Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-123/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 26. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 35 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (35)
- #1Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að fram séu komin drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og leggur áherslu á að uppbyggingin tryggi jafnt aðgengi landsmanna að öruggri og áreiðanlegri raforku og styðji við atvinnuþróun og orkuskipti um land allt. Byggðarráð tekur undir það mat stjórnvalda að brýnt sé að bæta stöðu raforkumála á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Ráðið bendir hins vegar á að Norðurland vestra býr einnig við verulegar takmarkanir í flutningskerfi raforku sem hamla atvinnuuppbyggingu, orkuskiptum og nýsköpun. Það er því mikilvægt að stefnan taki einnig… Lesa alla
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að fram séu komin drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og leggur áherslu á að uppbyggingin tryggi jafnt aðgengi landsmanna að öruggri og áreiðanlegri raforku og styðji við atvinnuþróun og orkuskipti um land allt. Byggðarráð tekur undir það mat stjórnvalda að brýnt sé að bæta stöðu raforkumála á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Ráðið bendir hins vegar á að Norðurland vestra býr einnig við verulegar takmarkanir í flutningskerfi raforku sem hamla atvinnuuppbyggingu, orkuskiptum og nýsköpun. Það er því mikilvægt að stefnan taki einnig mið af þörfum svæðisins og að uppbygging flutningskerfisins leiði til raunverulegrar aukningar á afhendingaröryggi og flutningsgetu á Norðurlandi vestra. Aðgengi að raforku er ein af grundvallarforsendum byggðaþróunar. Norðurland vestra hefur um árabil ekki haldið í við landsmeðaltal í íbúaþróun og því er það sameiginlegt verkefni stjórnvalda og heimamanna að skapa skilyrði fyrir aukna atvinnuuppbyggingu og fjölgun íbúa. Traustir raforkuinnviðir eru þar lykilatriði og forsenda þess að svæðið geti nýtt þau tækifæri sem felast í atvinnuþróun, orkuskiptum og aukinni verðmætasköpun. Byggðarráð hefur áður bent á að meginflutningslínur raforku til Skagafjarðar séu fulllestaðar og að flutningsgeta til svæðisins sé takmarkandi þáttur fyrir frekari uppbyggingu. Jafnframt er Rangárvallalína elsti hluti byggðalínunnar á Íslandi. Byggðarráð fagnar því þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er á meginflutningskerfinu en telur jafnframt nauðsynlegt að ráðist verði í endurnýjun Sauðárkrókslínu 1 hið fyrsta og að flutningsgeta til Sauðárkróks og Norðurlands vestra verði aukin þannig að raforkuinnviðir standi ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu atvinnulífs og samfélags í landshlutanum.
- #2Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE
Góðan daginn, meðfylgjandi er umsögn stjórnar SSNE.
- #3Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Landverndar. Bestu kveðjur, Þorgerður M Þorbjarnardóttir Formaður
- #4Jóhanna María Sigmundsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn sveitarfélagsins Dalabyggðar í samræmi við afgreiðslu á 271. fundi sveitarstjórnar þann 13. ágúst 2026. - Jóhanna María Sigmundsdóttir, staðgengill sveitarstjóra hjá Dalabyggð
- #5Dalabyggð
Meðfylgjandi er umsögn sveitarfélagsins Dalabyggðar í samræmi við afgreiðslu á 271. fundi sveitarstjórnar þann 13. ágúst 2026. - Jóhanna María Sigmundsdóttir, staðgengill sveitarstjóra hjá Dalabyggð
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.