Drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-145/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 11. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 35 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (35)
- #1Steinþór John Magnússon
Ég tel að þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að bragðbönnum og takmörkunum á innflutningi nikótínpúða til eigin nota séu óásættanleg og gangi mun lengra en eðlilegt getur talist í frjálsu lýðræðissamfélagi. Ég er fullorðinn einstaklingur sem er fullfær um að taka upplýstar ákvarðanir um eigin lífsstíl. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að ákveða hvaða bragð af nikótínpúðum ég má nota eða hvort ég megi flytja inn löglega framleidda vöru til eigin nota. Slíkar ákvarðanir eiga að vera í höndum einstaklingsins sjálfs, svo lengi sem varan er ætluð til persónulegrar neyslu en ekki endursölu. Það… Lesa alla
Ég tel að þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að bragðbönnum og takmörkunum á innflutningi nikótínpúða til eigin nota séu óásættanleg og gangi mun lengra en eðlilegt getur talist í frjálsu lýðræðissamfélagi. Ég er fullorðinn einstaklingur sem er fullfær um að taka upplýstar ákvarðanir um eigin lífsstíl. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að ákveða hvaða bragð af nikótínpúðum ég má nota eða hvort ég megi flytja inn löglega framleidda vöru til eigin nota. Slíkar ákvarðanir eiga að vera í höndum einstaklingsins sjálfs, svo lengi sem varan er ætluð til persónulegrar neyslu en ekki endursölu. Það er sérstaklega erfitt að réttlæta slíkar takmarkanir þegar um er að ræða tóbakslausa nikótínpúða. Þeir innihalda ekki tóbak og fela ekki í sér bruna, tjöru eða mörg þeirra skaðlegu efna sem myndast við reykingar. Að setja þessar vörur undir sambærilegar hömlur og hefðbundnar tóbaksvörur sendir röng skilaboð og hunsar þann mikilvæga mun sem er á þessum vöruflokkum. Fyrir marga hafa nikótínpúðar verið raunhæfur kostur til að hætta að reykja eða minnka sígarettuneyslu. Bragðtegundir skipta þar miklu máli. Margir fyrrverandi reykingamenn kjósa bragðtegundir sem minna þá ekki á sígarettur og auðvelda þeim að halda sig frá tóbaki. Ef ríkið tekur þetta val í burtu getur það dregið úr líkum á að fólk skipti yfir í minna skaðlega valkosti eða haldi sig frá reykingum. Ef markmiðið er að vernda börn og ungmenni er hægt að gera það með öflugri aldursstaðfestingu, ströngu eftirliti og harðari viðurlögum við sölu til ólögráða einstaklinga. Það er hins vegar hvorki sanngjarnt né réttlátt að skerða frelsi allra fullorðinna einstaklinga vegna þess að sumir kunna að misnota vörurnar eða vegna þess að stjórnvöld telja sig vita betur en einstaklingurinn sjálfur. Sérstaklega vekur áhyggjur fyrirhugað bann við því að flytja inn nikótínpúða til eigin nota. Ef einstaklingur kaupir löglega framleidda vöru erlendis, greiðir fyrir hana sjálfur og flytur hana inn til persónulegrar neyslu, er erfitt að sjá hvers vegna ríkið eigi að hafa heimild til að banna það. Slíkt er óþarfa afskipti af einkalífi fólks og skerðir sjálfsákvörðunarrétt þess án þess að augljós ávinningur sé sýndur fram á. Í lýðræðisríki á ríkið að upplýsa fólk um áhættu, tryggja gæði og öryggi vara og koma í veg fyrir að börn hafi aðgang að nikótínvörum. Það á hins vegar ekki að stjórna því hvaða bragð fullorðnir einstaklingar kjósa eða banna þeim að flytja inn löglegar vörur til eigin nota. Ég tel því að þessi ákvæði frumvarpsins séu óhófleg, skerði frelsi ábyrgra fullorðinna einstaklinga umfram það sem nauðsynlegt er og gangi gegn þeirri meginreglu að fólk eigi sjálft að ráða yfir eigin líkama og eigin ákvörðunum, svo lengi sem það skaðar ekki aðra.
