Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-112/2026 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Stjórnskipulag gagna

Innleiðing á reglugerð (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslum opinberra aðila.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Í reglugerðinni eru sett skilyrði um endurnotkun gagna í vörslu opinberra aðila sem njóta verndar á grundvelli viðskiptaleyndar, trúnaðarkvaðar í hagskýrslum, verndar hugverkaréttinda þriðju aðila eða verndar persónuupplýsingalaga, að svo miklu leyti sem slík gögn falla utan gildissviðs tilskipunar (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. Opinberir aðilar skulu tryggja að eðli gagna sem vernduð gögn sé varðveitt, þrátt fyrir endurnot. Þá er kveðið á um að gjöld fyrir endurnot skulu vera gagnsæ, án mismununar og rökstudd á hlutlægan hátt. Tilnefna skal eina eða fleiri stofnun sem aðstoðar opinbera aðila við að veita eða synja um aðgang á endurnotum á þeim flokkum gagna sem reglugerðin tekur til. Einnig skal tryggja að upplýsingar um skilyrði fyrir endurnot og gjöld séu aðgengileg í miðlægri upplýsingagátt. Þá eru einnig settar reglur um aðila sem veita svokallaða gagnamilligönguþjónustu. Það eru hlutlausir þriðju aðilar sem tengja einstaklinga og fyrirtæki sem geyma gögn við aðra sem vilja nota gögnin. Þessir aðilar skulu skrá sig hjá lögbæru stjórnvaldi og þurfa að uppfylla strangar kröfur til að tryggja hlutleysi. Til viðbótar eru settar reglur um gagnavild, þ.e. þegar einstaklingur og fyrirtæki veita samþykki sitt eða leyfi til að gera gögnin, sem þau búa til, aðgengileg til notkunar í þágu almennings, af fúsum og frjálsum vilja og án endurgjalds. Lögbær stjórnvöld skulu halda skrár yfir aðila sem veita þá þjónustu og sinna eftirliti. Í V. kafla reglugerðarinnar er fjallað um lögbær yfirvöld og málsmeðferðarákvæði. Lögbær yfirvöld á sviði gagnamilligönguþjónustu og lögbær yfirvöld sem annast skráningu gagnavildarstofnana geta verið sama stofnunin. Lögbær yfirvöld skulu vera óháð veitendum slíkrar þjónustu. Lögbær yfirvöld hafa eftirlit og umsjón með því að veitendur gagnamilligönguþjónustu og að viðurkenndar gagnavildarstofnanir uppfylli kröfur reglugerðarinnar. Þau hafa umsjón með skráningu og eftirliti og geta beitt fjárhagslegum viðurlögum. Lögbær yfirvöld skulu halda opinbera landsskrá yfir viðurkenndar gagnavildarstofnanir og skulu veita framkvæmdastjórninni og öðrum lögbærum yfirvöldum innan EES á þessu sviði upplýsingar. Einstaklingar og lögaðilar hafa rétt á að leggja fram kvörtun í tengslum við mál sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Lögbæra yfirvaldið þarf að upplýsa kvörtunaðila um framvindu málsmeðferðar, þá ákvörðun sem er tekin og skilvirk réttarúrræði. Ekki er búið að taka afstöðu til hvaða stofnanir taka við hlutverkum samkvæmt reglugerðinni Að lokum eru kveðið á um Evrópska gagnanýsköpunarráðið, sem veitir ráðgjöf um framkvæmd reglugerðarinnar, og sérstakar reglur um verndarráðstafanir sem þarf að fylgja þegar ópersónuleg gögn eru flutt til landa utan EES, til að tryggja að upplýsingarnar séu verndaðar með sama hætti þrátt fyrir flutninginn.

S-112/2026· Áform um lagasetningu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 1. júl. 2026 – 29. júl. 2026· 2 umsagnir

Stjórnskipulag gagna

Innleiðing á reglugerð (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslum opinberra aðila.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-112/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. júlí 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Persónuvernd

    Með fylgir umsögn Persónuverndar.

  • #2Hagstofa Íslands
    Efni: Mál nr. S-112/2026 – Stjórnskipulag gagna Hagstofa Íslands fagnar því að hafin sé vinna við innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna (Data Governance Act) í íslenskan rétt. Reglugerðin er mikilvægur þáttur í uppbyggingu sameiginlegs evrópsks gagnavistkerfis og markar nýjan áfanga í þróun gagnstjórnunar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Markmið hennar er að stuðla að öruggri og ábyrgri miðlun og endurnotkun gagna og skapa skýrari umgjörð um nýtingu þeirra í þágu rannsókna, nýsköpunar og upplýstrar stefnumótunar. Reglugerðin snertir… Lesa alla

