Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-144/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun

Fyrirhugað er að gera breytingar á lögum um samræmda neyðarsvörun, nr. 40/2008, með það að markmiði að kveða skýrar á um hlutverk vaktstöðrvar samræmdrar neyðarsvörunar.

Ekki komið til Alþingis

Með lögum um samræmda neyðarsvörun, nr. 40/2008, er m.a. kveðið á um hlutverk vaktstöðvar samræmdrar neyðarsvörunar (Neyðarlínunnar), réttindi og skyldur viðbragðsaðila og hvernig fara skuli með upplýsingar sem henni berast. Mikilvægt er að viðbragðsaðilar og eftir atvikum aðrir sem málið varðar, geti með einföldum, skjótum og áreiðanlegum hætti aflað nauðsynlegra upplýsinga sem berast Neyðarlínunni vegna lögbundinna verkefna þeirra. Um nokkra hríð hefur verið ákall um að lögfesta ákvæði sem kveða með skýrum hætti á um hlutverk og heimildir Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga. Tilefni lagabreytinganna er því að bæta skýrleika laganna um hlutverk Neyðarlínunnar ásamt því að að skerpa á heimildum Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga sem henni berast til að taka af allan vafa um lögmæti vinnslunnar. Þar sem hlutverk og heimildir Neyðarlínunnar til vinnslu og miðlunar upplýsinga byggjast á framangreindum lögum sem og samningi Neyðarlínunnar við dómsmálaráðherra, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna, þarf að breyta þeim lögum til að eyða allri óvissu um vinnsluheimildir og hlutverk Neyðarlínunnar.

S-144/2026· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 23. júl. 2026 – 20. ágú. 2026· 3 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun

Fyrirhugað er að gera breytingar á lögum um samræmda neyðarsvörun, nr. 40/2008, með það að markmiði að kveða skýrar á um hlutverk vaktstöðrvar samræmdrar neyðarsvörunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-144/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-144/2026: Áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun · Alviti