Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-125/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tímabundin aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til lánastofnana vegna markaðsáhættu

Áformað er að innleiða EES-reglugerð sem felur í sér tímabundna aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til ársloka 2029.

Ekki komið til Alþingis

Í reglugerð (ESB) nr. 575/2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir („CRR“), sem gildir sem lög hér á landi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, eru settar fram kröfur um eigið fé lánastofnana. Umfang krafnanna tekur meðal annars mið af markaðsáhættu lánastofnana, sem er hætta á tapi vegna óhagstæðra breytinga á markaðsverðum, svo sem á verði hlutabréfa og gengi gjaldmiðla. Evrópusambandið samþykkti með reglugerð (ESB) 2024/1623 („CRR III“) að breyta reglum um eigið fé vegna markaðsáhættu til að innleiða breytingar á alþjóðlegum viðmiðum um varfærniskröfur sem gerðar eru til banka, svonefndan Basel III-staðal. Sá staðall er afrakstur gagngerrar endurskoðunar á varfærniskröfum til banka sem var ráðist í af hálfu Basel-nefndarinnar um bankaeftirlit í því skyni að bæta úr vanköntum sem alþjóðlega fjármálakreppan sem hófst á árunum 2007 og 2008 leiddi í ljós. Breytingunum á reglunum um eigið fé vegna markaðsáhættu var ætlað að gera eiginfjárkröfurnar áhættunæmari. Jafnframt var leitast við að draga úr mun á mati á markaðsáhættu milli lánastofnana, meðal annars með því að auka heimildir eftirlitsaðila til að hafa eftirlit með niðurstöðum áhættumatslíkana lánastofnana og takmarka notkun ófullnægjandi líkana. Evrópusambandið samþykkti með reglugerðum (ESB) 2024/2795 og 2025/1496 að fresta tilteknum breytingum samkvæmt CRR III á kröfum um eigið fé vegna markaðsáhættu um eitt ár í senn, fyrst til janúar 2026 og svo til janúar 2027. Skýrðist það af því að innleiðingu hliðstæðra breytinga utan Evrópusambandsins hafði seinkað, einkum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Með seinkuninni átti að koma í veg fyrir að lánastofnanir á Evrópska efnahagssvæðinu lytu hærri eiginfjárkröfum vegna markaðsáhættu en lánastofnanir utan þess, sem gæti komið niður á samkeppnisstöðu þeirra. CRR III og reglugerðir (ESB) 2024/2795 og 2025/1496 voru lögfestar með lögum nr. 102/2025 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (CRR III), sem tóku gildi í lok desember 2025. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú lagt fram tillögu að nýrri reglugerð varðandi nýju reglurnar um markaðsáhættu. Reglugerðin felur ekki í sér frekari frestun á gildistöku nýju reglnanna, en mælt er fyrir um tímabundna aðlögun á útreikningi eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu þannig að eiginfjárkröfur verði áfram sambærilegar því sem myndi leiða af gildandi reglum til ársloka 2029. Skýrist það aftur af töfum á hliðstæðum breytingum utan Evrópusambandsins. Ef að ráðið og Evrópuþingið gera ekki athugasemdir við tillöguna tekur hún gildi um næstu áramót. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin sem fyrst upp í EES-samninginn. Íslandi mun bera þjóðréttarleg skylda til að leiða hana í landsrétt þegar hún hefur verið tekin upp í samninginn. Áformað er að innleiða reglugerðina í heild sinni með því að bæta vísun til hennar við 1. gr. c laga um fjármálafyrirtæki. Ráðgert er að leggja til að lögin taki gildi 1. janúar 2027, þannig að reglugerðin taki gildi á sama tíma hér á landi og í Evrópusambandinu.

S-125/2026· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. júl. 2026 – 28. ágú. 2026· 1 umsögn

Tímabundin aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til lánastofnana vegna markaðsáhættu

Áformað er að innleiða EES-reglugerð sem felur í sér tímabundna aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til ársloka 2029.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-125/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Íris Björk Hreinsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) um málið.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-125/2026: Tímabundin aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til lánastofnana vegna markaðsáhættu · Alviti