Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-150/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðing í tækni- og hönnunargreinum.

Ekki komið til Alþingis

Tilefni breytinganna er að einfalda stjórnsýslu og styðja við starfræna stefnu um þjónustu hins opinbera. Í fyrsta lagi er að ræða um breytingu á framkvæmd laganna við veitingu starfsleyfa sérfæðinga í tækni- og hönnunargreinum. Breytingin felur í sér að framkvæmdin fari frá ráðuneytinu til sýslumanns. Ferlið við útgáfu leyfanna í núverandi lagaumhverfi er með þeim hætti að umsókn berst atvinnuvegaráðuneytinu í gegnum mínar síður Stjórnarráðsins. Ráðuneytið sendir umsóknirnar þá til umsagnar viðeigandi fagfélags, sem hefur tvo mánuði til að veita ráðuneytinu umsögn. Sé umsögnin jákvæð útbýr ráðuneytið leyfisbréf og gefur út reikning fyrir gjaldi sem þarf að greiða fyrir leyfisbréfið. Sem hluti af verkefni um aukna stafvæðingu og einföldun hefur atvinnuvegaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hafið undirbúning á því verkefni að framkvæmd laga nr. 8/1996 verði færð til sýslumanns. Í framhaldi af því og í samstarfi við sýslumann og Stafrænt Ísland verður unnið að því að stafvæða umsóknarferlið. Unnið verði að nánari greiningu á umfangi verkefna og tækifærum fyrir aukinni stafvæðingu og fjárhagsleg áhrif lagabreytinga metin. Í öðru lagi er áformað að lögvernda starfstitilinn „borgarhönnuður“. Beiðni um löggildingu starfsheitisins barst ráðuneytinu frá starfandi borgarhönnuðum á Íslandi. Borgarhönnun hefur á undanförnum árum orðið mikilvægari þáttur í þróun byggðamála, skipulags, samgöngu- og umhverfismála, auk mótunar vistvænna og mannvænna rýma innan sveitarfélaga og opinberra stofnana. Ákvarðanir sem teknar eru á þessu sviði hafa víðtæk áhrif á dagleg líf borgarbúa. Lögverndun og löggilding starfstitilsins mun stuðla að skýrari faglegum viðmiðum og ábyrgð, auknu trausti í samstarfi við opinbera aðila, stofnanir og almenning og tryggingu fyrir fagmennsku og gæðum í verkefnum sem snerta lífsgæði borgarbúa og þróun byggða. Samkvæmt núgildandi lögum er framkvæmd laga nr. 8/1996 hjá atvinnuvegaráðuneytinu og starfsheitið borgarhönnuður ekki lögverndað.

S-150/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. ágú. 2026 – 31. ágú. 2026· 2 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðing í tækni- og hönnunargreinum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-150/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Herborg Árnadóttir
    Ég fagna því að verið sé að yfirfara skilyrði við veitingu starfsleyfa sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum og löggildingu fyrir starfsheitið borgarhönnuður. Hér er jafnframt tækifæri til viðurkenna að fjölbreyttari menntunarkröfur geta átt við þegar kemur að viðurkenndri skipulagsráðgjöf, þar sem borgarhönnuðir eru mikilvægur hluti af nútíma skipulagsgerð. Þar sem skipulagsmál fjalla um margvíslegt samspil samfélags, náttúru og byggðs umhverfis geta sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn starfað og veitt ráðgjöf innan málaflokksins. Nú hef ég unnið í yfir 10 ár sem sérfræðingur í borgarh… Lesa alla

    Ég fagna því að verið sé að yfirfara skilyrði við veitingu starfsleyfa sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum og löggildingu fyrir starfsheitið borgarhönnuður. Hér er jafnframt tækifæri til viðurkenna að fjölbreyttari menntunarkröfur geta átt við þegar kemur að viðurkenndri skipulagsráðgjöf, þar sem borgarhönnuðir eru mikilvægur hluti af nútíma skipulagsgerð. Þar sem skipulagsmál fjalla um margvíslegt samspil samfélags, náttúru og byggðs umhverfis geta sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn starfað og veitt ráðgjöf innan málaflokksins. Nú hef ég unnið í yfir 10 ár sem sérfræðingur í borgarhönnun og skipulagsmálum, en er ekki viðurkenndur skipulagsráðgjafi samkvæmt lista HMS, þó að menntun mín feli í sér sérhæfingu sem nýtist við gerð skipulags. Ástæðan er sú að ég er ekki með löggilt starfsheiti á lista fyrir skipulagsráðgjafa samkvæmt 7. gr. skipulagslaga um skipulagsfulltrúa sem HMS miðar við. Þar er nú tækifæri til bæta við starfsheitinu borgarhönnuður. Ég er með BA gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands auk þess að vera með MS gráðu í mannvistarlandfræði frá Háskóla Íslands. Samhliða námi í arkitektúr vann ég að rannsóknum, styrktum af RANNÍS, á mannlífi á almenningsrýmum í Reykjavík með borgarrannsóknarhópnum Borghildi. Lokaverkefni mitt í mastersnáminu var rannsókn á sambandi daglegrar hreyfingar ungs fólks og göngugreiðleika í byggðu umhverfi. Þessi þverfaglegi bakgrunnur hefur nýst mér mjög vel við skipulagsráðgjöf, sérstaklega innan þess hluta skipulagsmála sem snúa að borgarhönnun. Ég hef komið að fjöldamörgum skipulagsverkefnum um allt land, s.s. gerð aðalskipulags, þ.a.m. rammahluta aðalskipulags, rammaskipulags og deiliskipulags. Þar nýtist sérstaklega að vera bæði með reynslu af hönnun og myndrænni framsetningu úr arkitektúrnum, en einnig með fræðilegan grunn um samfélag og náttúru auk þekkingar á landupplýsingakerfum úr mannvistarlandfræðinni. Þess vegna bið ég um að fólk með menntun og reynslu af því tagi sem ég hef geti fengið löggilt starfsheiti sem borgarhönnuður og því starfsheiti verið bætt við í upptalningu í 7. gr. skipulagslaga um skipulagsfulltrúa. Bestu kveðjur Herborg Árnadóttir

