Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-138/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar

Áformaður eru breytingar á lögum með það að markmiði að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni með sameiningu og fækkun lögregluembætta.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Í lok maí 2026 kynnti dómsmálaráðherra áform um skipulagsbreytingar lögregluembættanna, sem miða að því að fækka þeim úr níu í fjögur til fimm og að þau embætti sem sameinuð verði öðrum verði með aðstoðarlögreglustjóra í stað lögreglustjóra til þess að tryggja nálægð við ákvörðunartöku. Samhliða verði verkaskipting innan lögreglu tekin til skoðunar. Þá verði hvorki starfsfólki lögreglu né svæðisstöðvum fækkað við þessar breytingar. Markmið áformanna eru að efla og styrkja lögregluna, ásamt því að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni í löggæslu. Með sameiningu og fækkun lögregluembætta gefst tækifæri til að efla lögregluna og gera hana betur í stakk búna til að sinna lögbundnum skyldum sínum, þar sem sameinuð embætti mynda stærri liðsheildir og hagkvæmari rekstrareiningar. Sameinuð embætti eru í betri stöðu til þess að fást við sífellt umfangsmeiri, flóknari og kostnaðarsamari löggæsluverkefni, bæði innanlands og á alþjóðavísu, og að vinna að nauðsynlegum umbótum, faglegri samlegð og skilvirkni í störfum. Ljóst er að auknar kröfur til lögreglunnar um að tryggja almannaöryggi og verkefni á alþjóðavettvangi, kallar á aukið samstarf og samhæfingu innan lögreglunnar þannig að hún starfi sem ein heild. Miklu skiptir að fagleg samlegð og skilvirkni í störfum lögreglu verði efld og að fjárveitingar til lögreglu verði sem best nýttar, meðal annars þegar kemur að innkaupum, stafrænni þróun og ýmiss konar miðlægri þjónustu. Þá þykja áformin styrkja lögregluna við að annast daglega þjónustu við íbúa, samfélagslöggæslu og forvarnarstarf um land allt, ásamt því að bjóða upp á aukin tækifæri til starfsþróunar um land allt. Til að fylgja áformunum eftir hefur dómsmálaráðherra verið að heimsækja öll lögregluembætti landsins með það að markmiði að kynna áformin, ræða við starfsfólk og hlusta á sjónarmið þess. Þá hafa áformin jafnframt verið rædd við samráðshóp, sem skipaður var af fulltrúum dómsmálaráðuneytisins, embættis ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórafélagsins og Landssambands lögreglumanna. Gert er ráð fyrir að frekara samráði við önnur ráðuneyti og aðra haghafa við vinnslu frumvarpsins. Áformin kalla á endurskoðun lögreglulaga nr. 90/1996 og eftir atvikum þeirrar löggjafar sem gildir um verkefni lögreglunnar, enda er fjöldi lögregluembætta lögfestur. Gert er ráð fyrir að frumvarp til breytinga á lögum verði lagt fyrir Alþingi á 158. löggjafarþingi 2026-2027. Í kjölfar lagabreytinga verður reglugerð nr. 1150/2014 um umdæmi lögreglustjóra endurskoðuð þar sem ákvæði hennar endurspegla núgildandi skipan lögregluembætta.

S-138/2026· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. júl. 2026 – 18. ágú. 2026· 11 umsagnir

Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar

Áformaður eru breytingar á lögum með það að markmiði að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni með sameiningu og fækkun lögregluembætta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-138/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Húnaþing vestra

    Meðfylgjandi er umsögn byggðarráðs Húnaþings vestra um áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar. F.h. byggðarráðs, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

  • #2Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir fyrri bókun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) um málið og ítrekar mikilvægi þess að allar breytingar á skipulagi lögregluþjónustu taki mið af sérstöðu landsbyggðarinnar, miklum vegalengdum og þeirri þjónustu sem íbúar og sveitarfélög reiða sig á í daglegu lífi. Byggðarráð lýsir áhyggjum af því að fyrirhugaðar breytingar geti leitt til minni nærveru stjórnenda, veikara tengslanets við sveitarfélög og skertrar þjónustu þegar fram líða stundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið um hið gagnstæða. Byggðaráð telur mikilvægt að ekki verði dregið… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir fyrri bókun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) um málið og ítrekar mikilvægi þess að allar breytingar á skipulagi lögregluþjónustu taki mið af sérstöðu landsbyggðarinnar, miklum vegalengdum og þeirri þjónustu sem íbúar og sveitarfélög reiða sig á í daglegu lífi. Byggðarráð lýsir áhyggjum af því að fyrirhugaðar breytingar geti leitt til minni nærveru stjórnenda, veikara tengslanets við sveitarfélög og skertrar þjónustu þegar fram líða stundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið um hið gagnstæða. Byggðaráð telur mikilvægt að ekki verði dregið úr starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra, að lögreglustöðvar í landshlutanum verði áfram reknar af fullum krafti og að staðbundin þekking, reynsla og sérhæfing sem byggð hefur verið upp innan embættisins glatist ekki. Byggðarráð áskilur sér rétt til að skila umsögn um málið þegar frumvarp eða nánari tillögur liggja fyrir og lýsir sig reiðubúið til frekara samráðs við ráðuneytið um framtíðarskipan lögregluþjónustu á Norðurlandi vestra.

  • #3Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE

    Góðan daginn, meðfylgjandi er umsögn stjórnar SSNE.

  • #4Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Umsögnin var samþykkt á fundi stjórnar sem haldinn var þann 12.08.2026. Virðingarfyllst, Berglind Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri S.S.S.

  • #5Þingeyjarsveit

    Meðfylgjandi er umsögn sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um mál S-138/2026. F.h. sveitarstjórnar, Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-138/2026: Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar · Alviti