Áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms, námslok o.fl.)
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á lögum um framhaldsskóla.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-134/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 5. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Björg Pétursdóttir
Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms, námslok o.fl.) / MRN26060016 Í áformunum segir að tilefni málsins sé í fyrsta lagi að kanna þörf á skýrari umgjörð um námslok fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra, hagnýtara og sveigjanlegra nám en núverandi námslok gera almennt ráð fyrir. Í áformunum er minnst á námslok sem kallast framhaldsskólapróf og voru tekin upp með útgáfu aðalnámskrá framhaldsskóla árið 2011. Einnig er rætt um nemendur sem ekki ná að fóta sig innan núverandi námsframboðs meðal annars vegna þess að það tek… Lesa alla
Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms, námslok o.fl.) / MRN26060016 Í áformunum segir að tilefni málsins sé í fyrsta lagi að kanna þörf á skýrari umgjörð um námslok fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra, hagnýtara og sveigjanlegra nám en núverandi námslok gera almennt ráð fyrir. Í áformunum er minnst á námslok sem kallast framhaldsskólapróf og voru tekin upp með útgáfu aðalnámskrá framhaldsskóla árið 2011. Einnig er rætt um nemendur sem ekki ná að fóta sig innan núverandi námsframboðs meðal annars vegna þess að það tekur ekki nægilega mið af raunverulegri getu þeirra og þörfum. Lausnin sem stungið er upp á er að innleiða ný námslok sem eru sérstaklega hugsuð fyrir vaxandi hóp nemenda sem uppfylla ekki skilyrði fyrir innritun á starfsbrautir en þurfa aukinn stuðning í námi og einstaklingsmiðað nám. Ég tel mjög mikilvægt að skilgreina EKKI ný námslok í framhaldsskóla, þar sem þau námslok eru þegar til í framhaldsskólakerfinu. Lýsingin á nýju námslokunum felur í sér nákvæmlega sömu lýsingu og á við um námslokin framhaldsskólapróf í aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011. Það er því ekki lausn á vandamálinu að búa til ný námslok. Með því að fjölga námslokum frá því sem nú er, verður námstilboðafrumskógurinn enn flóknari fyrir nemendur og forráðamenn auk þess sem námsbrautalýsingar, sem þurfa að fara í viðurkenningarferli hjá ráðuneytinu, fjölgar. Í aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011 er boðið upp á námslokin framhaldsskólapróf bæði á fyrsta hæfniþrepi og öðru hæfniþrepi. Námslokin miða við að nemandi sé í framhaldsskóla 1,5 – 2 skólaár og framhaldsskóla er leyfilegt að einstaklingsmiða námið algjörlega að þörfum viðkomandi. Til þess að skýra námslokin betur er miðað við að viðkomandi framhaldsskóli skilgreini námslokin annað hvort á fyrsta eða öðru hæfniþrepi eftir því hvort unnið var fyrst og fremst með nám og hæfni á grunnskólastigi eða hvort viðkomandi nemandi vann að viðbótarhæfni. Námið getur falið í sér bóknám, listnám og/eða starfsnám og verið skipulagt eftir því sem henta þykir. Það er því algjör óþarfi að bæta við námslokum á framhaldsskólastigi. Aftur á móti gæti verið ástæða til að hvetja framhaldsskóla til að gera nám til framhaldsskólaprófs meira einstaklingsmiðað, einfalda ferlið við mat á námi til framhaldsskólaprófs og gera nemendum auðveldara að útskrifast með framhaldsskólapróf. Svo þurfa menn að muna að nemendum sem gengur illa að fóta sig í framhaldsskóla vilja oft ekki skrá sig í nám sem ekki lýkur með stúdentsprófi eða starfsréttindum. Það að bjóða upp á ný námslok, eða nýtt námsúrræði er ekki endilega ávísun á að brotthvarf úr framhaldsskóla minnki. Kannski væri betri lausn að gera þjóðarsátt um að ráða ekki börn (yngri en 18 ára) í vinnu. Meðan vinnumarkaðurinn er þannig að ungt fólk fær vinnu óháð því hvaða námi það hefur lokið, eða ekki lokið, vantar hvatninguna til að ljúka framhaldsskólanámi. Annað íslenskt séreinkenni á framhaldsskólakerfinu er hvað það er auðvelt að koma til baka í nám. Kosturinn við þessa séríslensku útfærslu er að þá er auðveldara að hefja nám aftur þegar viðkomandi hefur fengið aukinn áhuga og veit betur hvað hann vill leggja fyrir sig en gallinn er hvað það er auðvelt að hætta í námi með þá hugsun í farteskinu að maður ljúki náminu bara seinna. Hér gæti verið kostur að skilja betur framhaldsskólanám fyrir 16-20 ára frá framhaldsskólanámi fyrir fullorðna. Það er eðlilegt að námsstuðningur og þjónusta sé meiri fyrir nemendur á hefðbundnum framhaldsskólaaldri heldur en fyrir fullorðið fólk. Þarfir fullorðinna, sem oft á tíðum eru með fjölskyldur, eru einnig aðrar og þeir þurfa frekar nám sem er skipulagt með vinnu. Þannig aðgreining milli nemenda á „framhaldsskólaaldri“ og fullorðinna nemenda myndi einnig bjóða upp á straumlínulagaðri fjárveitingar og gera íslenska tölfræði um framhaldsskólanám samanburðarhæfari við önnur lönd. Því má bæta við að ef íslenska framhaldsskólakerfinu væri skipt í tvennt, þ.e. fyrir A) 16-20 ára og B) >20 ára væri einnig hægt að gera mismunandi kröfur til fjarnáms. Það má nefnilega skipta fjarnámsnemendum í tvo hópa. Annar hópurinn er í hefðbundnu framhaldsskólanámi. Þessir nemendur taka áfanga í fjarnámi t.d. af því þeir féllu í áfanganum eða áfanginn er ekki kenndur í þeirra skóla þegar þeim hentar. Hinn hópurinn eru nemendur sem eru fyrst og fremst að taka námið með öðrum verkum. Sá hópur er yfirleitt annað hvort svokallaðir brotthvarfsnemendur eða einstaklingar sem hafa jafnvel lokið námi í framhaldsskóla og eru að taka áfanga til að bæta við fagþekkingu sína. Björg Pétursdóttir fyrrum skrifstofustjóri framhaldsskóla og -fræðslu
- #2Persónuvernd
Með fylgir umsögn Persónuverndar.
