Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-132/2026 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu er varðar frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: október).

Áformunum er ætlað að bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla með því að kveða á um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur unnið markvisst að því að leita leiða til að auka öryggi barna og ungmenna á netinu. Vaxandi þekking liggur fyrir um þá áhættu sem getur fylgt notkun barna á samfélagsmiðlum, meðal annars vegna skaðlegs efnis, áreitni, félagslegs samanburðar, persónusniðinnar dreifingar efnis, umfangsmikillar gagnasöfnunar og hönnunar miðlanna sem getur ýtt undir langvarandi eða áráttukennda notkun barna. Núgildandi lagaumhverfi á Íslandi felur ekki í sér skýrt almennt aldursviðmið sem takmarkar aðgang barna að samfélagsmiðlum. Í framkvæmd byggir aðgangur barna að þessum miðlum að miklu leyti á skilmálum tæknifyrirtækjanna sjálfra og sjálfskráðum aldri notenda þar sem miðað er við 13 ára aldur. Mennta- og barnamálaráðuneytið telur brýnt að bregðast við því með skýrum lagareglum um aldurstakmörk til að tryggja börnum þá vernd sem velferð þeirra krefst í hinu stafræna umhverfi. Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að draga úr áhættu sem getur fylgt ótímabærri og óheftri notkun barna að samfélagsmiðlum og vernda þau gegn skaðlegu efni, áreitni og neikvæðum samskiptum. Áformað er að leggja fram frumvarp til sérlaga þar sem miðað verði við að börn fái aðgang að samfélagsmiðlum 1. janúar árið sem barn verður 15 ára. Ekki gert ráð fyrir því að brot gegn þeirri reglu varði refsingu heldur verði það sett fram sem almennt verndarákvæði líkt og ákvæði XVII. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fyrirhugaðri lagasetningu er þannig ætlað að hafa almenn verndaráhrif og styðja við uppeldishlutverk foreldra og forsjáraðila þegar kemur að aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Verði frumvarpið að lögum áformar ráðuneytið jafnframt að standa fyrir vitundarvakningu og aukinni fræðslu um öryggi barna og ungmenna á samfélagsmiðlum í samvinnu við helstu hagaðila. Ráðuneytið hefur þegar haft samráð við börn, ungmenni og ýmsa hagaðila vegna málsins. Í því samráði hefur komið fram skýr vilji til að efla vernd barna í stafrænu umhverfi en jafnframt að mikilvægt sé að lausnir verði mótaðar með hliðsjón af réttindum barna, meðalhófi, fræðslu, miðlalæsi og ábyrgð foreldra, stjórnvalda og þjónustuveitenda.

S-132/2026· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 14. júl. 2026 – 29. júl. 2026· 16 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um lagasetningu er varðar frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-132/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. júlí 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 78)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Tómas Kristjánsson

    Lagt er til að við fyrirhugaða lagasetningu verði einnig tekið til skoðunar að setja sjötíu ára hámarksaldur fyrir aðgang að samfélagsmiðlum. Umsögn í viðhengi.

  • #2Arnar Már Viðarsson

    Í viðhengi er mín umsögn um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Þar set ég fram mínar áhyggjur með þessu frumvarpi og ófyrirsjáanlegar afleiðingar þess.

  • #3Ásgrímur Hartmannsson

    Það semsagt stendur til að búa til mikla persónuverndar-martröð, vegna þess að þið treystið foreldrum ekki til þess að ala börnin sín upp. Þetta hlýtur að vera grófasta móðgun við foreldra landsins sem þeir hafa fengið frá ykkur í meira en ár. Vísið þessu frá hið snarasta áður en fleira fólk sér til ykkar.

  • #5Reyn Alpha Magnúsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn mín um áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum.

  • #6Jón Helgi Davíðsson

    Samfélagsmiðlar hafa auðgað líf tugþúsunda ungmenna á Íslandi. Það er nær 100% ánægja með með samfélagsmiðla meðal barna og ungmenna sem nota þá reglulega. Börn og ungmenni ættu að halda rétti sínum til að auðga líf sitt með samfélagsmiðlum. Það að takmarka aðgengi af samfélagsmiðlum gæti valdið sálrænum skaða hjá börnum og ungmennum. Það væri líka glæpur án fórnarlambs. Með hagsmuni barna í huga ber að hafna öllum tillögum um skerðingar á samfélagsmiðlum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-132/2026: Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum · Alviti