Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-128/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Áformaðar eru breytingar á gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk. Markmiðið er að bæta lagaframkvæmd og tryggja betur jafnræði og aðgengi fatlaðs fólks að þjónustu og aðstoð sem lögin kveða á um.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Á undanförnum árum hafa verið mótaðar tillögur um atriði sem talið er nauðsynlegt að endurskoða eða breyta í gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk. Umrædd lög voru sett árið 2018 og í ákvæði til bráðabirgða með þeim var gert ráð fyrir því að endurskoðun færi fram vegna álitaefna sem upp kæmu við framkvæmd þeirra. Tillögur í því efni koma fram í: a) Skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, frá apríl 2022 b) Áfangaskýrslu II - Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk, frá september 2024, c) Skýrslu starfshóps um yngra fólk á hjúkrunarheimilum, frá júní 2024, og d) Skýrslu starfshóps um húsnæði við hæfi, frá maí 2026. Enn fremur var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga í desember 2023 á grundvelli svonefndrar áfangaskýrslu I, en ákvæði samkomulagsins gera ráð fyrir endurskoðun á gildandi lögum. Þá var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) lögfestur hér á landi með einróma samþykki Alþingis þann 12. nóvember 2025 á lögum nr. 80/2025. Við meðferð frumvarps um lögfestinguna var kallað eftir því að áfram yrði unnið að innleiðingu einstakra ákvæða samningsins í íslensk lög. Það er mat ráðuneytisins að gera þurfi eftirfarandi breytingar á lögunum og eru áform þar að lútandi hér með kynnt: 1. Að ákvæði um samræmt, staðlað mat á umfangi stuðningsþarfa (SIS-mat) verði tekið upp í 3. gr. laganna. Matið verði lögfest sem grundvöllur ákvarðana um þjónustu samkvæmt lögunum. Þessi breyting myndi tryggja að mat yrði framkvæmt með samræmdum hætti á landsvísu. Þá væri breytingin til samræmis við fyrrgreint samkomulag ríkis og sveitarfélaga, niðurstöður í áfangaskýrslu II og gildandi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, nr. 1123/2025, þar sem SIS-mat er lagt til grundvallar við mat á útgjaldaþörf og fjármögnun þjónustu. 2. Að lögfest verði að sveitarfélög og þjónustusvæði skuli, við gerð einstaklingsbundinnar þjónustuáætlunar, byggja á niðurstöðu SIS-mats. Breytingin væri til samræmis við 6. gr. samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga. 3. Að heiti „einstaklingsbundinnar þjónustuáætlunar“ yrði breytt í „stuðningsáætlun“. 4. Að lögfest verði lágmarksstærð þjónustusvæða í þjónustu við fatlað fólk, þannig að hvert þjónustusvæði hafi að minnsta kosti 6.000 íbúa. Markmiðið er að styrkja faglega og fjárhagslega burði þjónustusvæða og stuðla að jafnræði, gæðum og stöðugleika í þjónustu. Breytingin væri í samræmi við framangreint samkomulag ríkis og sveitarfélaga, áfangaskýrslu II og tillögu í skýrslu starfshóps um húsnæði við hæfi 5. Að í lögunum verði sérstök ákvæði um rétt fatlaðra barna til að alast upp hjá fjölskyldu sinni og njóta þjónustu í nærumhverfi. Jafnframt verði skýrt kveðið á um að fötluð börn eigi rétt á þeirri þjónustu sem kveðið er á um í öðrum ákvæðum laganna og að ákvæði IV. kafla, um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, séu viðbót við önnur réttindi sem lögin hafa að geyma, sbr. tillögu í skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018. 6. Að skýrt verði kveðið á um að óheimilt sé að innheimta gjald fyrir frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni sem kveðið er á um í 16. gr. laganna. 7. Að orðin „innan árs frá alþingiskosningum“ verði felld brott úr 37. gr. sem kveður á um skyldu ráðherra til að leggja fyrir Alþingi, innan árs frá alþingiskosningum, tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til fjögurra ára í senn. 8. Að verkefnisstjórn um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks (landsáætlun) fái skýran grundvöll í lögum og verði skilgreind sem miðstöð innan stjórnsýslunnar sbr. 1. mgr. 33. gr. SRFF. 9. Að innleitt verði samræmt og heildstætt mat á húsnæðisþörf fatlaðs fólks á landsvísu með það að markmiði að tryggja jafnræði í þjónustu og að ákvarðanir um þjónustu og búsetu byggi á sambærilegum, gagnsæjum og hlutlægum viðmiðum. 10. Að í 9. gr. laganna og 47. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, verði kveðið á um að einstaklingar sem hlotið hafa dómsúrlausn um að sæta lögákveðnum öryggisráðstöfunum skuli njóta forgangs á biðlistum sveitarfélaga eftir húsnæði á þeirra vegum. Þessi tillaga helst í hendur við nýsamþykkt lög nr. 76/2026, um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. 11. Að í stað núgildandi 29. gr. laganna komi ákvæði sem fjalli um skyldur ábyrgðaraðila þjónustu skv. lögunum til þess að skrá, meðhöndla og miðla upplýsingum um þjónustuna í heild og einstaka þjónustuþætti. 12. Að í lögunum verði skýrar kveðið á um skyldu sveitarfélaga til að viðhafa virkt samráð við fatlað fólk og samtök þess með því að starfrækja formlegan vettvang á öllum þjónustusvæðum. Jafnframt er lagt til að sett verði lagaákvæði, ásamt reglugerðarheimild, þar sem nánar verði skilgreint hvað felist í samráði. Þá verður hugað að því við frumvarpsgerðina að skýra og skilgreina verka- og ábyrgðarskiptingu heilbrigðis- og félagskerfis þegar notendur eru í þörf fyrir umfangsmikla þjónustu.

S-128/2026· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 14. júl. 2026 – 16. ágú. 2026· 16 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Áformaðar eru breytingar á gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk. Markmiðið er að bæta lagaframkvæmd og tryggja betur jafnræði og aðgengi fatlaðs fólks að þjónustu og aðstoð sem lögin kveða á um.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-128/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-128/2026: Áform um breytingu á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir · Alviti