Áform um frumvarp til laga um Ábyrgðasjóð launa
Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er ætlunin að endurskoða núgildandi lög um Ábyrgðasjóð launa í heild sinni.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-129/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #12F Fagfélögin Stórhöfða
Fagfélögin taka undir mikilvægi þess að reglur um fyrningar krafna séu skýrar, fyrirsjáanlegar og taki mið af raunverulegum aðstæðum þeirra sem eiga kröfur. Fagfélögin telja hins vegar brýnt að við endurskoðun reglnanna sé sérstaklega horft til stöðu launafólks og þess að breytingar á almennum fyrningarfresti geta haft áhrif á möguleika þess til að ná fram rétti sínum. Af þeim gögnum sem liggja fyrir virðist breytingin ekki eingöngu beinast að lífeyriskröfum heldur hafa víðtækari áhrif á kröfur almennt. Það er mikilvægt atriði að mati Fagfélaganna. Þótt ætla megi að breytingin hafi takmörkuð… Lesa alla
Fagfélögin taka undir mikilvægi þess að reglur um fyrningar krafna séu skýrar, fyrirsjáanlegar og taki mið af raunverulegum aðstæðum þeirra sem eiga kröfur. Fagfélögin telja hins vegar brýnt að við endurskoðun reglnanna sé sérstaklega horft til stöðu launafólks og þess að breytingar á almennum fyrningarfresti geta haft áhrif á möguleika þess til að ná fram rétti sínum. Af þeim gögnum sem liggja fyrir virðist breytingin ekki eingöngu beinast að lífeyriskröfum heldur hafa víðtækari áhrif á kröfur almennt. Það er mikilvægt atriði að mati Fagfélaganna. Þótt ætla megi að breytingin hafi takmörkuð áhrif á hefðbundnar kröfur vegna vangoldinna launa, orlofs, vetrarfría og uppsagnarfrests, sýnir reynsla Fagfélaganna að kröfur launafólks geta orðið til vegna atvika sem ná yfir langan tíma. Þetta á einkum við þegar vanskil eru viðvarandi í atvinnurekstri, þegar ágreiningur rís um réttindi samkvæmt kjarasamningum eða þegar starfsemi atvinnurekanda lýkur skyndilega, meðal annars vegna gjaldþrots. Í slíkum tilvikum getur liðið talsverður tími frá því krafa myndast þar til unnt er að staðreyna fjárhæð hennar eða gera hana að fullu upp. Þá er mikilvægt að hafa í huga að staða launafólks er allt önnur en staða atvinnurekanda eða annarra kröfuhafa. Laun eru meginframfærsla fólks og launfólk hefur almennt takmörkuð úrræði til að knýja fram greiðslu á meðan ráðningarsambandi stendur. Það getur því verið óeðlilegt ef stytting almenns fyrningarfrests leiðir til þess að launafólk fer á mis við réttmætar kröfur vegna þess að það hefur ekki haft raunhæft tækifæri til að fylgja kröfu sinni eftir innan tímaramma hins nýja frests. Fagfélögin telja því sérstaklega mikilvægt að við undirbúning breytinganna verði skoðað með raunverulegum gögnum hvaða tegundir krafna hafa verið gerðar undanfarin ár, hversu langt aftur þær ná og hvort breytingarnar geti leitt til þess að kröfur launafólks, sem ella hefðu fengist greiddar, falli niður. Fyrirbyggja þarf að breytingin muni bitna á fólki sem þegar er í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði, t.d. erlendu félagsfólki Fagfélaganna og ungu fólki. Fagfélögin telja jafnframt rétt að stjórnvöld geri grein fyrir því hvort og þá hvernig breytingarnar samræmast annars vegar reglum um kröfur vegna gjaldþrots atvinnurekenda og hins vegar greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja launafólki greiðslur þegar atvinnurekandi getur ekki staðið við skuldbindingar sínar.
- #2Landssamtök lífeyrissjóða
Umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða.
- #3Starfsgreinasamband Íslands
Umsögn Starfsgreinasambands Íslands má sjá í viðhengi:
- #4Lífeyrissjóður verzlunarmanna
Umsögn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
- #5Alþýðusamband Íslands
Umsögn Alþýðusambands Íslands er meðfylgjandi viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.