Áform um breytingu á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga
Fyrirhugað er að gera breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-118/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 36 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (18. september 2026)
Fram komu margvíslegar ábendingar sem tekið var tillit til við undirbúning frumvarpsins eftir því sem tilefni þótti til. Þannig er leitast við að taka mið af sjónarmiðum varðandi hve ólíkum hópum vændiskaupaákvæðinu sé ætlað að vernda, það er þolendum vændismansals, vændisseljendum og þeim sem selja vændi af neyð. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (vændiskaup) voru birt í samráðsgátt þann 18. september 2026.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (36)
- #1Jón Frímann Jónsson
Eldri lög um bann við kynlífsþjónstu að sænskri fyrirmynd hafa ekki virkað og það hefur eingöngu gerst það sem varað var við þegar þau lög voru sett á sínum tíma. Þá myndu glæpamenn koma inn og taka allt undir sig og færa konur í þrælahald, beita ofbeldi og misnota. Bannstefna eins og þessi virkar ekki, mun aldrei virka og mun eingöngu verða á kostnað þeirra kvenna og karla sem eru í þessu. Þó svo að vinsælt sé hjá vanhæfum stjórnmálamönnum að ýta svona lögum til þess að "vernda konur". Þá gera svona lög allt annað en það. Þessi lög, eins og hefur sannast í Svíþjóð og Noregi hafa komið verst… Lesa alla
Eldri lög um bann við kynlífsþjónstu að sænskri fyrirmynd hafa ekki virkað og það hefur eingöngu gerst það sem varað var við þegar þau lög voru sett á sínum tíma. Þá myndu glæpamenn koma inn og taka allt undir sig og færa konur í þrælahald, beita ofbeldi og misnota. Bannstefna eins og þessi virkar ekki, mun aldrei virka og mun eingöngu verða á kostnað þeirra kvenna og karla sem eru í þessu. Þó svo að vinsælt sé hjá vanhæfum stjórnmálamönnum að ýta svona lögum til þess að "vernda konur". Þá gera svona lög allt annað en það. Þessi lög, eins og hefur sannast í Svíþjóð og Noregi hafa komið verst niður á konum í kynlífsþjónustu sem konur í efri stéttum þjóðfélagsins líta niður á og hafa því komið svona lögum í gegn í Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Frakklandi og mögulega víðar. Þessi bannstefna hefur einnig á sér blæ hægri öfgamanna og fyrirlitningu á konum djúpt undir niðri og það hefur aldrei boðað neitt gott fyrir þjóðfélög þegar lagasetningar eru á þeim grundvelli. Svona bannstefna mun eingöngu ýta undir starfsemi glæpamanna, glæpasamtaka og harðari lög munu engu breyta þar um. Svona lög gera einnig ofbeldisfólki færi á að misnota konur í kynlífsþjónustu og beita ofbeldi sem þessar konur munu síðan ekki þora að tilkynna til lögreglunnar. Þar sem, þrátt fyrir að lögin segi eitt. Þá er konum sem koma fram í þessu refsað með einhverju hætti. Á Íslandi er þetta of frávísun af Schengen svæðinu í nokkur ár eða varanlega ef viðkomandi er frá ríki utan EES/ESB, ef viðkomandi er frá öðru ríki EES/ESB þá er það að jafnan endurkomubann til Íslands í einhver ár, jafnvel varanlega. Í Svíþjóð og Noregi voru konur að missa leiguhúsnæði ef þær svo sem mikið lágu undir grun að vera í kynlífsþjónustu (fréttir fyrir nokkrum árum síðan). Þetta mun einnig gerast á Íslandi á endanum og gera allt saman verra. Eina örugga leiðin í þessu til þess að vernda konur, karla og aðra sem eru í kynlífsþjónustu er að gera þetta löglegt með skilyrðum og meðhöndla þetta þetta eins og hverja aðra vinnu sem er unnin sjálfstætt. Það er eina leiðin til þess að koma í veg fyrir ofbeldi og tryggja öryggi fólks.
- #2Renata Sara Arnórsdóttir
Í þessum áformum er viðurkennt að löggjöfin hafi ekki virkað (hún hefur ekki útrýmt fólki í kynlífsvinnu) en samt sem áður er þrjóskast við að halda henni og jafnvel herða hana enn frekar. Núverandi löggjöf hefur ekki minnkað eftirspurn en hún hefur leitt til þess að fólk sem er að selja getur ekki krafist upplýsinga um kaupenda eins og símanúmer eða skilríki sem hægt væri að nýta til að fá upplýsingar um mögulega sögu um ofbeldi eða til þess að hægt sé að kæra kaupenda skildi hann beita ofbeldi. Þvert á móti hefur fólk í kynlífsvinnu fengið sektir fyrir það að auglýsa þjónustuna, laun verið g… Lesa alla
Í þessum áformum er viðurkennt að löggjöfin hafi ekki virkað (hún hefur ekki útrýmt fólki í kynlífsvinnu) en samt sem áður er þrjóskast við að halda henni og jafnvel herða hana enn frekar. Núverandi löggjöf hefur ekki minnkað eftirspurn en hún hefur leitt til þess að fólk sem er að selja getur ekki krafist upplýsinga um kaupenda eins og símanúmer eða skilríki sem hægt væri að nýta til að fá upplýsingar um mögulega sögu um ofbeldi eða til þess að hægt sé að kæra kaupenda skildi hann beita ofbeldi. Þvert á móti hefur fólk í kynlífsvinnu fengið sektir fyrir það að auglýsa þjónustuna, laun verið gerð upptæk sem “sönnunargögn” eftir tilraun til að leggja fram kæru vegna ofbeldis. Núverandi löggjöf hefur gert það af verkum að vinnan færist í undirheimana þar sem ofbeldi fær að grassera. Það skiptir á endanum ekki máli hver ásetningurinn á bakvið lögin eru þegar framkvæmd þeirra hefur þær afleiðingar sem við sjáum í dag. Ef fólki er annt um þennan jaðarsetta hóp er mikilvægt að líta til mannréttindasamtaka á við Amnesty International, UNAIDS, WHO og fleiri sem kalla eftir fullri afglæpavæðingu. Amnesty hefur einnig gert skýrslu um sænsku leiðina sem heitir “The Human Cost of Crushing the Market” og ég mæli eindregið að fólk kynni sér hana sem og skoði aðferð Belgíu og Nýja Sjálands við afglæpavæðingu.
- #3Trans Ísland, félag trans fólks á Íslandi
Meðfylgjandi er umsögn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, um áformin.
- #4Maja Íris Biskup
Protect the survivors and sex workers!
- #5Jóhann Kristian Jóhannsson
Í mínu nærumhverfi eru þolendur vændis sem mér þykir vænt um og ég hef átt djúpar vináttur við kynlífsverkafólk allstaðar að. Þess vegna bið ég dómsmálaráðherra að fjarlægja 1. málsgrein úr lagabreytingartillögu sinni á 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.