- #2Abdullah Shihab Wahid Wahid
Ég er ekki sammála frumvarpinu í núverandi mynd. Tillögurnar ganga of langt og geta haft alvarleg áhrif á einstaklinga, fyrirtæki og löglega verslun Rafrettur og aðrar nikótínvörur eru ekki það sama og hefðbundnar sígarettur. Því er óeðlilegt að setja allar þessar vörur undir sömu reglur og takmarkanir Takmarkanir á bragðtegundum, umbúðum og netsölu geta minnkað val neytenda, skaðað íslensk fyrirtæki og ýtt viðskiptum yfir á erlendar vefsíður eða ólöglegan markað Ég tel að frumvarpið þurfi að endurskoða með meiri áherslu á meðalhóf, sanngjarna samkeppni og raunverulegan mun á mismunandi vör… Lesa alla
Ég er ekki sammála frumvarpinu í núverandi mynd. Tillögurnar ganga of langt og geta haft alvarleg áhrif á einstaklinga, fyrirtæki og löglega verslun Rafrettur og aðrar nikótínvörur eru ekki það sama og hefðbundnar sígarettur. Því er óeðlilegt að setja allar þessar vörur undir sömu reglur og takmarkanir Takmarkanir á bragðtegundum, umbúðum og netsölu geta minnkað val neytenda, skaðað íslensk fyrirtæki og ýtt viðskiptum yfir á erlendar vefsíður eða ólöglegan markað Ég tel að frumvarpið þurfi að endurskoða með meiri áherslu á meðalhóf, sanngjarna samkeppni og raunverulegan mun á mismunandi vöruflokkum. Reglur þurfa að vera skýrar sanngjarnar og byggðar á gögnum ekki almennum bönnum
- #3Uppreisn, félagasamtök
Í viðhengi má sjá umsögn Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Röksemdin um að bann við ákveðnum bragðtegundum sé ætlað að vernda börn er að mati Uppreisnar yfirskin. Með sömu rökum mætti jafnframt banna ýmsar aðrar neysluvörur sem höfða til ungs fólks, svo sem sykrað morgunkorn, gosdrykki eða áfenga drykki á borð við Breezer. Ljóst er að raunverulegt markmið frumvarpsins er að takmarka valfrelsi einstaklinga og draga úr atvinnufrelsi. Með því að fela Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) eftirlit með smásölu nikótínvara er verið að skapa fyrirkomulag þar sem ríkisrekin stofnu… Lesa alla
Í viðhengi má sjá umsögn Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Röksemdin um að bann við ákveðnum bragðtegundum sé ætlað að vernda börn er að mati Uppreisnar yfirskin. Með sömu rökum mætti jafnframt banna ýmsar aðrar neysluvörur sem höfða til ungs fólks, svo sem sykrað morgunkorn, gosdrykki eða áfenga drykki á borð við Breezer. Ljóst er að raunverulegt markmið frumvarpsins er að takmarka valfrelsi einstaklinga og draga úr atvinnufrelsi. Með því að fela Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) eftirlit með smásölu nikótínvara er verið að skapa fyrirkomulag þar sem ríkisrekin stofnun hefur eftirlit með fyrirtækjum sem starfa á markaði sem hún keppir sjálf á. Slíkt fyrirkomulag er óeðlilegt og vekur spurningar um hagsmunaárekstra. Fyrirtæki í einkarekstri yrðu sett í sérkennilega stöðu gagnvart ríkisaðila sem hefur yfirburðastöðu á markaðnum. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að sömu reglur gildi um sígarettur og rafrettur þrátt fyrir að um sé að ræða eðlisólíkar vörur. Sígarettur innihalda tóbak auk nikótíns, á meðan rafrettur innihalda að jafnaði eingöngu nikótín. Það verður því að teljast óeðlilegt að leggja þessar vörur að jöfnu í lagaumhverfinu án þess að tekið sé tillit til þess grundvallarmunar sem á þeim er. Tillögur um að gera framleiðslu nikótínvara leyfisskylda fela einnig í sér verulegar hindranir fyrir nýsköpun, atvinnusköpun og samkeppni. Aukið regluverk og leyfiskerfi reynast smærri fyrirtækjum og nýjum aðilum á markaði sérstaklega íþyngjandi. Frumvarpið felur jafnframt í sér frekari takmarkanir á því hvar einstaklingar mega neyta nikótínvara. Slíkar hömlur skerða frelsi fullorðinna einstaklinga til að taka eigin ákvarðanir um löglega neyslu. Einsleitar umbúðir hafa heldur ekki sýnt fram á afgerandi árangur við að draga úr notkun nikótín- eða tóbaksvara. Reynslan frá Noregi gefur ekki tilefni til að ætla að slík stefna ein og sér leiði til minni notkunar. Þá fela slíkar reglur í sér verulega skerðingu á möguleikum fyrirtækja til að nýta vörumerki sín, kennimerki og aðra þætti sem njóta lögverndar. Myndefni, hönnun og slagorð eru ekki sjálfkrafa ætluð til markaðssetningar gagnvart börnum heldur gegna mikilvægu hlutverki við aðgreiningu vara og upplýsingagjöf til neytenda. Uppreisn leggst því alfarið gegn frumvarpinu. Að mati hreyfingarinnar er frumvarpið ómarkviss og íþyngjandi leið til að takmarka sjálfsákvörðunarrétt sjálfráða einstaklinga og atvinnufrelsi fyrirtækja undir yfirskini barnaverndarsjónarmiða. Því ætti að falla frá frumvarpinu og endurskoða þær tillögur sem í því felast með hliðsjón af frelsi einstaklinga, samkeppni og atvinnufrelsi.