- #3Magnús Hlynur Haraldsson
Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms, námslok o.fl.) / Mál nr. S-134/2026 Eftirfarandi umsögn er frá stjórn félags raungreinakennara. Í flestum raungreinaáföngum á framhaldsskólastigi gegna verklegar æfingar lykilhlutverki í náminu. Verklegar æfingar, ásamt markvissri úrvinnslu niðurstaðna, eru órjúfanlegur hluti raungreina kennslu. Þær stuðla að því að nemendur öðlist verklega færni, gagnrýna hugsun og tileinki sér þau vísindalegu vinnubrögð sem nauðsynleg eru fyrir áframhaldandi nám og störf á sviði raungreina. Nemendur… Lesa alla
Umsögn um áform um lagasetningu: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (skipulag náms, námslok o.fl.) / Mál nr. S-134/2026 Eftirfarandi umsögn er frá stjórn félags raungreinakennara. Í flestum raungreinaáföngum á framhaldsskólastigi gegna verklegar æfingar lykilhlutverki í náminu. Verklegar æfingar, ásamt markvissri úrvinnslu niðurstaðna, eru órjúfanlegur hluti raungreina kennslu. Þær stuðla að því að nemendur öðlist verklega færni, gagnrýna hugsun og tileinki sér þau vísindalegu vinnubrögð sem nauðsynleg eru fyrir áframhaldandi nám og störf á sviði raungreina. Nemendur sem ekki fá tækifæri til að taka þátt í verklegum æfingum búa ekki við sömu forsendur og þeir sem stunda hefðbundið dagskólanám. Skortur á verklegri þjálfun getur haft áhrif á undirbúning þeirra fyrir háskólanám og aðra framhaldsmenntun, þar sem gert er ráð fyrir að nemendur hafi tileinkað sér grunnfærni í rannsóknaraðferðum, mælingum, öryggisreglum og úrvinnslu gagna. Því er mikilvægt að fjarnám í raungreinum og öðru STEM námi sé skipulagt með þeim hætti að nemendur fái sambærilega verklega þjálfun og þeir sem stunda dagskóla. Að öðrum kosti er hætta á að fjarnámsnemendur telji sig hafa lokið námi sem jafngildir dagskólanámi án þess að hafa öðlast sömu hæfni og færni. Slíkt er hvorki sanngjarnt gagnvart nemendum né í samræmi við markmið um jafnræði milli nemenda. Þessu til viðbótar eru verklegar æfingar oft áhuga hvetjandi fyrir nemendur sem fá að sjá þessa hlið á fræðigreininni. Nemendur fá að sjá það sem þau læra um í fræðunum raungerast í höndunum á þeim. Slíkt styður við nám þeirra, eykur áhuga á fræðigreininni auk þess sem nýsköpun og rannsóknir í STEM greinum byggja mikið til á verklegri færni, burtséð frá því hver framtíðar starfsvettvangur nemenda verður. Við skipulagningu fjarnáms þarf því að tryggja að námskröfur og hæfniviðmið séu sambærileg, óháð kennsluformi. Fjárhagsleg sjónarmið mega aldrei verða til þess að dregið sé úr gæðum náms með því að fella niður verklega kennslu en jafnframt veita nemendum þá mynd að þeir hafi lokið námi sem jafngildir hefðbundnu dagskólanámi. Fagleg viðmið og gæðakröfur í raungreinakennslu verða ávallt að vera leiðarljós við þróun og framkvæmd náms. Hvort sem um er að ræða staðnám, fjarnám eða blandað nám. Við endurskoðun á lögum og reglum um fjarnám á framhaldsskólastiginu vill félag raungreinakennara að þessi sjónarmið sem hér hafa verið nefnd séu lögð til grundvallar.
- #4ÖBÍ réttindasamtök
Umsögn Öbí réttindasamtaka
- #5Hannes Valur Bryndísarson
Umsögn Skólameistarafélags Íslands.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.