  • #2Alta ehf
    Umsögn frá Alta ehf. skipulagsráðgjöf, www.alta.is. Til þeirra sem málið varðar. Lög um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum nr. 8/1996 ná ekki til starfsheitisins borgarhönnuður en allmargt fagfólk starfar við slíka hönnun og skipulagsgerð, með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, sem gerir það fyllilega hæft til þess starfa. Einnig er tilgreint í 7. gr. skipulagslaga hverjir hafa heimild til að starfa sem skipulagsfulltrúar við gerð skipulags og vísað m.a. til löggiltra starfsstétta sem geta uppfyllt þá heimild og síðan vísað í lista HMS yfir þá sem uppf… Lesa alla

    Umsögn frá Alta ehf. skipulagsráðgjöf, www.alta.is. Til þeirra sem málið varðar. Lög um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum nr. 8/1996 ná ekki til starfsheitisins borgarhönnuður en allmargt fagfólk starfar við slíka hönnun og skipulagsgerð, með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, sem gerir það fyllilega hæft til þess starfa. Einnig er tilgreint í 7. gr. skipulagslaga hverjir hafa heimild til að starfa sem skipulagsfulltrúar við gerð skipulags og vísað m.a. til löggiltra starfsstétta sem geta uppfyllt þá heimild og síðan vísað í lista HMS yfir þá sem uppfylla skilyrði 7. gr. um menntun og /eða starfsreynslu til að sinna gerð skipulagsáætlana. Borgarhönnuðir eru ekki á þeim lista. Vandinn við þetta fyrirkomulag er sá að þeir sem kaupa þjónustu borgarhönnuða, t.d. sveitarfélög og fasteignaþróunaraðilar, geta átt erfitt með að átta sig á því hvort sá sem býður þjónustu á þessu sviði sé til þess hæfur, þar sem sá sem hana veitir er ekki á lista HMS, sem iðulega er litið til. Hins vegar getur hæfi til að sinna þjónustu af þessu tagi byggt á margvíslegri menntun og reynslu, sem einnig hentar vel til þjónustu við skipulagsgerð. Þess vegna er mikilvægt að kröfur sem uppfylla þarf til að hljóta lögverndað starfsheiti borgarhönnuðar beinist sem mest að þeirri hæfni og reynslu sem er undirstaða hæfisins en síður að tilteknum námsbrautum. Að sama skapi er það eðli skipulags að sameina fjölmarga þætti sem varða samfélag, innviði, náttúru ofl. og því eðlilegt að réttindi til að gera skipulag nái til fleiri fagsviða og fjölþættari reynslu en þeirra sem talin eru upp í 7. gr. skipulagslaga. Þannig er t.d. mjög algengt að landfræðingar sinni skipulagi, enda afar vel undir það búnir úr sínu námi. Nefna má þætti sem lúta að t.d. borgarlandfræði, mannvistarlandfræði, greiningum á umhverfi og samfélagi, vinnslu landfræðilegra upplýsinga, sem er mikilvægur þáttur í margskonar áætlanagerð og gerð uppdrátta, samráði, stjórnun og ákvarðanatöku um framtíðina. Af þessu leiðir að talsvert fleiri uppfylla í raun faglegar kröfur til að starfa sem skipulagsfulltrúi eða skipulagsráðgjafi en lagagreinin býður upp á. Minna má á að sveitarfélögum hefur gengið illa að manna stöður skipulagsfulltrúa, m.a. vegna þessa að hæft fólk með góða menntun og bakgrunn sem hentar skipulagsráðgjöf, fellur ekki innan ramma 7. gr. skipulagslaga. Til þess að bæta stöðuna sem hér er lýst er lagt til að starfsheitið borgarhönnuður verði löggilt eins og áform eru um og því bætt við í upptalningu í 7. gr. skipulagslaga um skipulagsfulltrúa og aðra þá sem sinna skipulagsgerð. Um leið er lagt til að kröfur til borgarhönnuða, skipulagsfulltrúa og þeirra sem sinna skipulagsgerð verði hafðar opnari í samræmi við fjölbreytilegt eðli þessara starfa. Það mætti gera með því að tilgreina algengt grunn- og framhaldsnám tengt skipulagsgerð, ásamt reynslu eins og nú er gert, en gera leyfisveitanda jafnframt skylt að vega og meta rökstudda umsókn þeirra sem hafa jafngilda þekkingu og reynslu. Skrá þyrfti þau sjónarmið sem hafa þyrfti í huga við slíkt mat og útfæra þau í samráði við hagaðila á borð við sérfræðinga sem við skipulagsvinnu starfa, fagfélög, sveitarfélög og aðra lykil hagaðila. Hér er því farið fram á að haldið verði áfram með áform um löggildingu starfsheitisins borgarhönnuður en að kröfur rúmi fjölþættan bakgrunn og reynslu. Ennfremur að sama nálgun verði sett inn í skipulagslög vegna þeirra sem vilja starfa sem skipulagsfulltrúi eða við gerð skipulags. Virðingarfyllst Halldóra Hreggviðsdóttir, framkvæmastjóri Alta ehf. Skipulagsráðgjafi, M.S. hagverkfræði, M.S. jarðfræði.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-150/2026: Áform um breytingu á lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum · Alviti