Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-137/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum sem efla munu refsivernd gegn skipulagðri brotastarfsemi og styrkja rannsókn og saksókn slíkra brota.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Frumvarpið er liður í framkvæmd stefnu stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi, Öruggara Ísland, sem kynnt var í janúar 2026. Stefnan byggir á því mati að skipulögð brotastarfsemi hafi þróast hratt á undanförnum árum og einkennist í auknum mæli af alþjóðlegum tengslum, fjölþættri brotastarfsemi og verulegum áhrifum á öryggi samfélagsins, efnahagslíf og velferð. Markmið frumvarpsins er að tryggja að lagaumhverfið endurspegli þessa þróun og að stjórnvöld búi yfir fullnægjandi úrræðum til að fyrirbyggja, rannsaka og sækja til saka brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Frumvarpið felur í sér breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum. Meðal helstu breytinga sem eru til skoðunar er að skýra og rýmka skilgreiningu á skipulögðum brotahópum þannig að hún taki betur mið af starfsemi slíkra hópa í dag, lögfesta sérstakar refsihækkunarástæður þegar brot eru framin í starfsemi skipulagðra brotahópa eða þegar börn og ungmenni eru nýtt til brota, auk þess að endurskoða refsiramma eftir því sem tilefni er til. Þá er jafnframt fyrirhugað að efla heimildir til upptöku ólögmæts ávinnings af brotastarfsemi, meðal annars með því að lögfesta heimildir sem gera yfirvöldum kleift að gera eignir upptækar við tilteknar aðstæður þótt sakfelling vegna tiltekins frumafbrots liggi ekki fyrir. Jafnframt er stefnt að breytingum á lögum um meðferð sakamála sem ætlað er að efla rannsóknarúrræði og tryggja skilvirkari rannsókn og saksókn umfangsmikilla og flókinna mála sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þar er meðal annars horft til reglna um afhendingu rannsóknargagna til verjanda, tímalengd gæsluvarðhalds og framkvæmd tiltekinna rannsóknaraðgerða áður en dómsúrskurðar er aflað þegar brýn rannsóknarsjónarmið krefjast þess. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á lögreglulögum sem miða að því að efla afbrotavarnir, styrkja samhæfingu milli stjórnvalda og styrkja lagastoð fyrir notkun nýrrar tækni við löggæslu.

S-137/2026· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. júl. 2026 – 18. ágú. 2026· 3 umsagnir

Áform um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum sem efla munu refsivernd gegn skipulagðri brotastarfsemi og styrkja rannsókn og saksókn slíkra brota.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-137/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.