Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-116/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009

´Áform um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem miða að því að efla stuðning við nýsköpun og þróun, auka skýrleika og bæta framkvæmd laganna.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: október).

Áformað er að endurskoða lög nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í því skyni að styrkja lagaumgjörð stuðnings við rannsóknar- og þróunarverkefni fyrirtækja og bæta framkvæmd laganna. Helstu breytingar sem eru til skoðunar lúta meðal annars að skýrari skilgreiningum og skilyrðum stuðnings, breytingum á umsóknar- og málsmeðferð, heimild til staðfestingar verkefna að hluta, reglum um gildistíma staðfestinga, kostnað vegna aðkeyptrar rannsóknar- og þróunarvinnu og öðrum breytingum sem reynsla af framkvæmd laganna hefur gefið tilefni til. Þá er jafnframt litið til þróunar í atvinnulífi, framkvæmdar rannsóknar- og þróunarverkefna og skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum. Áformaskjal og mat á áhrifum lagasetningar fylgja málinu og eru umsagnaraðilar hvattir til að koma á framfæri sjónarmiðum um þær breytingar sem þar eru kynntar.

S-116/2026· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2026 – 7. ágú. 2026· 10 umsagnir

Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009

´Áform um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem miða að því að efla stuðning við nýsköpun og þróun, auka skýrleika og bæta framkvæmd laganna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-116/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (24. ágúst 2026)

Tíu umsagnir bárust um áformaskjalið. Umsagnirnar verða teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar frumvarpið liggur fyrir verður það birt í Samráðsgátt stjórnvalda og gefinn kostur á að koma á framfæri umsögnum og athugasemdum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-116/2026: Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009 · Alviti