Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-143/2026 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími)

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, er varðar útivistartíma barna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: janúar).

Efni frumvarpsins var áður kynnt sem hluti af drögum að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd sem lagt var fram á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Í samræmi við nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar Alþingis er efnið nú kynnt í sérstöku frumvarpi og óskað eftir frekara samráði við börn og aðra hlutaðeigandi aðila um þennan afmarkaða en mikilvæga málaflokk sem snertir daglegt líf fjölskyldna í landinu. Reglur um útivistartíma barna hafa að meginstefnu til staðið óbreyttar frá árinu 1992. Á þeim tíma hafa aðstæður barna, félagsleg samskipti og tómstundastarf breyst verulega, ekki síst með tilkomu stafræns umhverfis. Í samráði við börn hefur ítrekað komið fram ákall um meiri sveigjanleika og rýmri útivist í takt við aukinn þroska þeirra. Með frumvarpinu er stefnt að því að finna rétt jafnvægi á milli verndar- og forvarnarsjónarmiða annars vegar og réttinda, sjálfstæðis og lýðheilsu barna hins vegar, í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Í frumvarpinu eru lagðar til afmarkaðar breytingar á reglum um útivistartíma barna. Markmið breytinganna er að auka sveigjanleika og aðlaga reglurnar betur að mismunandi aldri og þroska barna og breyttum samfélagsháttum. Helsta breytingin felst í því að börnum á miðstigi grunnskóla á aldrinum 10–12 ára verði heimilt að vera á almannafæri til kl. 21.00 yfir vetrartímann í stað kl. 20.00 samkvæmt gildandi lagareglum. Jafnframt er lagt til að yngsti aldurshópurinn taki til barna níu ára og yngri og að börn á aldrinum 13–16 ára megi áfram vera á almannafæri til kl. 22.00 en eftir þann tíma þurfi þau að vera í fylgd með fullorðnum eða á heimferð úr skóla-, íþrótta- eða frístundastarfi. Þá er lagt til að samræma útivistartímann yfir sumartímann betur að skólaárinu þannig að hann taki breytingum frá 1. júní til 1. september ár hvert í stað 1. maí til 1. september samkvæmt gildandi lögum. Ráðuneytið hvetur börn, hagaðila, fagfólk og aðra áhugasama um málefnið að kynna sér frumvarpsdrögin og senda inn umsögn. Umsagnarfrestur er til og með 28. ágúst.

S-143/2026· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. júl. 2026 – 28. ágú. 2026· 16 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími)

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, er varðar útivistartíma barna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-143/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 78)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Eydís Inga Sigurjónsdóttir

    Sem foreldri tveggja grunnskólabarna á aldrinum 9-12 ára fagna ég þessari breytingu og vona að hún fari í gegn en breytingin myndi draga úr togstreitu sem hefur skapast í breyttri samfélagsmynd. Þá vonast ég eftir að stjórnvöld kynni breytinguna vel svo að allir foreldrar séu upplýstir að um barnaverndarlög sé um að ræða en ekki vinsamleg tilmæli stjórnvalda.

  • #2Berglind Ásgeirsdóttir
    Ég tel að varlega þurfi að fara í breytingar á útivistartíma barna yfir vetrarmánuðina. Þótt markmiðið sé eflaust að auka frelsi og samveru barna, óttast ég að lengri útivistartími fram á kvöld geti gert foreldrum erfiðara fyrir að koma börnum í ró og svefn á eðlilegum tíma. Börn á grunnskólaaldri þurfa almennt 9–12 klukkustunda svefn til að ná góðri hvíld. Lengri útivist fram undir háttatíma getur seinkað kvöldrútínu, sérstaklega hjá þeim fjölskyldum sem eiga börn á aldrinum 10–12 ára. Afleiðingin gæti orðið minni svefn, meiri þreyta og lakari einbeiting í skóla daginn eftir. Ég tel því að… Lesa alla

    Ég tel að varlega þurfi að fara í breytingar á útivistartíma barna yfir vetrarmánuðina. Þótt markmiðið sé eflaust að auka frelsi og samveru barna, óttast ég að lengri útivistartími fram á kvöld geti gert foreldrum erfiðara fyrir að koma börnum í ró og svefn á eðlilegum tíma. Börn á grunnskólaaldri þurfa almennt 9–12 klukkustunda svefn til að ná góðri hvíld. Lengri útivist fram undir háttatíma getur seinkað kvöldrútínu, sérstaklega hjá þeim fjölskyldum sem eiga börn á aldrinum 10–12 ára. Afleiðingin gæti orðið minni svefn, meiri þreyta og lakari einbeiting í skóla daginn eftir. Ég tel því að mikilvægt sé að vega og meta áhrif breytingarinnar á svefn, líðan og daglegt fjölskyldulíf áður en ákvörðun er tekin. Afturámóti er mjög jákvætt að færa sumartímann frá 1. maí til 1. júní þar sem grunnskólar eru opnir fram í byrjun júní.