    Efni: Mál nr. S-112/2026 – Stjórnskipulag gagna Hagstofa Íslands fagnar því að hafin sé vinna við innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna (Data Governance Act) í íslenskan rétt. Reglugerðin er mikilvægur þáttur í uppbyggingu sameiginlegs evrópsks gagnavistkerfis og markar nýjan áfanga í þróun gagnstjórnunar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Markmið hennar er að stuðla að öruggri og ábyrgri miðlun og endurnotkun gagna og skapa skýrari umgjörð um nýtingu þeirra í þágu rannsókna, nýsköpunar og upplýstrar stefnumótunar. Reglugerðin snertir eitt mikilvægasta hagsmunamál samtímans, sem er að vel takist til við að leggja grunn að íslensku gagnahagkerfi, en samkeppnishæfni Íslands hvílir að verulegu leyti á gagnadrifnu þekkingar- og nýsköpunarhagkerfi, líkt og annars staðar í Evrópu. Farsæl innleiðing gagnastjórnunar er mikilvægt tækifæri til að nýta lítið notuð gögn hins opinbera og einkaaðila til verðmætasköpunar, uppbyggingar hugvits og framgangs vísinda. Fyrir Hagstofu Íslands hefur þessi lagasetning sérstaka þýðingu. Framleiðsla opinberra hagskýrslna byggist í síauknum mæli á stjórnsýslugögnum frá öðrum opinberum aðilum. Gæði þeirra gagna, aðgengi að þeim og skýr umgjörð um nýtingu þeirra eru lykilforsendur áreiðanlegrar hagskýrslugerðar. Hagstofa Íslands hefur í gegnum þátttöku sína í Evrópska hagskýrslukerfinu (ESS) fylgst náið með þeirri þróun sem átt hefur sér stað á sviði evrópsks gagnavistkerfis og gagnastjórnunar. Reglugerðin er mikilvægur þáttur í þeirri þróun og getur stutt við áframhaldandi eflingu gagnainnviða og samstarfs um örugga og ábyrga nýtingu gagna. Reglugerðin tengist með beinum hætti lögbundnu hlutverki Hagstofu Íslands. Samkvæmt lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007 gegnir stofnunin samhæfingarhlutverki á sviðið opinberrar hagskýrslugerðar og byggir framleiðslu opinberra hagskýrslna í síauknum mæli á stjórnsýslugögnum frá öðrum opinberum aðilum. Í því felst jafnframt náið samstarf við opinbera gagnahaldara um þróun stjórnsýslugagna þannig að þau nýtist sem best til hagskýrslugerðar. Reynslan sýnir að aukin gagnanýting byggist ekki eingöngu á auknu aðgengi að gögnum heldur einnig á góðum gagnagæðum, samræmdri skráningu, skýrum lýsigögnum og skýrri ábyrgð þeirra sem fara með gögnin. Á þessum grunni hefur Hagstofa Íslands byggt upp víðtæka reynslu og sérþekkingu á samþættingu stjórnsýslugagna, gæðastjórnun og öruggri meðferð gagna. Jafnframt hefur stofnunin unnið að þróun staðla og lýsigagna sem styðja við samræmda vinnslu og miðlun upplýsinga. Reynsla og sérþekking Hagstofu Íslands á þessu sviði getur nýst við áframhaldandi þróun gagnainnviða á Íslandi, óháð því hvaða stofnun eða stofnanir verða falin þau verkefni sem reglugerðin gerir ráð fyrir. Innleiðing reglugerðarinnar felur í sér mikilvægt tækifæri til að efla gagnainnviði hins opinbera. Með skýrari umgjörð um aðgang, miðlun og endurnotkun gagna getur hún stuðlað að auknu samstarfi milli opinberra gagnahaldara, bættum gagnagæðum og samræmdri skráningu. Slík þróun auðveldar örugga endurnotkun gagna og mun ekki aðeins styðja við rannsóknir og nýsköpun heldur einnig styrkja opinbera hagskýrslugerð og opinbera stefnumótun. Forsenda þess að þessi tækifæri nýtist að fullu er að traust sé til staðar. Slíkt traust er lykilforsenda þess að gagnavistkerfi geti þróast með farsælum hætti. Einstaklingar, fyrirtæki og opinberir aðilar þurfa að geta treyst því að upplýsingar séu meðhöndlaðar með öruggum og ábyrgum hætti. Við innleiðingu reglugerðarinnar þarf því áfram að tryggja sterka vernd trúnaðargagna, skýra umgjörð um aðgang að gögnum og vandaða stjórnsýslu sem styður ábyrga gagnanýtingu. Lagaleg og stjórnsýsluleg umgjörð þarf jafnframt að styðja við markmið reglugerðarinnar. Við innleiðingu hennar þarf að huga að samspili reglugerðarinnar við gildandi íslenska löggjöf, þar má nefna sérstaklega persónuverndarlöggjöf en jafnframt aðra löggjöf sem hefur áhrif á heimildir opinberra aðila til að miðla og veita aðgang að gögnum. Lagaramminn í heild þarf að skapa skýrar forsendur fyrir öruggri og ábyrgri miðlun og endurnotkun gagna og draga úr lagalegri óvissu við framkvæmd reglugerðarinnar. Jafnframt er mikilvægt að áður en frumvarpið verður lagt fram liggi fyrir hvaða stofnanir fara með þau hlutverk sem reglugerðin gerir ráð fyrir og hvernig ábyrgð verður skipt milli þeirra. Einnig þarf að meta áhrif nýrra verkefna á mannafla, fjármögnun og tæknilega innviði þeirra stofnana sem hlut eiga að máli. Hagstofa Íslands telur að reglugerðin geti orðið mikilvægur áfangi í þróun íslensks gagnavistkerfis. Til að markmið hennar náist þarf innleiðingin að byggjast á trausti, góðum gagnagæðum, samræmdri gagnastjórnun og skýrri ábyrgð. Jafnframt er mikilvægt að uppbygging innviða og sú fjárfesting sem innleiðingin krefst styðji við aukið samstarf opinberra gagnahaldara og skapi varanlegar forsendur fyrir ábyrgri og aukinni nýtingu gagna í þágu samfélagsins í heild. Hagstofa Íslands er reiðubúin að taka virkan þátt í áframhaldandi undirbúningi og innleiðingu lagasetningarinnar. Stofnunin býr yfir víðtækri reynslu og sérþekkingu á opinberri hagskýrslugerð, stjórnsýslugögnum og gagnastjórnun sem getur stutt við árangursríka framkvæmd reglugerðarinnar. fh. Hagstofu Íslands Lárus Blöndal

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-112/2026: Stjórnskipulag gagna · Alviti