- #4Arnaldur Sigurðarson
Ég mótmæli því eins harkalega og ég mögulega get að lög eigi að banna fullorðnum einstaklingum aðgang að nikotínvörum með bragðefni. Ég er einn fjölda fullorðinna einstaklinga sem hefur hætt neyslu tóbaks með aðtsoð bragðbættra nikotínvara. Það hlýtur að lyggja augum uppi að bragðtegundir sem höfða til fullorðinna höfða líka til barna, ég hef ekki séð neinar tillögur um að banna áfengi með nammibragði. Allt nikótín sem kemur í öðru formi en tóbak ætti klárlega að vera hluti af skaðaminnkandi áherslum stjórnvalda. Það eina sem þetta frumvarp mun gera að að fólk mun í meiri mæli blanda bragðef… Lesa alla
Ég mótmæli því eins harkalega og ég mögulega get að lög eigi að banna fullorðnum einstaklingum aðgang að nikotínvörum með bragðefni. Ég er einn fjölda fullorðinna einstaklinga sem hefur hætt neyslu tóbaks með aðtsoð bragðbættra nikotínvara. Það hlýtur að lyggja augum uppi að bragðtegundir sem höfða til fullorðinna höfða líka til barna, ég hef ekki séð neinar tillögur um að banna áfengi með nammibragði. Allt nikótín sem kemur í öðru formi en tóbak ætti klárlega að vera hluti af skaðaminnkandi áherslum stjórnvalda. Það eina sem þetta frumvarp mun gera að að fólk mun í meiri mæli blanda bragðefni sjálft út í nikótín með óséðum afleiðingum sem því myndi fylgja. Bragðbættar nikotínvörur eru í dag framleiddar undir góðu eftirliti og með viðvörunum um skaðsemi. Ef markmiðið er að semja frumvarp sem á raunverulega að takmarka aðgengi barna frekar að slíkum vörum þá er við því einfaldari lausn. Strangara eftirlit með verslunum sem selja slíkar vörur og hærri sektir fyrir frávik frá lögunum. Málið dautt. Ekki halda að þið getið blekkt almennig með svona illa skrifaðri tillögu, gerið betur.