  • #3Cecilia Rose Collins

    I do not support lengthening allotted outside time during the winter months. The summer curfew should be changed to the proposed 1 June start time. We know that children are not getting enough sleep and as a parent and former teacher it’s clear how necessary this is for their development. It’s important to help children hold some focus and motivation in the classroom during the month of May (of course as with other times in the school year) and as a society we can encourage and support rest.

  • #4Gunnar Ingi Valgeirsson
    Ég fagna því að verið sé að endurskoða reglur um útivistartíma barna og að leitað sé eftir sjónarmiðum almennings. Ég styð þá breytingu að lengja útivistartíma barna á aldrinum 10–12 ára yfir vetrartímann um eina klukkustund, enda hefur samfélagið breyst og börn taka í dag þátt í fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Hins vegar tel ég að tillagan um að færa upphaf sumartíma útivistar úr 1. maí yfir á 1. júní sé ekki til bóta. Þótt markmiðið sé að samræma reglurnar betur skólaárinu tel ég að það eigi ekki að vera meginforsenda slíkrar breytingar. Reglur um útivistartíma eiga einnig að styð… Lesa alla

    Ég fagna því að verið sé að endurskoða reglur um útivistartíma barna og að leitað sé eftir sjónarmiðum almennings. Ég styð þá breytingu að lengja útivistartíma barna á aldrinum 10–12 ára yfir vetrartímann um eina klukkustund, enda hefur samfélagið breyst og börn taka í dag þátt í fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Hins vegar tel ég að tillagan um að færa upphaf sumartíma útivistar úr 1. maí yfir á 1. júní sé ekki til bóta. Þótt markmiðið sé að samræma reglurnar betur skólaárinu tel ég að það eigi ekki að vera meginforsenda slíkrar breytingar. Reglur um útivistartíma eiga einnig að styðja við lýðheilsu og hvetja börn til útiveru. Í dag standa börn frammi fyrir allt öðrum áskorunum en þegar reglurnar voru settar árið 1992. Snjallsímar, samfélagsmiðlar og tölvuleikir taka sífellt stærri hluta af frítíma barna. Af þeim sökum tel ég mikilvægt að samfélagið sendi skýr skilaboð um að útivera og leikur séu áfram mikilvægur hluti af uppvexti barna. Að stytta sumartímann um einn mánuð dregur úr þeim tíma ársins þar sem reglurnar veita börnum meira svigrúm til útiveru. Maímánuður er oft bjartur og hentar vel til útileikja og hreyfingar, þrátt fyrir að skólar séu enn starfandi. Jafnframt tel ég að eðlilegt væri að skoða hvort vetrartími útivistar ætti fremur að hefjast 1. október en 1. september. September er víða um land enn mildur haustmánuður með góðri dagsbirtu og mikilli útivist barna, bæði í leik og íþróttum. Það samræmist betur markmiðum reglna um útiveru að nýta þann mánuð en að hefja vetrartíma strax 1. september. Að mínu mati ætti meginmarkmið laganna að vera að stuðla að aukinni útiveru, hreyfingu og félagslegum samskiptum barna, samhliða því að tryggja öryggi þeirra. Við þær aðstæður sem nú ríkja, þar sem stafrænir miðlar keppa um athygli barna í auknum mæli, er síður ástæða til að draga úr þeim tíma sem hvetur til útiveru.

  • #5Elín Þóra Stefánsdóttir

    Sem kennari til tæplega 40 ára fagna ég að verið sé að færa sumarútivistatímann til 1. júní, því sjáanlegur munur er á þreytu barnanna þegar þetta gerist. En að lengja útivistartíma á veturnar finnst mér ekki góður kostur. Mörg börn vinna ekki heimavinnuna og lestur fyrr en á kvöldin og er þetta þá að seinka því um klukkustund. Þetta kemur líka til með að auka aðsókn þessa hóps að sundstöðum á þessum tíma.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-143/2026: Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími) · Alviti