Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-141/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM)

Drög að frumvarpi til laga um innleiðingu á CBAM-reglugerð ESB þar sem sett er á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu er lögð til innleiðing á CBAM-reglugerð (ESB) 2023/956. Með reglugerðinni er sett á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi) þar sem gjöld eru lögð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EES-svæðisins. CBAM kerfinu er ætlað að heimfæra gjöld á losun gróðurhúsalofttegunda, sambærileg þeim sem tíðkast undir ETS-kerfinu, á vörur sem framleiddar eru utan EES-svæðisins. Þannig gætir kerfið að samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu þegar endurgjaldslausum losunarheimildum fækkar innan ETS-kerfisins og á sama tíma er dregið úr hættu á kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og í gildi er á EES-svæðinu, til annarra ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er minni. Tilgangur CBAM-kerfisins er að jafna stöðu framleiðenda CBAM-vara innan og utan EES-svæðisins. Fyrirtæki sem falla undir kerfið eru þau sem flytja inn 50 tonn eða meira af CBAM vörum árlega. Innan þessara 50 tonna getur verið ein eða fleiri tollskyld vara sem fellur undir CBAM. Um er að ræða eftirfarandi vörur: i) áburður, ii) ál og álvörur, iii) járn og stál, iv) sement, v) vetni og vi) rafmagn. Innflutningur á vetni og rafmagni er þó alltaf háður kaupum á CBAM-vottorðum óháð fyrrnefndum 50 tonna þröskuldi. •CBAM-kerfið felur í sér skyldu til kaupa á CBAM-vottorðum vegna innflutnings fyrrgreindra CBAM-vara. Ferlið fer þannig fram að innflytjendum ber að kaupa svokölluð CBAM-vottorð og mun verð þeirra endurspegla verð ETS-losunarheimilda. •Fjöldi CBAM-vottorða sem kaupa þarf fyrir innfluttar CBAM-vörur er háður losun við framleiðslu varanna, að frádregnu mögulegu kolefnisgjaldi sem þegar hefur verið greitt í upprunalandi vörunnar. •Innflytjandi CBAM-vara þarf að fá samþykki sem CBAM-skýrslugjafi til þess að mega flytja vörurnar inn. •CBAM-skýrslugjafi safnar upplýsingum um losun varanna sem hann flytur inn frá löndum utan ESB og gefur út og skráir í gagnagrunn svokallaða CBAM-yfirlýsingu um innflutninginn og losun hans. Innflytjandi jafnar svo losunina með því að kaupa og skila inn CBAM-vottorðum fyrir losuninni.

S-141/2026· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. júl. 2026 – 17. ágú. 2026· 7 umsagnir

Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM)

Drög að frumvarpi til laga um innleiðingu á CBAM-reglugerð ESB þar sem sett er á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-141/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 233)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Sigurpáll Ingibergsson
    Undanþágur og frestanir hafa of oft einkennt íslenska loftslagsstefnu. Því fagnar Hellnasker að Ísland stígi þetta mikilvæga skref með innleiðingu CBAM. Kerfið er mikilvægt skref í átt að sanngjarnari samkeppni, aukinni skilvirkni í loftslagsmálum og minni hættu á kolefnisleka. Hellnasker styður markmið frumvarpsins en telur jafnframt að styrkja megi framkvæmd þess með eftirfarandi hætti: 1. Markviss ráðstöfun tekna – tekjur ríkissjóðs af CBAM (áætlaðar að lágmarki 350 milljónir á ári) verði nýttar til verkefna sem draga úr losun og efla náttúru Íslands. 2. Árleg opinber skýr… Lesa alla

    Undanþágur og frestanir hafa of oft einkennt íslenska loftslagsstefnu. Því fagnar Hellnasker að Ísland stígi þetta mikilvæga skref með innleiðingu CBAM. Kerfið er mikilvægt skref í átt að sanngjarnari samkeppni, aukinni skilvirkni í loftslagsmálum og minni hættu á kolefnisleka. Hellnasker styður markmið frumvarpsins en telur jafnframt að styrkja megi framkvæmd þess með eftirfarandi hætti: 1. Markviss ráðstöfun tekna – tekjur ríkissjóðs af CBAM (áætlaðar að lágmarki 350 milljónir á ári) verði nýttar til verkefna sem draga úr losun og efla náttúru Íslands. 2. Árleg opinber skýrsla um framkvæmd CBAM til að auka gagnsæi og auðvelda mat á árangri kerfisins. 3. Hvatar til kolefnislítillar framleiðslu með aukinni notkun staðfestra raunlosunargagna. 4. Reglulegt árangursmat á áhrifum kerfisins á losun, samkeppnishæfni og kolefnisleka. 5. Loftslagsvísar Hellnaskers – tvöfaldur loftslags- og náttúruvísir sem sýnir losun, samfélagskostnað kolefnislosunar (SCC) og náttúruáhættu (NCC). Nánari rökstuðningur og Viðauki 1 – Loftslagsvísar Hellnaskers fylgja með umsögninni.

  • #2Úrvinnslusjóður

    Meðfylgjandi er umsögn Úrvinnslusjóðs. F.h. Úrvinnslusjóðs, Sandra Brá Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri

  • #3Kristinn Már Reynisson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.

  • #4Landsvirkjun

    Hjálögð er umsögn Landsvirkjunar

  • #5Viðskiptaráð Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-141/2026: Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM) · Alviti