Áform um breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén með það að markmiði að stuðla að auknu öryggi, skilvirkni og hagkvæmni við notkun landshöfuðlénsins „.is“.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-146/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Kjartan Kjartansson
Sú reynsla sem ég hef af starfsemi ISNIC hefur sýnt að fyrirtækið er með öllu óhæft til að sinna hlutverki sínu eins og það er skilgreint í lögumí dag. Einfaldasta dæmið er að ISNIC ber að starfrækja úrskurðanefnd lénamála en hvergi er að finna nöfn þeirra aðila er nefndina skipa. Núverandi lög tiltaka að nefndina skuli skipa 1-3 manns eftir eðli máls en meðfylgjandi er úrskurður þar sem lén er tekið af réttafa og skráð til annars aðila og er sú íþyngjandi ákvörðun, sem er alvarlegasta úrræði sem nefndin getur gripið til einungis undirrituð af einum aðila. Sá aðili (Tryggvi Þórhalsson) er sv… Lesa alla
Sú reynsla sem ég hef af starfsemi ISNIC hefur sýnt að fyrirtækið er með öllu óhæft til að sinna hlutverki sínu eins og það er skilgreint í lögumí dag. Einfaldasta dæmið er að ISNIC ber að starfrækja úrskurðanefnd lénamála en hvergi er að finna nöfn þeirra aðila er nefndina skipa. Núverandi lög tiltaka að nefndina skuli skipa 1-3 manns eftir eðli máls en meðfylgjandi er úrskurður þar sem lén er tekið af réttafa og skráð til annars aðila og er sú íþyngjandi ákvörðun, sem er alvarlegasta úrræði sem nefndin getur gripið til einungis undirrituð af einum aðila. Sá aðili (Tryggvi Þórhalsson) er svo ekki talinn upp í stjórn félagsins í ársreikningi 2025 sem undirritaður var 30. jánúar 2026. (afrit af ársreikningi ISNIC er í viðhengi) Rétt er að tiltaka að skv. fyrirtækjaskrá hafa engar tilkynningar um samþykktir eða aukatilkynningar borist á árinu 2026 og því ólíklegt að sá sem undirritar úrskurð nefndarinnar sé sannarlega í stjórn ISNIC og er því í raun umboðslaus til að vera í nefndinni. Og hefði eðli máls ekki átt að kalla á fjölskipaða nefnd? Eftir situr að það er mat undirritaðs að fyrirkomulag lénamála á Íslandi í höndum ISNIC er með öllu ófullnægjandi og fyrirtækið hefur unnið gegn hagsmunum smærri aðila með einhverskonar meðvirkni og minnimáttarkennd með stærri aðilum. Í viðhengi er úrskurður ISNIC um lénið temu.is sem notað var af undirrituðum og fleirum fyrir ráðgjafastarfsemi og rétturinn færður til Whaleco sem starfrækir APPið Temu og mun líklega aldrei nota lénið temu.is fyrir sína starfsemi. Í viðhengi eru líka röksemdir undirritaðs með tilvísunum í befi Árnastofnunar um tilvist íslenska orðsins tema og hvernig tilvísun í þetta fallega íslenska orð studdi við algjörlega óskilda starfsemi.
- #2Kjartan Kjartansson
Í fyrri umsögn er mikill misskilningur. Textinn "Úrskurðarnefndin hefur starfað frá árinu 2001. Hún sker aðeins úr deilum um lén á grundvelli regla ISNIC, einkum 8. kafla. Nefndin er skipuð 1-3 nefndarmönnum, eftir eðli máls, ásamt ritara. Stjórn ISNIC skipar nefndina." sem er á vefnum: https://www.isnic.is/is/domain/dispute Ég tók því sem svo að "stjórn ISNIC skipaði nefndina" en raunin er að "stjórn ISNIC skipar í nefndina".
- #3Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs.
- #4Persónuvernd
Meðfylgjandi er umsögn Persónuverndar.
- #5Internet á Íslandi hf.
Meðfylgjandi er umsögn ISNIC.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.