Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-139/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að því að bæta kjör lífeyrisþega og að auka skýrleika laganna með skýrari lagastoð fyrir greiðslu orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Gert er ráð fyrir að í fyrirhuguðu frumvarpi verði lagt til að bætt verði við lög um almannatryggingar nýju ákvæði til bráðbirgða þar sem kveðið verði á um sérstaka eingreiðslu í desember fyrir árið 2026 til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er gert ráð fyrir að nýrri málsgrein verði bætt við nokkur ákvæði laganna þar sem kveðið verði á um heimild ráðherra til að ákveða í reglugerð að árlega séu greiddar orlofs- og desemberuppbætur til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega. Jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra verði heimilt að setja fram nánari skilyrði í reglugerð.

S-139/2026· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. júl. 2026 – 10. ágú. 2026· 3 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að því að bæta kjör lífeyrisþega og að auka skýrleika laganna með skýrari lagastoð fyrir greiðslu orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-139/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 205)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Aftur er verið að mismuna öryrkjum eftir búsetu sem er ólögmætt samkæmt EES samningum um félagsleg málefni og samninga þar um. Þetta var lögbrot árið 2025 og þetta er lögbrot árið 2026. Að binda þessa eingreiðslu við lögheimili var ekki gert fyrr en Flokkur Fólksins tók við þessum málaflokki í núverandi ríkisstjórn. Einnig sem á sama tíma var þessi eingreiðsla tekjutengd sem hafði heldur ekki verið. Það er nú öll virðingin sem Flokkur Fólksins hefur fyrir öryrkjum sem þurfa að búa erlendis vegna ástandsins á húsnæðismarkaðinum á Íslandi. Ef að það á að greiða þessa eingreiðslu til öryrkja og e… Lesa alla

    Aftur er verið að mismuna öryrkjum eftir búsetu sem er ólögmætt samkæmt EES samningum um félagsleg málefni og samninga þar um. Þetta var lögbrot árið 2025 og þetta er lögbrot árið 2026. Að binda þessa eingreiðslu við lögheimili var ekki gert fyrr en Flokkur Fólksins tók við þessum málaflokki í núverandi ríkisstjórn. Einnig sem á sama tíma var þessi eingreiðsla tekjutengd sem hafði heldur ekki verið. Það er nú öll virðingin sem Flokkur Fólksins hefur fyrir öryrkjum sem þurfa að búa erlendis vegna ástandsins á húsnæðismarkaðinum á Íslandi. Ef að það á að greiða þessa eingreiðslu til öryrkja og ellilífeyrisþega. Þá á að greiða þetta til allra án nokkura takmarkana eða kröfu um búsetu á Íslandi.

  • #2Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi

  • #3ÖBÍ réttindasamtök

    Sjá viðhengi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-139/2026: Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 · Alviti