. sep. 2026· 3 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um neytendasamninga

Fyrirhugað er að gera breytingar á lögum um neytendasamninga nr. 16/2016.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-153/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-153/2026: Áform um breytingu á lögum um neytendasamninga · Alviti