Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-103/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um orkunýtni

Áform eru um lagasetningu um orkunýtni til innleiðingar á tilskipunum ESB um orkunýtni. Markmið laganna er að bæta orkunýtni, uppfylla skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum og styrkja umgjörð um orku

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: janúar).

Með frumvarpi til laga um orkunýtni er fyrirhugað að innleiða í íslenskan rétt tilskipun 2012/27/ESB um orkunýtni og breytingartilskipun (ESB) 2018/2002, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 174/2025. Í ákvörðuninni er tekið tillit til sérstöðu íslenska orkukerfisins með sérstökum aðlögunum sem meðal annars fela í sér lægri kröfu um árlegan orkusparnað en almennt gildir innan Evrópusambandsins. Markmið lagasetningarinnar er að skapa heildstæða lagalega umgjörð um orkunýtni á Íslandi, uppfylla skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum og stuðla að hagkvæmari nýtingu orku. Frumvarpið mun meðal annars kveða á um landsbundið markmið um bætta orkunýtni til ársins 2030 og árlegt markmið um nýjan orkusparnað. Jafnframt er gert ráð fyrir að Umhverfis- og orkustofnun fari með stjórnsýslu, eftirlit og gagnasöfnun vegna framkvæmdar laganna. Einn meginþáttur frumvarpsins er að stærri fyrirtæki verði skylduð til að framkvæma reglubundnar orkuúttektir eða innleiða vottuð orkustjórnunarkerfi sem uppfylla kröfur tilskipunarinnar. Markmiðið er að auka yfirsýn yfir orkunotkun, stuðla að hagkvæmum orkusparnaðaraðgerðum og styrkja grundvöll fyrir upplýstar ákvarðanir um orkunýtingu. Við undirbúning málsins hefur verið lagt mat á áhrif lagasetningarinnar. Niðurstöður benda til þess að lagasetningin geti haft í för með sér aukinn kostnað fyrir stjórnsýslu og tiltekin stærri fyrirtæki vegna nýrra eftirlits- og upplýsingaskyldna. Á móti er gert ráð fyrir að bætt orkunýtni stuðli að aukinni hagkvæmni, styrki orkuöryggi og losi um endurnýjanlega orku sem nýta má til orkuskipta og annarrar verðmætasköpunar. Áformað er að kynna frumvarpið í samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal orkufyrirtæki, atvinnulíf og aðra sem málið varðar, áður en endanleg frumvarpsdrög verða lögð fram.

S-103/2026· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 16. jún. 2026 – 6. júl. 2026· 10 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um orkunýtni

Áform eru um lagasetningu um orkunýtni til innleiðingar á tilskipunum ESB um orkunýtni. Markmið laganna er að bæta orkunýtni, uppfylla skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum og styrkja umgjörð um orku

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-103/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. júlí 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-103/2026: Áform um frumvarp til laga um orkunýtni · Alviti