Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-127/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (EES-réttur)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: janúar).

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum, nr. 30/2008, raforkulögum nr. 65/2003 og lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi nr. 40/2013. Breytingunum er ætlað að tryggja fullnægjandi lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunarinnar og nánari útfærslu í reglugerðum. Í frumvarpinu er m.a. verið að útvíkka gildissvið upprunaábyrgða þannig að þær nái ekki einungis til raforku heldur einnig til að mynda hitunar, kælingar og vetnis. Þá er lagt til að lögfesta ný hugtök á borð við jafningjaviðskipti, orkusamfélög og virka notendur. Með því er lagður grunnur að því að einstaklingar, lítil og meðalstór fyrirtæki ásamt sveitarfélögum geti framleitt, geymt, neytt og selt endurnýjanlega raforku, bæði sjálfstætt og í samlagi við aðra. Þá er ráðherra veitt heimild til að kveða nánar á um tæknileg skilyrði tenginga, einfaldað tilkynningarferli vegna smærri framleiðslueininga og staðlaða gjaldskrárumgjörð í reglugerð. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um skyldu eldsneytisbirgja og rekstraraðila til að skrá viðeigandi upplýsingar í sameiginlegan gagnagrunn Evrópusambandsins. Markmið slíkrar skráningar er að tryggja gagnsæi og rekjanleika, auðvelda eftirlit og draga úr hættu á að sama magn eldsneytis sé talið oftar en einu sinni. Breytingarnar fela ekki í sér sjálfstæða hækkun á lágmarkshlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis eða nýja íblöndunarskyldu umfram það sem leiðir af lögunum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Þær miða fyrst og fremst að því að skýra hvaða skilyrði eldsneyti þarf að uppfylla til að teljast til markmiða eða skyldna samkvæmt lögunum, hvaða aðilar bera ábyrgð á gögnum, upplýsingum, rekjanleika og skráningu og hvaða heimildir stjórnvöld hafa til eftirlits og nánari útfærslu. Athugasemdir við frumvarpsdrögin skulu berast eigi síðar en 14. ágúst 2026.

S-127/2026· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 14. júl. 2026 – 14. ágú. 2026· 17 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (EES-réttur)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-127/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 17 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (17)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-127/2026: Drög að frumvarpi til laga til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (EES-réttur) · Alviti