Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga
Dómsmálaráðuneytið kynnir hér með til umsagnar drög sifjalaganefndar að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-95/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. september 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 17 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (17)
- #1Jón Einarsson
Ábending mín beinist að því að hér er á miðju ári kynnt frumvarp sem inniheldur ýmis ákvæði sem ganga út frá því að til séu/til verði umdæmamörk milli sýslumannsembætta (sjá t.d. 63. og 65. gr frumvarpsins varðandi kaupmála), þegar fyrir liggur sú staðreynd að samkvæmt lögum sem samþykkt hafa verið af Alþingi verða öll sýslumannsembætti á Íslandi sameinuð í eitt embætti um næstu áramót. Að mínu mati felur það í sér óþarfa flækju og getur varla talist góður lagasetningarháttur að miða frumvarpssmíði ekki við veruleika sem verður kominn í gang eftir örfáa mánuði. Ég trúi því varla að það sé hu… Lesa alla
Ábending mín beinist að því að hér er á miðju ári kynnt frumvarp sem inniheldur ýmis ákvæði sem ganga út frá því að til séu/til verði umdæmamörk milli sýslumannsembætta (sjá t.d. 63. og 65. gr frumvarpsins varðandi kaupmála), þegar fyrir liggur sú staðreynd að samkvæmt lögum sem samþykkt hafa verið af Alþingi verða öll sýslumannsembætti á Íslandi sameinuð í eitt embætti um næstu áramót. Að mínu mati felur það í sér óþarfa flækju og getur varla talist góður lagasetningarháttur að miða frumvarpssmíði ekki við veruleika sem verður kominn í gang eftir örfáa mánuði. Ég trúi því varla að það sé hugsun ráðuneytisins að hin nýju hjúskaparlög (ef samþykkt verða á Alþingi) komi í gagnið fyrir áramót áður en sameiningin verður að veruleika. Það er því alveg ljóst að vinna þarf það frumvarp sem hér er lagt fram betur, til samræmingar við þann veruleika sem tekur við eftir næstu áramót.
- #2Pétur Þorsteinsson
Sæl. Ef þessi breyting leiðir til þess, að skilnaður verði gerður með meiri kærleika og umburðarlyndi, og réttur barna tryggður betur, þá er þetta til bóta vitaskuld. Kv. Pétur Þorsteinsson
- #3Telma Halldórsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands.
- #4Persónuvernd
Með fylgir umsögn Persónuverndar.
- #5Félagsráðgjafafélag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Félagsráðgjafafélags Íslands
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.