Um er að ræða heildarendurskoðun á núgildandi fyrirkomulagi um opinberar framkvæmdir til að tryggja að samræmd málsmeðferð og fagleg verkefnastjórnsýsla gildi yfir allar stærri fjárfestingar ríkisins.
Fjárfestingar ríkisins fela í sér umfangsmiklar skuldbindingar og hafa víðtæk áhrif á ríkisfjármál, opinbera þjónustu og samfélagið í heild til langs tíma. Á síðustu árum hefur bæði umfang og flækjustig slíkra fjárfestinga aukist, jafnframt því sem kröfur hafa vaxið um vandaðan undirbúning, skýra forgangsröðun og ábyrgari meðferð opinberra fjármuna.
Gildandi lagaumhverfi hefur einkum tekið til afmarkaðra framkvæmda eða tiltekinna verkefna á vegum hins. Talin er þörf á heildstæðari umgjörð um fjárfestingar ríkisins með aukinni áherslu á langtímastefnumörkun, forgangsröðun og faglegt aðhald við undirbúning og ákvörðun um fjárfestingar ríkisins með víðtækari skírskotun. Skortur á sameiginlegum ramma getur torveldað yfirsýn, samanburð milli fjárfestingarkosta og tengingu fjárfestinga við langtímaþróun samfélags, fjármálaáætlun ríkisstjórnar og fjárhagslega burði ríkissjóðs.
Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda. Í frumvarpinu verða markmið og gildissvið núgildandi regluverks endurskoðað þannig að það nái yfir allar stærri og flóknari fjárfestingar ríkisins, óháð því hvort um sé að ræða byggingar, mannvirki, tæki, búnað, stafræna innviði eða aðrar óefnislegar eignir.
Með frumvarpinu er stefnt að innleiðingu á samræmdu ferli sem nær frá stefnumótun til skilamats. Ferlið byggir á fimm skýrt tilgreindum stigum: tilefnisgreiningu, valkostagreiningu, áætlanagerð, framkvæmd og skilamat og tryggir samanburðarhæft mat á stærri fjárfestingum, skýra ábyrgð og gagnsæi á hverju stigi í samræmi við alþjóðleg viðmið. Með því er jafnframt tryggt að einstakar fjárfestingar tengist fjármálaáætlun og langtímastefnu ríkisins.
Ábyrgð og boðleiðir verða skýrari með skilgreindu hlutverki ráðuneyta, fagráðs um opinberar fjárfestingar og framkvæmdaraðila. Þá verður kveðið á um langtímastefnu og áætlanir um forgangsröðun til meðallangs og skemmri tíma til að styrkja verkefnaval og samræma ákvarðanir við markmið stjórnvalda.
S-119/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 10. júl. 2026 – 18. ágú. 2026· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins
Um er að ræða heildarendurskoðun á núgildandi fyrirkomulagi um opinberar framkvæmdir til að tryggja að samræmd málsmeðferð og fagleg verkefnastjórnsýsla gildi yfir allar stærri fjárfestingar ríkisins.
Góðan daginn,
Meðfylgjandi er umsögn Transparency International á Íslandi um frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins.
Bestu kveðjur,
Svava Dögg Jónsdóttir
fyrir hönd Transparency International á Íslandi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)