- #5Jón Þór Ágústsson
Ég leggst alfarið gegn frumvarpinu í núverandi mynd. Ég tel mikilvægt að draga úr nikótínneyslu meðal ólögráða einstaklinga. Þar held ég að flestir geti verið sammála. Markmiðið er réttmætt. Ágreiningurinn snýst um leiðina sem farin er til að ná því. Að mínu mati beinist frumvarpið að röngum aðilum. Í stað þess að beina aðgerðum af fullum þunga að þeim sem brjóta lög með því að selja eða útvega ólögráða einstaklingum nikótínvörur eru lagðar auknar byrðar á fullorðið fólk og löglega rekstraraðila sem fara eftir gildandi lögum og reglum. Ef raunverulegt vandamál er að ólögráða einstaklingar k… Lesa alla
Ég leggst alfarið gegn frumvarpinu í núverandi mynd. Ég tel mikilvægt að draga úr nikótínneyslu meðal ólögráða einstaklinga. Þar held ég að flestir geti verið sammála. Markmiðið er réttmætt. Ágreiningurinn snýst um leiðina sem farin er til að ná því. Að mínu mati beinist frumvarpið að röngum aðilum. Í stað þess að beina aðgerðum af fullum þunga að þeim sem brjóta lög með því að selja eða útvega ólögráða einstaklingum nikótínvörur eru lagðar auknar byrðar á fullorðið fólk og löglega rekstraraðila sem fara eftir gildandi lögum og reglum. Ef raunverulegt vandamál er að ólögráða einstaklingar komast yfir nikótínvörur eiga stjórnvöld að beina aðgerðum sínum að þeim sem gera það mögulegt. Efla þarf eftirlit, fjölga leynikaupum, hækka viðurlög verulega við sölu til ólögráða einstaklinga og beita mun harðari viðurlögum gagnvart þeim sem ítrekað brjóta aldursmörk. Þar liggur vandamálið og þar ættu aðgerðir stjórnvalda að beinast. Ég get vel skilið að stjórnvöld vilji setja reglur um útlit og framsetningu umbúða ef markmiðið er að gera vörur síður áberandi eða aðlaðandi. Þar má færa málefnaleg rök. En þar eiga mörkin einnig að liggja. Umbúðir og bragðefni eru ekki sami hluturinn. Umbúðir snúa að framsetningu vörunnar en bragðið er hluti af vörunni sjálfri. Að banna eða takmarka bragðefni í löglegum vörum fyrir fullorðið fólk er að mínu mati verulegt inngrip í valfrelsi neytenda og ekki hefur verið sýnt fram á með sannfærandi hætti að slíkar takmarkanir muni skila þeim árangri sem stefnt er að. Þegar stjórnvöld leggja til jafn íþyngjandi breytingar verða þau að sýna fram á að þær séu nauðsynlegar, hóflegar og studdar traustum gögnum. Að mínu mati skortir frumvarpið sannfærandi áhrifamat sem sýnir að ávinningurinn verði meiri en sá kostnaður og þau neikvæðu áhrif sem breytingarnar geta haft á neytendur, löglega atvinnustarfsemi og samkeppni. Ég tel jafnframt mikilvægt að stjórnvöld gæti jafnræðis og samræmis í lagasetningu. Á sama tíma og lagt er til að banna eða takmarka bragðefni og framsetningu nikótínvara rekur ríkið sjálft Vínbúðina þar sem áfengisvörur eru sýndar í upprunalegum umbúðum með litum, vörumerkjum og fjölbreyttri hönnun og þar er boðið upp á fjölmargar vörur með ávaxta- og sætum bragðtegundum. Ef stjórnvöld telja að útlit og bragð geti aukið aðdráttarafl nikótínvara gagnvart ungu fólki verður að liggja fyrir skýr og málefnaleg skýring á því hvers vegna sömu sjónarmið eiga ekki við um áfengi. Annaðhvort eiga sömu meginreglur að gilda eða stjórnvöld þurfa að rökstyðja af hverju þau telja rétt að beita ólíkum reglum gagnvart þessum vöruflokkum. Ég tel einnig að stjórnvöld verði að gæta meðalhófs. Ef hægt er að ná sama markmiði með vægari og markvissari úrræðum ber að velja þá leið. Öflugri forvarnir, meiri fræðsla, skilvirkara eftirlit og harðari viðurlög við sölu til ólögráða einstaklinga eru að mínu mati mun markvissari leiðir en víðtækar takmarkanir sem ná til allra fullorðinna neytenda og löglegra rekstraraðila. Ríkið innheimtir árlega verulegar tekjur af nikótínskatti. Ef markmiðið er raunverulega að vernda lýðheilsu ætti stærri hluti þeirra tekna að renna beint í forvarnir, fræðslu og öflugra eftirlit. Það væri að mínu mati bæði trúverðugra og líklegra til að skila árangri en að leggja sífellt fleiri hömlur á löglegar vörur. Ekki ætti að gera jafn róttækar breytingar á slíkum leikreglum nema skýr nauðsyn sé sýnd fram á og ótvíræður ávinningur liggi fyrir. Ég tel að markmiði stjórnvalda verði betur náð með markvissum aðgerðum gegn þeim sem brjóta lög, öflugri forvörnum, meiri fræðslu og skilvirkara eftirliti en með þeim víðtæku takmörkunum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Ég hvet því stjórnvöld eindregið til að endurskoða frumvarpið frá grunni. Markmiðið er mikilvægt, en leiðin sem valin hefur verið er að mínu mati hvorki hófleg, nægilega vel rökstudd né líkleg til að skila þeim árangri sem að er stefnt.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.